Úrval - 01.04.1965, Síða 58
5G
ÚRVAI.
og hafa tekið til þess aS neyta æs-
andi pilla, sem eru seldar næstum
opinberlega í kaffihúsum, sem ungl-
ingar þessir venja komur sínar á.
í Soho, næturklúbbahverfi Lund-
úna, er krökkt af „Modernistum"
á laugardagskvöldum, og eru þeir
mjög skrautlega klæddir í dýrindis
fatnað. Strákarnir eru meS hatta
meS mjóum börSum, en stelpurnar
i pilsum, er ná niSur að ökla.
Þessi lýður eigrar þarna um stað
úr stað fram eftir nóttu í leit að
nýrri æsingu og nautnum til þess
aS deyfa leiðindin og lífsleiðann.
Franskir unglingar hafa aldrei
verið svo auðugir sem núna. Ungl-
ingar frá 15—20 ára aldri eyða þar
vasapeningum, sem nema samtals
yfir 400 milljónum króna á ári.
En samt fremja franskir unglingar
fleiri og meiri glæpi nú en jafnvel
á hinum hræðilegu stríðsárum.
Hálfgerðir hryðjuverkaflokkar, sem
áður klæddust svörtum leðurjökk-
um og gengu því undir nafninu
„Blousons noirs“ (svörtu jakkarn-
ir), eru hættir að klæðast á þann
hátt til þess að villa um fyrir lög'-
reglunni. En andi ofbeldisins lifir
samt góðu lífi meðal þeirra, þótt
jökkunum hafi verið kastað. Það
er ekki langt síðan 6000 unglingar
flykktust inn á iþróttaleikvanginn
Palais des Sports í Paris og var
það í orði kveðnu til jæss að hlusta
á nýjasta dægurlagadýrlinginn sinn.
En áður en söngskemmtunin byrj-
aði, tóku jíeir að rifa og slíta í sund-
ur sætin, brjóta allt og bramla, sem
hönd á festi. Söngvarinn kom aldrei
fram, MaSur einn, sem var vitni
að þessu, lýsir atburði þessum á
eftirfarandi hátt: „Það kváðu ekki
við nein óp né öskur. Það ríkti
|)ögn, meðan þeir hömuðust sem
berserkir við skemmdarverkin. Það
er einmitt þetta, sem er svo ógn-
vænlegt, þetta þegjandi skemmdar-
æði. Seinna spurði ég nokkra
jieirra, hvers vegna þeir hefðu gcrt
þetta. Þeir hlógu bara, en sögðu
ekki orð, og' hlátur þeirra virtist
ekki móðgandi eða ruddalegur.
Hann var hljóður, næstum bliðleg-
ur.“
Sömu mynd væri hægt að bregða
upp frá næstum öllum velmegunar-
löndum heims. í Ástralíu hafa gerzt
atburðir, sem gefa til kynna furðu-
legt kynferðilegt siðleysi slíkra
unglinga, oft mjög ungra.
Glæpir meðal kanadiskra ungl-
inga á aldrinum 18—21 árs hafa vax-
ið um 20% síðustu fjögur árin. Þar
hafa einnig gerzt fjölmargir atburð-
ir, er bera vitni um kynferðilegt
siðleysi og ofsalegt tillitsleysi gagn-
vart mannslifum, er lýsir sér í sið-
lausum akstri.
I Suður-Ameríku er um aukningu
skemmdarverka og afbrota að ræða
meðal barna efnaðra foreldra. í
Argentínu eru helztu vandamálin
eiturlyf, áfengi, vændi og fóstur-
eyðingar. Vandræðaunglingar Vene-
zuela ganga undir nafninu „Kalkún-
ar“ (Pavos). Af þeirra völdum rik-
ir sannkölluð ógnaröld í hinum
glæstu úthverfum liöfuðborgarinnar
Caracas. í Mexíkó ganga slíkir ungl-
ingar undir nafninu „Litlu Tarzan-
arnir“. Þeir draga um þaS, hverjir
eigi að ráðast að saklausum veg'-
farendum og misþyrma þeim. Og
þarna virðist tilviljun ein ráða, hver