Úrval - 01.01.1976, Síða 122
120
Orval
mögulcikana á því að nota loftskip til
vöruflutninga.
Það, sem er svona lokkandi við loft-
skipin, er að þau þurfa ekki óralangar
flugbrautir til flugtaks og lendingar,
farmurinn hristist ekki eða verður fyrir
snöggum rykkjum, loftskipið má ferma
og afferma án allra þeirra ókosta, sem
bundnir eru járnbrauta- eða skipaflutn-
ingum, það lendir og hefur sig á loft til-
tölulega hávaðalaust — samanborið við
gnýinn á hinum yfirfullu flugvöllum
nútímans.
Loftskipið er sem sagt óvenjulega fjöl-
hæft farartæki. Það gæti flutt birgðir til
dæmis til iðnaðarsvæða á freðmýrum Sí-
beríu, þar sem hvorki er hægt að leggja
vegi eða gera flugvelli, og það getur rétt
eins lent í miðju þéttbýli, þar sem vélar-
hljóð þess ylli engum truflunum og ekki
þarf að gera sérstakar ráðstafanir til að
rýma fyrir þeim.
Það er þess vegna vel mögulegt, að
loftskipin komi einhverntíma aftur, og
fari kannski aðra eins sigurför og þegar
LZ 127 kom aftur eftir ferð sína umhverfis
heiminn á 20 dögum.
Fjöldi gesta á bandarískum veitingastöðum, sem biðja um poka til að fara
með leyfarnar í heim handa hundinum sínum, er 9,2% meiri en allur hunda-
fjöldi Bandaríkjanna.
PartsPups.
Meginverkefni góðra gestgjafa er að sjá um að gestum þeirra líði vel
í samkvæminu. Rétt? Rangt, segja Myser-hjónin t St. Paul, sem haida iðulega
samkvæmi. Að þeirra mati er það aðalmarkmið með samkvæmi, að þeir sem
veita það, skemmti sér vel. f ritgerð, sem hcitir ,,Hvernig letinginn á
að halda partý” skýra þau frá þvt, að þáu geri ekkert í samkvæmum sínum
annaðenaðskemmtasér. Gestirnirgeraallt.sem geraþarf.
Þegar John Myser varð fertugur, komu 102 gestir. Hver gestur fékk miða,
sem á var skrifað hvað hann ætti að gera. I sumum tilfellum var tilgreindur
ttmi, svo sem: ,,Afgreiða á barnum frá 9-9.30.” Það var meira að segja tilgreint,
hverjir ættu að taka Ijósmyndir og hverjir kvikmyndir. Hver gestur fékk svo
eintak af fyrrgreindri ritgerð, sem hefur tileinkunina: ,,Vitur maður mælti
forðum: „Láttu einhvern gera þér greiða, og hann vcrður ævilangur vinur
þinn. ” Við vonum, að viðverðum vinir ykkar alla ævi.”
Myser-hjónin segja, að tvennt vinnist með þessari aðfcrð. Með því að vinna
saman fá gestirnir betra tækifæri til að kynnast. Og þeir gæta stn betur að
brjótaekkerteðaskemma.
Þcgar síðasti gesturinn var farinn, voru Myser-hjónin enn í fullu fjöri.
Pat Mysersagði: , ,Öllum leið vel. Sérstaklegaokkur.
RobertT. Smith.