Úrval - 01.01.1976, Side 50
48
ORVAL
en það er óskiljanlegt, jafnvel með tilliti
til nútíma steingervingafræði.
í norðurhluta landsins hafa vísinda-
menn fundið I árframburði frá tertier-
tímabilinu leifar af frumhesti með þrjár
tær, merði og stóru dýri af kattaættinni,
sem áður hefur fundist x Evrópu.
Steingervingasaga Mongólíu er mjög
sérstæð. Síðustu 200 milljón ár hefur
landið óslitið verið meginland, en á
flestum öðrum svæðum heims hefur land-
jörðin hvað eftir annað farið undir haf
á þessu tímabili. Komið hefur I ljós, að
Móngólla og stór hluti Mið-Aslu eru dýra-
fræðilegir miðpunktar, þar sem varðveist
hafa fjölbreytilegastar leifar dýrategunda,
fyrst og fremst spendýra.
Mongólla er eitt steingervingaauðugasta
landsvæði veraldar. Fjölbreytni landshátta
mikill fjöldi vatna, sem þar voru eitt
sinn, víðlendar mýrar og hásléttur eiga
þátt I þvl að skapa aðstæður sem eru
mjög vel til þess fállnar að varðveita
steingervingaauðæfi landsins. Hið þurra
loftslag og takmarkaður gróður I Gðbí-
eyðimörkinni skapa ákjósanleg skilyrði til
varðveislu leifa fortlðardýra, og jafnframt
er þar auðvelt að ná til þeirra.
Sovésk-mongólski rannsóknarleiðangur-
inn mun halda áfram störfum fram til
1980.
Maður nokkur sem átti 1 útistöðum við Skattstofuna reyndi að hringja þangað
og kvenmannsrödd svaraði: „Umhverfisvernd, góðan dag.”
Maðurinn baðst afsökunar, og sagðist hafa fengið skakkt númer. Hann iagði á
og valdi síðan rétt númer af mestu nákvæmni. Aftur fékk hann sama svarið.
Hann andvarpaði og sagði slðan: , ,Ef til vill hef ég fengið rétt númer, því þegar
allt kemur til alls er ég að kafna I sköttum.
Konan við eiginmannin: ,,Þú getur aldrei Imyndað þér hvað ég þurfti að fara
I gegnum til að kaupa afmælisgjöfina þlna.”
„Svona, segðu mér það” sagði hann.
„Þá það” svaraði hún. „Ég fór I gegnum vasana þína.”
A.T.
„Ég hef verið I stanslausum megrunarkúr slðustu tvo áratugi”, segir
húmoristinn Erma Bombeck. „Ég hef léttst um 320 kíló 1 allt. Ef allt væri með
felldu ættu ekki einu sinni skinin beinin að vera eftir.”
P.H.S.
Háskólastúdent var I heimsókn hjá fjölskyldu unnustu sinnar. Sex ára gamall
bróðir hennar spurði: „Hvað gerir þú?” „Ég geng I skóla” svaraði stúdentinn.
Drengurinn var auðsýnilega ruglaður en spurði samt, „En hvað ertu gamall?”
„Tuttugu ogsex” svaraði ungi maðurinn. „Vá” sagði drengurinn með aðdáun
I röddinni. „Ég er viss um að þú getur ráðið við alla I þínum bekk!”
S.V.