Úrval - 01.01.1976, Side 64
62
tJRVAL
stæðingar, sléttuúlfurinn og veiðimaður-
inn, baráttu sín á milli, vitsmunalega
baráttu. Hvað eftir annað gekk Pullins
frá gildrunni á nýjan leik, en sléttuúlf-
urinn gróf hana alltaf upp og gerði
hana óvirka með því að fella hana.
Þá skaut Pullins sléttuhund, tróð
honum að hálfu leyti undir flata klöpp
nálægt slóðinni og gróf fjórar gildrur
nálægt henni. Þegar hann vitjaði giidr-
anna, höfðu þær allar verið grafnar upp,
og sléttuúlfurinn hafði siðan haldið burt
með sléttuhundinn. ,,Það var eins og
hann tæki þetta sem leik,” sagði Pullins
aðdáunarrómi.
Eftir sex mánaða þóf bar Pullins loks
sigur úr býtum. ,,Þegar ég fann sléttu-
úlfinn í gildrunni,” sagði hann, ,,leit
hann upp til mín með svip, sem virtist
gefa til kynna, að hann hugsaði eitthvað
á þessa leið: Ég lá heldur betur i því
núna.”
Pullins ber mikla virðingu fyrir sléttu-
úlfinum, sem hann hefur hundelt svo
lengi. En það gera lika aðrir, sem þekkja
dýr þetta best. Sléttuúlfurinn kann að vera
athyglisverðasta villta dýtið, sem fyrir
finnst i gervallri Norður-Ameríku. Onnur
villt dýr, svo sem úlfar, grábirnir, svart-
fættir merðir og sköllóttu ernirnir í
Suðurríkjunum, eru nú næstum horfin,
vegna ásóknar plóga, girðinga, skógar-
elda, dýragildra og byssa. En slétruúifur-
inn á auðvelt mað að laga sig að
aðstæðum. Og hahn hefur ekki aðeins
haldið velli, heldur þrifist vel þrátt fyrir
ásókn siðmenningarinnar.
Hann er gæddur mikilli eðlisgreind
og furðulegum næmleika gagnvart hverri
þeirri hættu, sem að honum steðjar.
Þessi litli „sönghundur” sléttanna miklu,
hefur læðst um landið þvert og endilangt.
rannsakað nýja staði, prófað nýjar fæðu-
tegundir og nýjar hættur og orðið sú
hetja meðal villtra dýra, er haldið hefur
velli sem sönn hetja. Hann hefur aukið
landvinninga sína, suður á bóginn allt
til Mið-Ameríkuríkjanna, norður á bóginn
allt til heimskautastrandar Alaska og
austur á bóginn allt til Atlantshafsstrand-
arinnar. Nú orðið finnast þeir í langflest-
um fylkjum Bandaríkjanna. Enn fremur
hafa þeir nálgast borgirnar í æ ríkara mæli
(eða borgirnar sléttuúlfana). Ibúar Tor-
onto í Kanada eru ekki lengur undrandi,
þegar þeir heyra söng sléttuúlfsins. Og
það eru líklega ekki eins margir sléttu-
úlfar I neinni annarri borg og Los Angeles,
sem er 464 fermílur að stærð, en þaðan
berst ýlfur þessara sönghunda á hverri
nóttu neðan úr Hollywoodhæðunum og
stundum sjást þeir jafnvel lepja klórvatn-
ið úr dýrustu sundlaugum heims, sem
þar er að finna.
BRÁÐGÁFAÐIR TRÚÐAR.
Meðalhæð karldýrsins er um 21 þuml-
ungur, mæld frá bóg, og þyngdin um 23
pund. Kvendýrið er svolítið minna. Sléttu
úlfurinn er fremur síðhærður og feldurinn
er nokkuð úfinn. Hann hefur oddmjó
uppreist eyru og bústna, lafandi rófu.
Hann er að mestu leyti grár, svolítið gul-
leitur á síðum og hálsi, en svartur á fram-
fótum, rófubroddi og við rófurætur.
Þeir, sem hafa haft tækifæri til þess
að fylgjast með lifnaðarháttum sléttu-
úlfsins, lýsa veiðiaðferðum hans, því
áliti sínu til sönnunar, að hann sé bráð-
gáfaður. Meðan einn sléttuúlfur eltir
kanínu, blður annar stundum á bak við
runna og stekkur svo á bráðina, þegar hún
hleypur fram hjá. Þjóðsagnafræðingurinn
Frank Dobie skýrði eitt sinn frá sléttu-
úlfi, sem stökk upp 1 loftið með stífar
lappir, viðhafði ýmis önnur fíflalæti
frammi fyrir héra, sem stóð grafkyrr af