Úrval - 01.01.1976, Síða 69
HVAD BLÖÐÍÐ OG ÞVAGIÐ SEGIR UM ÞIG
67
Rauðu blóðkornin sjá öllum líkamsvefj-
um fvrir súrefni, sem er sannkailaður
lífgjafi. Hæfni blóðkornanna til þtss
að flytja súrefni er komið undir blóð
rauðanum, en svo nefnist efni í blóð-
kornsfrumunum, sem inmheldur járn og
veitir blóðinu hinn rauða lit þess. Sé
um að ræða skort á rauðum blóðkornum
eða sé litur þeirra fölur, merkir það, að
líkaminn fái ekki nægilegt súrefni, og
læknirinn greinir sjúkdóminn sem blóð-
leysi.
Stundum orsakast blóðleysi af járn-
eða bætiefnaskorti fæðunnar. Oftar kem-
ur hann þó fram vegna þess, að bein-
mergurinn er ekki fær um að framleiða
rauð blóðkorn í nægum mæli eða vegna
blððmissis, sem hefuí oft og tíðum ekki
uppgötvast fyrr en við prófunina. Lág
tala rauðra blóðkoina getur þvi veitt
lækninum upplýsingar, sem gera það að
verkum, að honum finnst ráðlegt.að leita
að maga- eða skeifugarnarsárum eða öðr-
unt duldum orsökum blððmissis.
Sé tala rauðu blóðkornanna aftur á móti
of há, getur slíkt bent til blóðtalnamergð-
ar, en sltkur kvilli getur stafað af ónógu
súrefni í vefjunum og viðleitni líkamans
til þess að bæta sér slíkt upp með þvi
að framleiða fleiri rauð blóðkorn. (Fólk,
sem býr hátt yfir sjávarmáli og þeir, sem
þjást af lungnaþembu eða arfgengum
hjartasjúkdómum, geta einnig sýnt sams
konar merki; of háa tölu rauðra blóð-
korna).
Stærð og lögun blóðkornanna í blóð-
sýninu eru einnig þýðingarmikil. óeðli-
lega stór blóðkorn eða frávik frá hinni
cðlilegu hringlög'un geta komið fram,
þcgar um alvarlegt blððlevsi er að ræða.
Illkynjað blóðleysi. sem tíðast er meðal
svcrtingja, dregur til dæmis nafn sitt af
blóðkornum, sem eru eins og sigð I
laginu.
Hvít blððkorn, sem kölluð eru
„leukocyte”, eru talin á næstum sama
hátt og þau rauðu. Þau eru venjulega
frá 5.000 til 10.000 í hverjum rúmmilli-
lítra blóðs. Frávik í tíðni þeirra getur
einnig gefið til kynna sjúkdóma í lík-
amanum. Eittafhelstu hlutverkum hvítu
blóðkornanna er að ráðast gegn sýklum
eða öðrum framandi innrásarseggjum og
eyða þeim. (Gröftur sá, sem myndast í
kringum flís, samanstendur til dæmis að
mestu leyti af hvitum blóðkornum I fljót-
andi formi). Aukin tíðni hvitu blóð-
kornanna gefur þannig til kynna, að um sé
að ræða sýkingu einhvers staðar I líkaman-
um. Komist fjöldi þeirra upp í 15.000,
getur slikt verið staðfesting á því, að um
botnlangabólgu sé að ræða eða einhvern
leyndan sjúkdóm, sem læknirinn leitar
síðan að.
Aðrar prófanir veita lækninum þínum
einhverjar upplýsingar um þau hundruð
efna, sem berast um líkama þinn með
blóðvökvanum, hinum tæra, dálítið gul-
leita vökva, sem myndar um helming
blóðmagnsins. Auk rauðra og hvítra
blóðkorna flytur hann næringarefni (úr
meltri fæðu), vakaefni (hormóna) frá
kirtlum, sölt, sem nauðsynleg eru til þess
að viðhalda nákvæmu jafnvægi líkams-
vökva og halda rafkerfi líkamans í réttu
horfi. hvataefni (enzym, sem koma af stað
efnaskiptum í hinum kemisku úrvinnslu-
verksmiðjum, er starfa inni í likamsfrum-
unum, og úrgangsefni, sem komafram við
efnaskipti.
Magn slíkra efna í blóðinu, skortur
þcirra eða ofurgnægð, veitir geysilegar
upplýsingar um heilsu þina. Vél, sem
kölluð er SMA-12 (Sequential Multiple
Analyzer), blóðgreiningarvél, þarf aðeins