Úrval - 01.01.1976, Side 86

Úrval - 01.01.1976, Side 86
84 ÚRVAL Bentley hafði lækkað röddina í varúðar- skyni og sagði frá áliti sínu á lífinu yfir- leitt, en þó sérstaklega á CPH, Orðfærið var skelfilegt. ,, Hvar lærðirðu öll þessi orð ? ’ ’ í fyrstu vildi Bentley ekki svara. Svo lækkaði hann röddina ennþá meira og sagði: Ég er í félagi, sem bróðir minn stofnaði, FFKK.” ,,Hvað þýðir það?” ,,Félag fyrir kjaftfora krakka. Næst þegar ég kem heim, bæti ég við mig hellingi af orðum.” Bentley var reiður út í heiminn og var tilbúinn að berjast við hann. Fyrri reynsla af sjúkrahúsinu kom honum að góðu gagni. Hann vissi hvernig dagurinn gekk fyrir sig — og hann vissi, að jafnvel þótt húsgögnin væru úr málmi, var hægt að skemma þau með því að sparka nógu fast og nógu lengi í þau. Á fyrstu vikunni tók hann nokkur æðisköst. Þegar matur- inn í matsalnum barst ekki nógu fljótt til hans, sveiflaði hann hendinni yfir borðið og þeytti því, sem á því var, í allar áttir. ,,Ég skil ekki helminginn af því, sem hann segir,” sagði hjúkrunarkona við fröken Williams. ,,Og Bentley gerir það ekki heldur”. ,,Af hverju notar hann þessi orð, ef hann skilur þau ekki?” „Bentley er hræddur við náinn kunn- ingsskap. Ef hann notar óvenjulegt mál, heldur hann fólki í hæfilegri fjarlægð. Hann hefur verið yfirgefinn tvisvar, og hann þolir ekki að tapa einu sinni enn.” Skeezer hélt áfram að fá sinn skerf af skömmunum. Bentley sparkaði í hana og misþyrmdi; eitt sinn reyndi hann meira að segja að slíta af henni augnhárin. „Það má teljast furðulegt, að Skeezer skuli ekki ráðast á hann,” sagði ein hjúkrunarkonan. „Skeezer lætur engan misbjóða sér,” sagði fröken Williams. „Hún meðhöndlar börnin á sinn hátt. Hún gengur I burtu — og áhugaleysi hennar er særandi. Það skeður sjaldan tvisvar. Kvöld nokkurt, þegar fy.örnin voru farin í íþróttir, var þögnin rofin af óhljóðum, hröðu fótataki og ljótum munnsöfnuði. Það lék enginn vafi á hvaðan þau komu - umsjónarmaður var á leið með Bentley til skrifstofu fröken Williams. „Þú ert alltaf að skamma mig, en þetta var allt honum að kenna!” orðin enduðu í reiðiöskri. , ,Vertu nú hægur, Bentley. ’ ’ „Ég skal drepa hann. Hann er tík!” Þeir fóru inn í dagstofuna. Smám saman minnkuðu óhljóðin. Þeir voru komnir inn á skrifstofu fröken Williams. „Bentley er óður,” sagði hann. „Hann tapaði í leik og lét það bitna á næsta dreng með þvi að bíta og sparka. Ég kom með hann, svo hann gæti róast.” Það var enga undrun að sjá á fröken Williams. Þetta var daglegt brauð á stofnuninni. „Bentley á erfitt með að haga sér rétt, þegar hann er svona spennt- ur. Hann má vera hér. ’ ’ Bentley teygði alla skanka út frá sér í stólnum og var fúll á svip, þegar fröken Williams snéri sér að honum. „Hvernig væri að þú hjálpaðir mér að raða spil- unum í þessum kassa?’ ’ „Ekki fyrir þig, tíkin þín.” „Og áður en þú gerir það, skaltu þvo þér í framan. Þá liður þér betur.” Fröken Williams snéri sér aftur að skrifborðinu sinu. Skömmu síðar birtist Bentley i dyrun- um, skyrtan var blaut og andlitið hreint. Fröken Williams beindi athygli hans
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.