Úrval - 01.01.1976, Qupperneq 19
VID KOMUM HÉR FYRST
17
unnið að því öllum árum að gera hvorum
öðrum lifið léttbærara. Kirkjur og góð-
gerðastofnanir eiga velunnara í báðum
bæjunum. Katólskar fjölskyldur St.
Stephen sækja messur i kirkju hins
ósnortna getnaðar í Calais. Á hverjum
morgni fara tíu vangefin börn frá Calais
yfir landamærin til að sækja skóla Thelmu
Kilpatrick i St. Stephen. Bandarísk yfir-
völd greiða kennslugjöld og flutning á
þeim á milli eins og þau gengju i
bandarískan skóla. Stúdentar beggja meg-
in árinnar sækja Washington County
tækniháskólann í Calais.
Bæirnir tveir eiga einnig sameiginlegt
dagblað og útvarpsstöð.St. Croix Courier
(útbreiðsla 6500) er gefið út i St. Stephen
„Allir hugsa um Calais OG St. Stephen
sem heimabæ sinn, svo að til að vera
gjaldgengt bæjarblað verðum við að vera
alþjóðleg,” sagði einn af ritstjórunum. í
staðinn hlusta íbúar St. Stephen á
WQDY Caiais, einu sjálfseignar útvarps-
stöðina á svæðinu. Það kynnir sig sem út-
varp beggja bæjanna og flytur fréttir
frá báðum löndunum.
Iþróttir og skemmtanir eru einnig sam-
eiginleg. Á sumrin liggur straumurinn að
St. Croix Valley Drive-In í útjaðri Calais,
sem er eina útileikhús staðarins. Á veturna
liggur leið allra í miðbæ St. Stephen og
til Queen leikhússins, eða að nýja St.
Stephen-Milltown leikvanginum, þar sem
drengir úr báðum bæjunum leika hockey.
Það er því ekki að furða, að svo margir
hafa gifst yfir landamærin, að ólíklegt er
að til sé nokkur fjölskylda í öllum daln-
um, sem ekki á ættingja hinum megin
við breytingu ríkisfangs þeirra, sem flytja
yfir landamærin, en utanaðkomandi mað-
ur ætti erfitt með að átta sig á þjóðerni
sumra fjölskyldna. Bræðurnir Larry og
Millen Nixon frá St. Stephen eru dæmi-
gerðir. Báðir eru þeir giftir stúlkum fra
Calais, en þær eru báðar fæddar í Kanada
af bandarískum foreldrum. Öll búa þau í
St. Stephen, en eiginkonurnar vinna
ennþá bandaríkjamegin. „Hluti af okkur
er í báðum löndunum,” segir frú Larry
Nixon.
Flestir íbúar St. Stephen-Calais hafa
sömu skoðun og Nixon fólkið, en Nixon
er hrjúfur skógarhöggsmaður frá St.
Stephen, sem getur rakið ætt sína til
fyrstu íbúa St. Croix dalsins. Hann út-
skýrði þetta fyrir mig á einfaldan hátt.
„Við„ vitum öll að landamærin eru
hérna,” sagði hann, um leið og hann
tottaði með ánægju pípuna sína, fulla af
bandarísku tóbaki. „En VIÐ komum hér
fyrst.”
AF HVERJU STAFAÐI ÍSÖLDIN?
Sovéskur vísindamaður, Grand Kotsjarov, setti nýlega fram þá kenningu á
alþjóðlegum umræðufundi, að greinileg minnkun sóigeislunnar hafði orsakað
þær miklu loftlagsbreytingar er urðu á ísöld, en ekki jarðfræðilegar umbyltingar
í jörðinni.
Með því að ákvarða skiptingu ísótópanna aluminium-26 og bor-10 1
botnlögum frá ýmsum jarðfræðitímabilum, hefur Kotsjarov tekist að ákvarða
magn sólgeislunar í nokkrar milljónir ára. Jafnframt skráði hann lækkunar-
tímabilin nákvæmlega en eitt þeirra hafði 1 för með sér kólnun jarðkúlunnar.
Samkvæmt kenningum Kotsjarov stafa breytingarnar á geislunarmagni
sólarinnar af innri umbyltiugum í sólkjarnanum.
APN