Úrval - 01.04.1965, Page 79

Úrval - 01.04.1965, Page 79
MARGRÉTAR SAGA OG FERILL HENNIR ... 77 til upphafs 16. aldar. Til þess aS gefa nokkra hugmynd um, hversu útbreiddur átrúnaðurinn á hinum ýmsu helgu meyjum var liér á landi í kaþólskum sið, læt ég fylgja skrá Guðbrands Jónssonar yfir fjölda kirkna, er helgaðar voru þeim. Vitað er um 442 kirkjur, hvaða dýrlingum þær voru lielgaðar. Af þeim voru 200 helgaðar Maríu meyju, ellefu Katrínu, sjö Máríu Magdalenu, sex Cecilíu, þrjár Mar- grétu, þrjár Agötu og ein til tvær fjórum öSrum helgum meyjum. Segja má, að bæði fjöldi handrita af Maríu sögu og fjöldi Maríukirkn- anna komi heim við það, er búast mátti við, að af öllum helgum meyj- um hafi verið mestur átrúnaður á Maríu Guðs móður, en um náið samræmi á milli fjölda handrita af sögum hinna ýmsu lielgu meyja og kirkna þeim helguðum er ekki að ræða. Hinn tiltölulega mikli fjöldi handrita af Margrétar sögu stafar sýnilega ekki af því, að inarg- ar kirkjur hafi verið helgaðar heil- lagri Margrétu og sagan öðrum fremur fylgt þeim kirkjum. Samkvæmt handritaskrám Lands- bókasafn eru í eigu þess 25 handrit af Margrétar sögu, en ekkert af sögum annarra helgra meyja. (Handritin eru raunar talin 27 í registrinu við skrárnar. Ég get ekki séð, að eitt þeirra, nr. 1599, geymi Margrétar sögu, og nr. 8425 er vél- rit af AM 431, 12mo frá árinu 1930, sem ég hef sleppt.) Elzta handritiS er talið ritað 1060—1680, og hið yngsta um 1895. Hér má bæta því við, að „sag- an af Margréti pislarvotti“ var prentuð í Reykjavík skömmu eftir síðustu aldamót, og er það eina sagan af heilögum meyjum, sem mér er kunnugt um, að hafi verið prentuð á íslandi. Útgáfan er mjög óvönduð, ekkert getið um, eftir hvaða liandriti hún sé prentuð, né hvenær, né hver útgefandinn sé, aðeins bláber sagan og þess getið, að hún sé prentuð í prentsmiðjunni Gutenberg. í Fiske Collection of Iceland Books er prentunarárið tal- ið 1906. ÞaS er erfitt að gera sér í hugarlund, í Iivaða tilgangi sagan var prentuð eða hvaða hlutverki útgáfunni hafi verið ætlað að gegna. Manni finnst það vart hugsanlegt, að hún hafi verið ætluð fslending- um við upphaf 20. aldarinnar til skemmtilesturs eða andlegrar upp- byggingar. Sagan er ekki uppprent- un eftir útgáfu Ungers í Heilagra manna sögum. En við skulum nú alhuga Mar- grétarsögu nánar og bera hana saman við aðrar sögur af helgum meyjum í útgáfu Ungers og sjá, livort það megi veita nokkra vit- neskju um ástæðurnar fyrir hinum mikla fjölda handrita af sögunni. Ekki verður séð, að Margrétar saga skeri sig úr hinum sögunum, hvorki um mál né efnismeðferð, og efnið er yfirleitt nauðalíkt í þeim öllum. Heilög Margrét varðveitir meydóm sinn alla ævi og bíður að lokum pislarvættisdauða fyrir trú sína. Fyrir andlátið kallar hún til Guðs og mælti: „Heyrðu bæn mina. Þess bið ég, að þváist syndir þess manns, er les píslarsögu mína; og hver sem einn, sá er lýsi færir til kirkju minnar, þváist af syndir þess á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.