Úrval - 01.01.1976, Page 36
34
ORVAL
Þrátt fyrir hið stöðuga annríki veitir hún
sér enn tíma til þess að snæða hádegis-
verð með manni sínum, sem hefur nýlega
látið af störfum fyrir aldurs sakir. Hún er
orðin 65 ára og hefði því getað farið
fram á eftirlaun og látið af störfum fyri
þrem árum. ,,Ég lét af störfum mínum
við skólann í vor,*’ segir hún, ,,en ég
held áfram öðrum störfum minum.
Hvernig get ég lokað eyrunum fyrir hjálp-
arbeiðnunum?”
Sýnilegur árangur. Þegar ég yfirgaf
dvalarheimili dr. Eggs, þægilegt íbúðar-
hús í bænum, gefið af föður vanþroska
barns, voru íbúar þess einmitt að snúa
heimleíðis frá vinnu sinni. Oti á götunni
kastaði aðlaðandi stúlka á mig glaðlegri
kveðju. Það tók mig örstutta stund
að koma henni fyrir mig, en ég hafði
hitt hana sem snöggvast skömmu áður í
heimsókn minni til vernduðu vinnustof-
unnar, þar sem hún vann. Og nú gerði
ég mér grein fyrir því, að eini munurinn
á henni og öðrum vegfarendum á göt-
unni, var fólginn í því, að hún var alveg
sérstaklega lagleg og sérstaklega ánægð
yfir loknu dagsverki, sem hún hafði leyst
vel af hendi. Á þessu augnabliki,
meðan ég skiptist á nokkrum vingjarn-
legum orðum við hana í mannfjöld-
anum á götunni, uppiifði ég það krafta-
verk, sem María Egg hafði mestan hluta
ævi sinnar unnið að því. að framkvæma.
RAFÞORRKON HEYS/
Það er alkunna, að plöntur visna, ef þær verða fyrir rafstraumi. Þetta hafa
litháskir vísindamenn hagnýtt sér I þvi skyni að finna aðferð til þess að
snöggbreyta nýslegnú graginu í þurrhey. Nýslegið grasið er sett á færiband og á
leiðinni á færibandinu ér hleypt í gegnum það mörg þúsund volta raf-
straumi. Grasið þornar á stundinni og verður að þurrheyi, sem hefur mikið
næringargildi þar sem allt innihald þess af fjörefnum og kolvetni varðveitist.
Auk þess vinnst það, að slæm veðurskilyrði eyðileggja ekki lengur heyið.
APN
ÍGOLKERAHROGN GEGN ÆÐAKÖLKUN.
ígulker hafa lengi vakið athygli vísindamanna sökum þess, að hrogn þeirra
hafa sérstakan næringar- og lækningareiginleika. Er því m.a. haldið fram, að
ígulkerahrogn geti komið i veg fyrir eða stöðvað æðakölkun.
ígulkerin hrygna aðeins á sumrin og þá er hrognunum safnað. Það væri hins
vegar kostur, ef unnt væri að safna þeim á öðrum árstímum, og það hefur komið
í ljós að unnt er að breyta hrygningartímanum. Við haflíffræðistofnunina í
Vladivostok er hálfsjálfvirkt sjódýrabúr, þar sem reynt er að skapa igulkerunum
sem best skilyrði. Lifsstarfsemi þeirra er örvuð með þvi að hitastig vatnsins er
smám saman hækkað upp I það mark sem er nauðsynlegt skilyrði hrygningar.
í þessu sjódýrabúri tóku ígulkerin að hrygna án tillits til árstiðar.
Sérfræðingar telja, að þessi nýja aðferð muni ryðja brautina fyrir ígulkera-
hrognarækt sem iðnaði.
APN