Úrval - 01.01.1976, Side 106
104
Utsýni yfir Bosporus í átt að hinum
evrópska hluta Istanbul, með Hagis Sofia
til vinstri og Bláu moskuna til hcegri.
ÚRVAL
105
ÆVINTÝRALEGA
ISTANBUL
I þessari heillandi borg mætast
austur og vestur, ævaforn saga og
sprelllifandi nútíminn.
— Stewart James —
stanbul er eina borgin í
heiminum, sem stendur í
tveimur heimsálfum. Hún
var grundvölluð 657 árum
áður en tímatal okkar hefst,
og stofnandi hennar var
grikkinn Byzas, og hann leitaði ráða hjá
véfréttinni í Deifí, áður en hann ákvað
að reisa þessa borg heggja vegna Bospor-
us, mjóa sundsins milli Evrópu og Aslu.
Byzantium, en svo hét borgin fyrst,
fékk þannig fágætt borgarstæði. Allir, sem
notuðu þessa aðal samgönguæð milli
austurs og vesturs, urðu að gjalda borg-
inni toll og eiga þar viðskipti. Það leiddi
tii þess, að þar söfnuðust saman óhemju
auðævi, og borgin varð freistandi takmark
fjölmargra stríðskappa á öilum öidum.
Frá 330 til 1453, þegar Tyrkir tóku
borgina, hét hún Konstantínópel. Nú á
dögum eru það ferðamenn en ekki bar-
dagahetjur, sem gera innrásirí Istanbul —
þessa stórkostlegu borg, þar sem hvarvetna
má finna vængjaþyt sögunnar. Heilir
flotar af farþegaskipum og langferðabíl-
um helia hiassi eftir hlassi af fólki með
menningaráhuga og innkaupafíkn út á
götur, sem tíminn virðist ekki hafa snort-
ið, en ólga af lífi'og önnum sólarhring-
inn á enda. Bændurnir standa uppi t
vpgnum sínum, þegar þeir koma akandi
niður á torgið með vörurnar, og minna
töluvert á hellenskar kappaksturshetjur.
Fiskur er steiktur í litlum veitingastöðum,
vatssalar bjóða drykkjarvatn, íssalarnir
mæla hástöfum með vöru sinni. Skrifarar
lesa upphátt fyrir þá, sem kunna ekki að
lésa eða skrifa, og skrifa fyrir þá bréf, og
fá sér biund milli viðskiptavina. Umferð-
in sýnist standa næstum kyrr á götunum,
aðeins endrum og eins verður svolítil
hreyfing í röðunum, þar sem bílarnir eru
flestir stórir, amerískir drekar frá sjötta
áratugnum. Þeir eru flestir notaðir sem
leiguvagnar og alltaf troðfullir af farþeg-
I björtu veðri má sjá frá hinum evrópska
hluta Istanbul yfir til Skutari, hins asíska
borgarhluta þar sem ávöl Anatolifjöllin
eru í baksýn. Yfir sundið gengur heims-
ins stærsta safn af ferjum fram og aftur.
Láti maður augun hvarfla um útsýnið,
má sjá, án þess að hreyfa höfuðið stórlega
444 moskur, 210 kirkjur, fjölmargar sol-
dánahailir og þar að auki háskóla, sem
stofnaður var 1453.
Paradís fyrir kaupaglaða. Ankara, sem
er 360 kílómetrum lengra til austurs, er
nú til dags höfuðborg Tyrklands. Samt er
Istanbul enrtþá hin efnahagslega, iðnaðar-
lega og verslunarlega höfuðborg landsins.
um.