Úrval - 01.04.1965, Síða 117

Úrval - 01.04.1965, Síða 117
FJÓRIR GEGN ENGLANDSBANKA 115 brautarslysum. Er Austin lá þarna skjálfandi, tók hann að velta þvi fyrir sér, hvort ekki væri hspgt að notfæra sér slys þetta á einhvern liátt. Hann kom til Parísar i rökkur- byrjun og eyddi órólegri nóttu á Grandhótelinu. Klukkan 10. næsta morgun staulaðist hann yfir að Rothschildbankanum við Lafitte- götu, draghaltur, náfölur í andliti og alþakinn sjúkrabindum. Hann dróst rétt áfram á staf sínum. Síð- an gekk hann að hurð, sem á stóð „Enska deildin." Starfsfólkið sýndi honum strax mikla samúð vegna meiðsla hans. Og þegar það frétti, að hann liefði lent í járnbrautarslys- inu, vildi það allt fyrir iiann gera. „Getum við orðið yður til aðstoð- ar á einhvern hátt, herra,“ sagði hr. Gatley deildarstjóri við liann. Austin skýrði honum frá því, að vegna ásigkomulags síns væri honum algerlega ómögulegt að út- kljá nokkur viðskipti i París og því ætlaði hann að snúa tafarlaust aftur til Lundúna. „Þess vegna vijdi ég gjarnan yfirfæra dálítið fé aftur, og því væri mér það mikil hjálp, ef þér vilduð gefa út þriggja mán- aða víxil á mínu nafni á banka yð- ar i Lundúnum, að uppliæð 4500 sterling'spund," sagði hann, Þessi beiðni var að vísu óvenju- leg ,að þvi er lir. Gatley sagði, en el' lir. Warren vildi gjöra svo vel að ómaka sig aftur í bankann síð- ar sama dag, þá. ... Er Jir. Warren kom aftur til bank- ans, var liann kynntur fyrir sjálfum Rothscliild, sem lét í ljós samúð sína og bað um nánari lýsingu á sjálfu slysinu. Austin lék hlutverk sitt stórkostlega. Hann skýrði frá því helzta viðvíkjandi viðskiptum sínum, er snertu Pullmanjárnbraut- arvagnana. Og er hann lcvaddi hinn tignarlega barón, hafði hann fengið undirskrift hans á víxilinn. Vixileyðublaðið var úr ódýrum bláum pappír, og þegar Austin rakst á sams lconar vixileyðublöð í næstu ritfangaverzlun, keypti hann nokkur þeirra til þess að Mac gæfist færi á að fást við þau síðar meir. Með hjálp þessa óvænta járnbrautarslyss hafði það tekið liann aðeins tæpa tvo sólarhringa að ljúka hinni erfiðu sendiferð, er George liafði sent hann í. Föstudaginn 17. janúar lieimsótti liann svo Francis ofursta í Vestur- útibúinu. „Ég datt svona illilega af liest- baki á veiðum í Warwickshire,“ sagði hann við bankastjórann út- liti sínu til skýringar. „Ég slcrapp frá Birmingham í nolckra daga, en þar hafa mér þegar verið boðnar 3 lóðir til verksmiðjubyggingarinn- ar. Mér fannst því heppilegt að líta inn til yðar i leiðinni.“ Ofurstinn lýsti því yfir, hversu leitt honum þætti að heyra um þetta slys hans. ,Framvegis munu við- skipti mín aukast stórum, ofursti,“ sagði Austin enn fremur, „en ég get samt fullvissað yður um, að víxl- ar mínir munu vera jafn traustir og hingað til eða svipað og þessi hérna.“ Og um leið rétti hann of- urstanum ósköp kæruleysislega víx- ilinn áritaðan af Rothschild sjálfum er hljóðaði á „F.A. Warren“. „Ágætt, hr. Warren,“ sagði of-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.