Úrval - 01.01.1976, Side 128

Úrval - 01.01.1976, Side 128
126 ÚRVAL þóknast, en hún hættir að halda upp S þá, sem haga sér eíns og hún sé ekki fyllilega fær um að ala afkvæmi sitt upp. Konur geta tímum saman rætt skapgerð barna sinna við aðrar konur, eða samband sitt við eiginmanninn. En konur, sem þannig rekja raunir sínar, hrökkva undan, þegar trúnaðarvinkonan kemur með of beinar ráðieggingar. Það sem önnur telur stuðning, kann hin að telja afskiptasemi. Hinn gullni meðalvegur er vandþræddur. Konur læra að vera diplómatískar, en dip- lómötum getur orðið á í messunni eins og öðrum. Konan getur orðið sérlega viðkvæm fyrir gagnrýni, sérstakiega ef hún kemst að því, að það sem hún sagði annarri konu í trúnaði, hefur síast út til fleiri. Þess konar söguburður (sem kallaður hefur verið tómstundagaman hinna verk- efnalitiu), stafar iíklega fremur af öryggis- leysi og forvitni fremur en illgirni. Konur ..kjafta frá” leyndarmáium annarra kvenna til þess að prófa eða fá stuðning við sínar eigin hugsanir og hegðun. Þær cru að koma sér upp nothæfum siðarcglum. pg, þær leita tii samfélags kvenna til þess að komast.að þvi, hvort þéirra eigin hugmyndit úm kórrétta hegðun'. eiga ser endurspeglun hjá öðrum. konum. En ef ekki er . beitt' ýtrustu . tillitssemi og kurteísi allra þeirrá/sem hlut eiga að máli, kann vinskapurinn að véslast upp og sálast. Svarið er, að konunni hefur, verið inn- prentað að heimur karlsins og starf hans' sé raunverulegra en þeirra. Þess vegna dengja þær- ,,ómerkilegum'’ leyndarmálum vfir vinkonur sínar, vanda- málum, sem þær telja fyrir neðan virðingu eiginmannsins. Ef til vill er jákvæðasti árangur sjálfskönnunar námshópanna, sem skotið hafa upp kollinum á þessum áratug sá, að konurnar læra að líta á kvennarabbið og „leyndarmálin” — eins alvarlega og þessi mál verðskulda. Og það hefur leitt til betri hjónabanda. Samt eru ennþá til hlutir, sem konur trúa vinkonum sínum fyrir, en myndu nauðugar segja nokkurri karlskepnu. Ég veit um konur, sem af ótta við að vera stimplaðar „ókvenlegar” hafa logið sann- færandi að lækni sínum eða sálfræðingi um kynlíf sitt, og haldið því fram að þær fengju fullnægingu hverju sinni, þegar það 1 rauninni er ekki þannig. Konur leyna því gjarnan fyrir körlum, sem þeim þykir vænt um, að þær séu ófullnægðar. En þær segja það ánnarri konu og treysta henni til að þegja yfir því. Þær spjalla um fósturlát og getnaðar- varnir hver við aðra, en ekki við presta slna eða sálgæslumenn. Þær þjóna sem hver annarrar skriftamóðir og sálfræðingur Konur styðja hver aðra á erfiðleika- tímum og telja kjark hver í aðra. En að eiga I erfiðleikum og sýna_kjark er eitt. Að eiga stöðugt í erfiðleikum er annað. Kona getur ekki kvartað án afláts yfir ófullkomleik eiginmanns sins, án þess að finnast að lokum að hún sé annað hvort svikari eðá kjáni; óg hvort sem vérður eru miklar likur tii, að þar með endi vinskapurinn við trúnaðarvinkonuna. Hún finnur á sér, að fyrirlitning vinkon- unnar er óhjákvæmileg, eða þá að hún fær foragt á sjálfri sér fyrir að hafa ekki hugrekki til að gera eitthvað í sínum cigin tilfinningamálum. Og hún fer að forðast vinkonuna, sem veit of margt um hana. Því verður ekki á móti mælt, að það er viss hætta fólgin í þvi að segja öðrum frá leyndarmálum sinum. Tvöfalt sam- band og áköf einbeidng. að tilfinninga- málunum yekur konum sektartilfinningu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.