Úrval - 01.01.1976, Qupperneq 21
ÖRUGGARI MED BYSSU? TRÚIÐ ÞVl EKKI!
19
fann 45-kaiíbera skammbyssu í skúffu.
Lífi hans lauk á fimmta ári.
Juan Diaz, 19 ára drap bróður sinn með
22-kalíbera skammbyssu, þegar vinur hans
rakst í hendi hans. Þeir voru að aefa sig
að skjóta á tómar dósir.
Robert Burns Martin kom heim með
byssu sem hann var að hugsa um að
kaupa. Þegar Fort Carson hermaður var
að skoða byssuna, sem hann hélt að væri
óhlaðin, hljóp skot úr henni. Það hæfði
Súsönnu, konu hans, til ólífis.
Staða, aldur og kynfcrði fórnardýranna
eru mismunandi, en eitt er þó Ijóst að
aðalógnvaldurinn er skammbyssan. (Gert
er ráð fyrir að nærri 30 milljón skamm-
byssur séu í umferð í Bandaríkjunum,
og á hverju ári bætast 2 milljónir við,
lögreglan segir að ný byssa sé seld 16
hverja sekúndu, það er þvl engin furða
að nltjándu hverja mlnútu sé maður skot-
inn með skammbyssu.)
Samkvæmt skoðanakönnunum bæði
Gailups og Harris, vilja tveir þriðju allra
borgara strangari reglur um meðferð
skotvopna þar á meðal skráningu allra
skotfæra og byssuleyfisveitingu til allra
byssueigenda. Samt sem áður hefur þing-
inu gengið illa að setja lög sem heftu
útbreiðslu skotfæra. Tii dæmis, var með
lögum um eftirlit með byssum frá 1968,
reynt að hamla gegn innflutningi á ,,Sat-
urday Night Specials” (Litlar skammbyss-
ur). En lögin bönnuðu ekki innflutning
ósamsettra hluta þeirra. Þess vegna héldu
..Special” byssur áfram að seljast með
methraða. Innfluttar í pörtum og sam-
settar í Bandaríkjunum.
Nokkrir þingmenn. sem vilja banna
algerlega sölu og einkaeign á skammbyss-
um. hafa reynt að ná árangri með því
að höfða til tilfinninga og skynsemi al-
mennings. sérstaklega eftir morðið á
Robert Kennedy og Martin Luther King,
og morðtilraunina á George Wallace,
rtkisstjóra Alabama. En slíkir einstakir
atburðir líða fljótt úr minni almennings.
á meðan sífellt fjölgandi glæpa- og of-
beldisverk gera það ekki. Þvert á móti,
hvetur það hrædda borgarbúa til að
útvega sér enn fleiri vopn sér til varnar.
Aðalhindrun strangari reglugerðar um
meðferð skotvopna er Bandarfska Skot-
félagið, en félagar þess sem telja milljón
eða meira eru atvinnuveiðimenn, sport-
veiðimenn, safnarar og verslunarmenn.
Það berst gegn strangari lagasetningu, en
vill þess í stað að núverandi lögum sé
betur framfylgt.
En sum rök þeirra eru ansi vafasöm.
I einum bæklingi þeirra, ,,Það sem allar
konur ættu að vita um sjálfsvörn” segir:
,,f bæjum og borgum þar sem það er
■ löglegt...., er skotvopn frábær vörn,
þ.e.a.s ef þú kannt að nota það á réttan
hátt og af öryggi.” En hvernig skýtur
óttasiegin kona innbrotsþjóf ,,á réttan
hátt og af öryggi?” Eins og Judy Bowman,
húsmóðir í San Jose, þegar hún skaut
fimmtán ára ungling, sem hún hélt að
væri þjófur? ERU byssur eins góð vörn
eins og skotfélagið heldur fram? Eða eru
þær meiri ógnun venjulegum heimilum
en innbrotsþjófum sem þeim er þó ætlað
að ógna?
I nýlegri könnun á ,öhöppum með
vopn í einkaeign er komist að þessari
niðurstöðu: Byssa í einkaeign ætluð til
verndar er sex sinnum líklegri til að
valda dauða einhvers úr fjölskyldunni en
innbrotsþjófs eða árásarmanns. Mennirnir
sem unnu könnunina, tveir réttarlæknar
og tveir háskólaprófessorar, staðfestu að
ekki minna en 70 af hundraði þeirra sem
drepnir eru með skammbyssu, eru skotn-
ir af fólki sem þeir þekkja, oftast skyld-