Úrval - 01.01.1976, Síða 60
58
ergeisli kveikir eld .1 eldspýtu brcnnir
rubinlasergeisli stykki úr eldspýtunni, án
þess að kveikja eld 1 henni — hann borar
sig í gegnum tréð eins og örmjó „Ijósnál”.
Hinn geislaði vefur nær ekki að hitna,
I honum verður aðeins örsmá sprenging
er skilur eftir einskonar borholu.
Gert hefur verið sérstakt ljósfræðilegt
kcrfi, sem gerir það kleift að beina orku
Ijósgeislans beint að ákveðnum punkti, án
þess að skaða augað. Nákvæmnisstill-
ing er gerð áður með hjálp lágverkunar-
lasers af helium-neon gerð, en bylgju-
lengd hans er svipuð og rubinlasers. Með
þessu er komið í veg fyrir mistakahættu
sem stafar af geisladreifingu ljóssins, er
það brotnar í linsu, eins og óhjákvæmi-
lega verður, ef notaður er venjulegur
rafmagnslampi við innstillinguna.
15-20 ,,stungur” með ,, 1 jósnálinni
nægja til að opna nægilegan fjölda stífl-
aðra æða I hinum sýkta hluta augans.
Nefnist aðferðin laser-gonio stunga. Er
hún sársaukalaus. Það eina, sem sjúkling-
urinn finnur, er högg, sem hann er viðbú-
inn. Eftir meðferðina, sem aðeins tekur
nokkrar mínútur og hægt er að fram-
kvæma á sjúkrahúsum, getur sjúklingur-
inn strax farið heim eða til vinnu sinnar.
Eftir þrjá daga, — stundum strax eftir
laser-gonio stunguna —, lækkar vökva-
þrýstingurinn I auganu og vökvastreymi
hefst að nýju.
Árangur meðferðarinnar varir minnst
tvo mánuði, en venjulega um ár eða
meira. Aðgerðina má endurtaka svo oft
sem þörf krefur.
Á slðustu þrem árum hafa 136 gláku-
sjúklingar I Sovétrlkjunum fengið laser-
gonio stungu meðferð. I öllum tilfellum
l efði annars verið þörf uppskurðar. Las-
. imeðfcrð mun 1 framtíðinni geta komið í
stað skurðaðgerðar við gláku. a.m.k. að
nokkru leyti.
Ég heyrði á tal tveggja manna I strætisvagni þegar þeir ræddu gildi Iþrótta-
iðkunnar.
,,Ég keypti mér tvlhjól,” sagði sá fyrsti.
„Notarðu það mikið?,” spurði sessunautur hans.
,,Ég er alltaf að,” var svarið. ,,Ég flyt það úr einu horni bílskúrsins 1 annað. ”
N.D.
,,Veistu það, ástin mln.” sagði ungi maðurinn, ,,slðan ég kynntist þér get ég
hvorki sofið, borðað né drukkið...”
,,Þvl ekki?”
,,Ég er blankur.”
K.V.
Nýgift kona var að hrósa manninum slnum: ..Hann er jafn hæfur og forsetinn.
Hann býr sjálfur til morgunmatinn sinn.”
S.F.