Úrval - 01.01.1976, Page 45

Úrval - 01.01.1976, Page 45
ÞEGAR HIMININN RIGNDI ELDI 43 væri ekki lofttóm, og að rafsegulmögnun skipti grundvallarmáii í sólkerfinu og í alheimi yfirleitt. Heita mátti, að stjarn- fræðingar mótmæltu einum rómi. Sama er að segja um Albert Einstein, sem Veli- kovsky hafði þekkt síðan um 1920. Ein- stein var hliðhollur grundvallarskilningi Velikovskys, en neitaði ákaflega þeirri staðhæfingu að rúmið væri mettað af segulsviðum, að sólin og pláneturnar séu hlaðin orku, og að rafsegulmögnun leiki mikið hlutverk í úrverki himintunglanna. I júní bjuggu þeir báðir 1 Princeton, Newjersey. Þá bauðst Velikovsky til þess, í bréfi til Einsteins, að Ieggja niðurstöðuna af rökræðum þeirra um þetta efni undir það, hvort Júplter gæfi frá sér útvarps- merki, eins og hann hafði haldið fram, eða ekki. Einstein svaraði þessu bréfi eins og hann var vanur með því að senda það aftur, en krota athugasemdir út á spásslurnar. I einni athugasemdinni vlsar hann hugmyndinni um útvarpsmerkin á bug. Tíu mánuðum seinna, snemma árs 1955, brá stjörnufræðingum við Carne- gie stofnunina heldur en ekki 1 brún, þegar þeir heyrðu sterk útvarpshljóðmerki streyma frá Júpíter. Þegar Einstein heyrði þessar fréttir, lýsti hann því yfir með áherslu, að hann myndi beita áhrifum sínum til þess að gerðar yrðú tilraunir varðandi kenningar Velikovskys. Níu dögum síðar dó hann — „Heimar 1 höggi” lá opin á skrifborðinu hans. MARS ÖGNAR. Nokkrum öldum eftir^að Venus hafði tvívegis ógnað tilveru jarðarinnar, lá við árekstri við Mars, að því er Velikovsky telur. Á áttunda öld fyrir Krist flosnaði þessi litia pláneta, sem aðeins er einn áttundi af stærð Venusar, upp af spor- braut sinni og fékk nýja braut um sólu, en þessi braut lá hættulega nærri braut Jarð- arinnar. Annálar og gamlar bækur helgar segja frá miklu öngþveiti úti í himin- geimnum, þegar Mars nálgaðist. Jörðin riðaði á braut sinni. Enn hrundu borgir, jarðskjálftar klufu jarðskorpuna og menn fórust 1 náttúruhamförum. Spámennirnir Jesaja, Hósías, Jóel og Amos segja frá þessum hamförum, og þeim er einnig lýst í Illiónskviðum Hómers. Áhrifin af ná- lægð Mars voru ekki llkt þvl eins hrikaleg og af nálægð Venusar, en nógu mikil til þess að hafa áhrif á feril og snúningshraða jarðarinnar. Gamla dagatalið, sem var tólf mánuðir á ári með 30 dögum hver, alls 360 dögum í árinu, var ekki lengur nógu nákvæmt. Næstu tvær aldir, eða áttundu og sjöundu, var tímatalinu breytt um allan heim. Mars kom í nánd við Jörðu á fimmtán ára fresti. I einni slíkri heimsókn segir Velikovsky, að aðdráttarafl hnattanna tveggja hafi leitt til tímabundinnar hraða- röskunar. Frá þvl er sagt í fornum, ísra- elskum heimildum, að sólin hafi flýtt sér til viðar. Hún hrapaði ofan fyrir sjóndeild- arhringinn þó nokkrum klukkustundum áður en hún settist venjulega. Grikkir og fleiri þjóðir tóku eftir þessu sama fyrir- brigði og skráðu það líka. Þótt Mars gerði miklu minni usla en Venus hafði gert sjö öldum fyrr, varð hann nú ráðríkur herguð 1 hofum mannanna. Velikovsky telur, að síðasti alvarlegi fundur jarðarinnar og Mars hafi orðið vorið 687 fyrir Krist. Það ár hélt Senna- sérib, konungur Assiríumanna, með her á móti Hezeklasi, konungi Júda, og ætlaði að nájerúsalem á sitt vald. Að kvöldi 23. mars, páskanótt, blés Mars ,,loga af himni,” sem, samkvæmt Konungabók-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.