Úrval - 01.04.1965, Qupperneq 72

Úrval - 01.04.1965, Qupperneq 72
70 ÚRVAL í fánum skrýdda stúku sína ásamt fylgdarliði. Rathborne majór og ungfrú Harris, gestir forsetans, sett- ust í freinstu sætin og kona for- setans dálítið aftar; en sjálfur sett- ist forsetinn i ruggustól, sem stóð aftast í stúkunni, því að hann var dauðuppgefinn og gat varla veifað til fólksins, sem fagnaði honum. En þegar komið var að þriðja þætti, var hann farinn að hafa ánægju af leiknum. Hann var orðinn af- þreyttur og undi sér vel. Hann hall- aði sér áfram í stólnum, og kona hans brosti og snerti hönd hans. Forbes ekill, sat frammi á göng- unum hjá stúkudyrunum. Maður nokkur rétti honum bréfmiða og Forbes visaði gestinum inn i stúk- una. Það sem gerðist næst, var líkast martröð. Skot kvað við, en hvellur- inn var ekki hærri en svo, að menn voru seinna í vafa um, hvort þeir hefðu heyrt hann. Það heyrðist háreysti úr stúkunni og leiksýn- ingunni var hætt. Blár reykjar- mökkur gaus upp og ungur maður sté upp á rið stúkunnar og stökk þaðan niður á leilcsviðið. Áhorf- endurnir ráku upp skelfingaróp. Maðurinn virtist hafa ökklabrotnað, enda var það engin furða, eftir slíkt þeljarstökk. Hann stóð kyrr and- artak og strauk á sér ökklan, en síðan steytti hann hnefann, hróp- aði eitthvað og var horfinn. Forsetinn liafði verið skotinn i höfuðið, en það blæddi litið úr sárinu og hann var enn með lífi. Hann var borinn varlega út úr leikhúsinu, yfir götuna og inn í hús Petersons nokkurs klæðskera, en það stóð þar beint á móti. Þar var hann lagður í rúm og læknar kvaddir til. Þeir reyndu að bjarga lífi hans og honum voru gefin örv- andi lyf alla nóltina, en öllum við- stöddum var Ijóst, að hverju stefndi. Forsetafrúin sat grátandi í stofunni og ráðherrarnir gengu uin g'ólf og hristu höfuðið. Abraham Lincoln andaðist kl. 7.22 að morgni hins 15. april 1865. John Wilkes Booth, stuðnings- inaður málstaðar Suðurrikjanna, en fyrst og fremst misheppnaður leikari, var eltur uppi og skotinn nokkrum dögum seinna í hlöðu, þar sem hann hafði leitað hælis. Lincoln fæddist 12. febrúar 1809 i bjálkakofa skammt fyrir sunnan Hodgenville í Kentucky. Hann var sonur smábónda, Tómasar Linc- olns, og konu hans, Nancy. Fjöl- skyldan fluttist til Knoh Creek þeg- ar hann var tveggja ára gamall og bjó þar í fimm ár. Fæðið var ó- brotið og móðirin saumaði föt á drenginn úr skinnum veiðidýra, sem faðirinn hafði skotið. En gamli þjóðvegurinn milli Louisville og Nashville lá um hlaðvarpann og Abraham horfði hugfanginn á tjaldvagna frumbyggjanna og bú- peningshjarðir þeirra, þegar þeir fóru þarna framhjá. Öðrn hvoru sá hann sér til undrunar bundna negra rölta á eftir ríðandi manni. Það var líka gaman i skólanum, en liann fengu þau Abraham og systir hans ekki að sækja, nema faðir þeirra mælti missa þau frá búverkunum — og það var sjaldan. Þegar drengurinn var sjö ára, lagði Lincolnfjölskyldan aftur land
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.