Úrval - 01.04.1965, Síða 109
FJÓRIR GEGN ENGLANDSDANKA
107
ust einnig aðstoðarmanns sem hefði
það eitt starf með höndum að sjá
um innlegg og úttektir í bönkum og
öll þeirra gerviviðskipti, svo að
erfitt myndi reynast að rekja slóð
peningasendinganna. Þennan mann
ótti að „ráða“ sem trúnaðarfulltrúa
Hortons. Hann átti að hafa fullt
umboð húsbónda síns til þess að
útkljá viðskipti hans á hans veg-
um. Þetta myndi gera Horton, þ.
e.a.s. Austin, fært að vera fjarstadd-
ur, þegar sjálf fjársvikin yrðu
framkvæmd.
Edwin Noyes, gamall vinur Aust-
ins frá Hartford í Connecticutfyllci,
var valinn til þessa starfs. Hann var
minni háttar ávísanafalsari og hafði
alveg nýlega verið látinn laus lir
ríkisfangelsi New Jerseyfylkis eftir
að hafa setið þar inni í 7 ár. Hann
væri því vafalaust „vinnulaus"
þessa stundina, og þ. 8. nóvember
skrifaði Austin honum þvi og gerði
honum óljóst tilboð um starf:
Kæri Noyes minn:
Þú verður hissa á því að heyra
frá mér frá Lundiínum, en hér
hef ég verið með George og vini
mínum í heilt ár og hef grætt
mikla peninga á ýmsum viðskipt-
nm, sem við höfum átt hér. Okk-
ur hefur jafnvel gengið svo vel,
að við höfum ákveðið að gefa
þér 1000 dollara, sem við send-
um þér hérmeð.
Kannski væri það okkur mögu-
legt að veita þér tækifæri til þess
að vinna þér inn nokkur þúsund
dollara, ef þú vildir hætta þér
hingað yfir úlhafið. Kannski
getum við liaft not af þér. Ef
svo reynist vera, sendi ég þér
skeyti. Vertu varkár, og þegar
þú ferð að heiman, skaltu halda
ákvörðunarstað þínum alger-
lega leyndum.
Vona, að þér líði prýðilega, og
kveð þig,
þinn gamli vinur nú sem fyrr
Austin
Þeim Austin og Mac var mjög
skemmt, er þeir urðu varir við það,
að undanfarna mánuði hafði Ge-
orge virzt vera haldinn algerlega
ómótstæðilegri áráttu. Hann leit
inn i hverja ritfangaverzlun, er á
Ieið þeirra avr, og keypti þar mikl-
ar birgðir af mismunandi tegund-
um af pappír, bleki i ýmsum litum,
mörgum tegundum af innsiglis-
lakki, pennum, gúmmístimplum og
öðrum ritföngum, sem kynnu að
koma sér vel við skjalafals. Nú
vissi hann, hvað þeir þurftu að
falsa, og því tók hann að safna
víxileyðublöðum (sem fást i öllum
meiriháttar ritfangaverzlunum),
og á ferðum sínum á meginlandinu
útvegaði hann sér víxileyðublöð á
frönsku, þýzku, liollenzku, ítölsku,
rússnesku, tyrknesku og arabisku.
En ýmislegt, sem getur að líta
á víxlum, svo sem prentaða hausa,
stimpla, o.fl., er næstum ómögu-
legt að stæla með rithönd. George
yrði þvi að láta prenta dálítið fyrir
sig i kyrrþey. Með símaskrá við
höndina skrifaði hann lista yfir 40
prentsmiðjur, sem voru einhvers-
staðar nálægt Paternoster Row, og
heimsótti þær allar eftir röð. Hann
var að leita að góðum prenturum
og prentmyndasmiðum, sem væru
ekki allt of forvitnir og væru reiðu-
búnir til þess að búa til ýmiss kon-