Úrval - 01.04.1965, Qupperneq 59
VANDRÆÐA UNGLINGAR UM VÍÐA VERÖLD
57
fórnardýrin eru. Yfirdómari ungi-
ingadómstóls Rio de Janeiro, dr.
Alberto de Gusamo, lýsir því yfir,
að í Brasilíu fremji fleiri unglingar
meiri háttar glæpi en liinir full-
orðnu á öllum aldri samtals/
Þegar enska lögreglan skýrði föð-
ur einum frá því, að sonur hans
hefði verið ákærður um að skera
gamla konu með bitvopni, svo að
stórsá á henni, varð faðirinn furðu
lostinn og virtist tala fyrir munn
allra eftirlátra foreldra, sem veita
börnum sínum allt í góðri trú:
,,Hann hefur aldrei lent í vandr-
æðum áður. Við foreldrar hans
höfum veitt honum allt, sem hann
hefur langað i. Hversvegna gerði
hann þetta?“
Og þessi spurning kveður alls
staðar við. Hvers vegna? Hvers
vegna? Hvers vegna? Hvernig getur
slíkt gerzt, að ungar stúlkur, sem
hafa allt til alls og njóta foreldra-
ástar, selji sig sem vændiskonur?
hvers vegna ráðast piltar frá lög-
hlýðnum fjölskyldum á saldausa
vegfarendur? Spyrjið þá sjálfa, og
þeir munu bara segja: „Æ, mér
Ieiddist“ eða „Við gerðum það bara
að gamni okkar.“ Eftir uppþotin
i Clacton gaf ungur Lundúnabúi
eftirfarandi skýringu á þessum ó-
sköpum: „Sko, maður kemst í stuð.
Maður á klinkið, svo að maður fer
að leita að einhverju fínu geimi.“
Sjaldan er svar þessara unglinga
eins skýrt og afdráttarlaust og svar
ítalska piltsins, sem gaf svofellda
skýringu á því, hvers vegna hann
og vinir hans hefðu barið gamlan
næturvörð illilega með þungum bar-
eflum: „Við verðum að sýna, að
við séum færir um hvað sem er.“
Hvers vegna virðist sem skemmd-
arfýsn og uppivöðslusemi, jafnvel
glæpir séu tryggir fylgifiskar vel-
megunarinnar? Ég bar spurningu
þessa undir dómara við barna- og
unglingadómstóla, þjóðfélagsfræð-
inga, leiðtoga i æskulýðsfélögum og
ýmsa þá, sem vinna að lausn þjóð-
félagsvandamála af ýmsu tagi i
löndum þeim, sem eiga við erfið-
ustu unglingavandamálin að striða.
Fólk þetta nefndi ýmsar ástæður.
Stytting vinnutímans hefur í för
með sér aukinn fritíma, og jafnvel
fullorðið fólk hefur ekki enn lært
að verja þessum aukna frítíma sin-
um á réttan hátt. Betra viðurværi
hefur í för með sér, að ungling-
arnir verða fyrr kynþroska en áð-
ur, og því er um að ræða kynhvöt
hjá kornungum unglingum, sem eru
enn mjög óþroskaðir tilfinningalega
og andlega yfirleitt. Nú hafa allir
meiri þörf fyrir framhaldsmennt-
un en áður, en það hefur í för með
sér, að unglingarnir eru lengur
háðir foreldrum sínum fjárliagslega
en áður fyrr. Og þvi „springa pilt-
arnir í loft upp“ og fremja ofbeld-
isverk til þess að sýna, að þeir séu
orðnir fullorðnir, en séu ekki nein
börn lengur. Náms- og prófkröfur
hafa víða verið auknar við ýmsa
framhaldsskóla, og ýmsir þeir, sem
ekki geta svarað kröfum þessum
á fullnægjandi hátt, reyna að upp-
hefja sig í augum félaga sinna með
yfirgangi og ofbeldisverkum. Nú
hafa allir unglingar efni á að kaupa
vélhjól, leigja bíla og jafnvel kaupa
þá. Svo þegar þeir eru komnir á
farartækjum sínum til einhverra