Úrval - 01.04.1965, Qupperneq 112
110
ÚRVAL
húsið. Noyes, sem var 29 ára að
aldri, var lágvaxinn, hljóðlátur
maður. Andlitssvipur hans ljómaði
af einlægni og heiðarleika, að því
er virtist. Hann var fremur virðu-
legur i fasi, en um leið látlaus.
Hann var fyrst ofsahræddur, er
George skýrði honum frá hlutverki
hans í sjónleik þeim, er á svið
skyldi settur. Honum óx það sannar-
lega í augum, að þeir ætluðu að
leggja til atlögu gegn sjálfum Eng-
landsbanka. Þeir lofuðu honum 5%
af fengnum, ef hann færi i einu
og öllu eftir fyrirmælum þeirra,
í öllum smáatriðum og án hiks eða
tafar. Og þetta varð að lokum til
þess, að hann samþykkti að taka
þátt í sjónleiknum.
„Jæja, ég geri það,“ sagði hann
líkt og maður, sem hefur sætt sig
við óumflýjanleg örlög. „Mig vant-
ar sannarlega peninga nú sem
stendur, og þegar öllu er á botninn
hvolft, munar Englandsbanka alls
ekkert um þessa aura.“
Eitt fyrsta verk Georges var að
fara með Noyes til klæðskera við
Hanovertorg og panta dökkan. al-
klæðnað fyrir hann. Hann valdi
fremur lélegt efni. Síðan keypti
hann Iiatt handa honum niðri við
Strandgötu og þar að auki regn-
hlíf, sem hann átti að bera kyrfi-
lega samanbrotna á góðviðrisdög-
um. Allt var þetta gert í þeim til-
gangi að láta hann líkjast sem mest
venjulegum skrifstofumönnum í
borginni.
Nú var nauðsynlegt að láta líta
svo út, að þeir Noyes og hr. Hor-
ton væru algerlega ókunnugir hvor
öðrum og að ekkert samband hefði
verið þeirra á milli fram að þessu.
í þeim tilgangi lét George hr. Noys
setja svohljóðandi auglýsingu í dag-
blaðið Daily Telegraph:
Ma&ur, vanur algengum kaup-
sýslustörfum, óskar eftir á-
byrgri trúnaðarstöðu eða fé-
lagsskap við kaupsýslumann.
Sendið upplýsingar til: Ed-
ivins Noyes, Durrantshóteli
við Manchestertorg.
Auglýsing þessi stóð i blaðinu 6
daga í röð, og Noyes lekk um 50
—60 svör við henni. Eitt þeirra
var frá lir. C.J. Horton.
Nokrum dögum siðar kom Austin
i hlutverki hr. Hortons í heimsókn
til Noyes á Durranthótelið og ræddi
þar við hann, svo að starfsfólkið
heyrði til. „Ég er að leita að skrif-
stofumanni, sem gegna skal trúnað-
arstöðu hjá fyrirtæki mínu,“ sagði
liann við Noyes. Noyes skýrði lion-
um frá fyrri starfsreynslu sinni
rólegum en fremur óstyrkum rómi.
Að lokum reis Jlorton á fætur, eft-
ir að þeir höfðu ræðzt við um
stund, og sagði: „Ég er fyllilega
ánægður með starfshæfni yðar, hr.
Noyes. Ef þér viljið gjöra svo vel
að fylgjast með mér til lögfræðings
mins, skal ég láta hann útbúa form-
legan starfssamning fyrir yður.“
í drungalegri skrifstofu Dawids
Howells málafærslumanns í nr.
105 Cheapside var útbúinn samn-
ingur „milli Charles Johnson Hor-
tons verksiniðjueiganda London
Bridgehóteli og Edwins Noyes
skrifstofumanns, Durrantshóteli,“
og hann síðar undirritaður. Noy-
es samþykkti að ráða sig sem slcrif-
stofumann og framkvæmdastjóra