Úrval - 01.04.1965, Blaðsíða 96
94
ÚRVAL
og á alls konar gleðihúsum og
könnuðust því vel við þessa ungu
menn. Eitt kvöldið, er Bidwell liafði
tapað milclu fé við spilaborðið og
var að drekkja sorgum sínum við
vínskenkiborðið, settist maður einn
við blið bonoum og lagði eftirfar-
andi spurningu fyrir hann: Var
liann reiðubúinn til þess að bjálpa
vissum aðila að losna við mikið
magn af stolnum skuldabréfum .í
Evrópu? Ilann skyldi fá rífleg ó-
makslaun. Hann var þaulvanur
skuldabréfaviðskiptum og því ein-
mitt rétti maðurinn til þess.
Þarna var um glæpsamleg fjár-
svik að ræða. Á því lék ekki hinn
minnsti vafi. Og þörf væri á geysi-
lega sterkum taugum og blátt áfram
ótrúlegri snilli, ætti uppátæki
þetta að takast. Að engu mátti fara
óðslega, beldur varð að fara ofur
varlega að öllu, jafnvel í hinum
smæstu smáatriðum. En þarna
blasti líka við honum opin leið út
úr öllum ógöngunum. Austin gekk
því að tilboðinu fegins hendi. Hann
fór til Evrópu og leysti af bendi
verkefnið með snillibrag. Svo
sneri hann aftur til Ameríku nokkr-
um mánuðum síðar. Ómakslaun
hans voru samtals 13.000 dollarar.
Og upp frá þeim degi lagði hann
ekki framar fyrir sig lögleg störf.
Hann var óskaplega metnaðargjarn
á sviði glæpastarfsemi eigi siður
en á fyrra starfssviði sínu. Hann
stefndi ætíð að hæsta tindinum.
Og árið 1872, þegar hann hafði
náð 26 ára aldri, var hann kominn
til Lundúna og hafði þegar ráðizt
til atlögu gegn sjálfum Englands-
banka. Nú var Austin Bidwell orð-
inn heljarmikill karl, að því er virt-
ist. Hann var mjög myndarlegur
maður, næstum 6 fet á hæð. Enni
hans var hátt, og niður á það féll
stór lokkur. Ilann var mjög glæsi-
leg klæddur að jafnaði' og hafði
tamið sér hljóðlátt fas heklrimanna.
Hann bar stóra demantshringi, var
með barta og lítið yfirskegg. Hann
hafði afmáð öll merki hins lága
uppruna síns, og hann stóð hinum
frambærilegustu, ungu mönnum i
Lundúnum fyllilega á sporði, bæði
hvað snerti klæðaburð, samræðu-
hæfileika og þokkafulla framkomu.
En af öllum hans mörgu hæfileik-
um var þó einn, sém var honum
langsamlega dýrmætastur, en það
var hæfileiki lians til þess að vekja
traust annarra.
MEÐ FJÁRSVIII í IIUGA
Hann var ekki einn síns liðs. í
hlutverki sinu sem Frederick Al-
bert Warren var Austin Bidwcll
aðeins hinn opinberi fulltrúi eldri
bróður síns, George að nafni. Ge-
orge Bidwell var heilinn á bak við
allt brallið, skipuleggjandinn, sem
stjórnaði sókninni og skipulagði
hana.
Hann var 7 árum eldri en Austin
og hafði auðgazt dálítið á þvi að
svíkja vörur út úr heildverzlunum
með því að svna þeim fölsuð fjár-
málameðmæli og afla sér þannig
lánstrausts hjá þeim. Hann liafði
stundað þessa iðju víðs vegar á
austurströnd Bandarikjanna, en
loks hafði hann lent í klandri í
Virginiufylki. Og þar hafði hann
verið dæmdur í tveggja ára fang-
elsi. En á sjálfan jóladaginn árið