Úrval - 01.10.1976, Side 50

Úrval - 01.10.1976, Side 50
48 Connecticutfylki, fyrir tíu árum, þegar hann hafði mikla þörf fyrir vatn á búgarðinum sínum og fór að leita að því upp á eigin spýtur. Baum hafði sjálfur verið vantrúaður á slíkar vatnsleitaraðferðir, en hann skipti um skoðun árið 1950, þegar hann lét til leiðast að slást í för með vini sínum, sem fór í slíkan vatns- leitarleiðangur. Og það leið ekki á löngu þangað til fólk var farið að kalla hann vatnsleitarmann eða jafnvel vatnsgaldramann eða vatnsvitring. Og síðan hefur hann fundið um 25 vatnsuppsprettur fyrir ýmsa og jafnvel skrifað bók um þetta efni (,,The Beginner’s Handbook ofDowsing” útg. Crown). Þess konar eðlislægur hæfileiki til þess að finna vatn hefur töfrað mann- kynið öldum saman. Sagt er, að Sir Isaac Newton hafi reynt slíkar vatns- leitaraðferðir og haft mikinn áhuga á þeim, þótt hann hafi ekki getað fundið viðhlítandi skýringu. Einnig er sagt, að Thomas Edison hafi skýrt þetta með því, að hér væri um áhrif rafmagns að ræða, en Albert Ein- stein áleit, að skýringarinnar væri að leita á sviði rafsegulmagnsins. Hið bandaríska félag vatnsleitarmanna giskar á, að uppsprettur næstum 250.000 brunna, sem grafnir hafa verið á Atlantshafsströnd Banda- ríkjanna frá því á nýlendutímunum, hafi einmitt fundist á þennan hátt. Núna leggja um 25.000 manna í Bandaríkjunum smnd á þessa dular- fullu list, en milljónir í viðbót búa ORVAL yfir þessum hæfileika til þess að finna vatn. Slíkar vatnsleitaraðferðir teljast til þeirra fyrirbrigða, sem erfltt virðist að henda reiður á og menn verða seint ásáttir um, þar eð sumir álíta, að þar sé um staðreyndir að ræða, en aðrir, að þetta sé einber heila- spuni. Þeir vantrúuðu henda gys að þessu, og segja, að þetta sé órökrétt, fáránlegt og óhugsanlegt í vísindaleg- um skilningi. (Vatnsleitarmennirnir með forkinn benda á hinn bóginn á, að hunangsflugur geti ekki flogið samkvæmt lögmálum flugeðlisfræð- innar). Jarðfræðingar halda því fram, að víða sé hægt að finna vatn, hvar sem grafið er. En þá spyrja þessir vatnsleitarmenn, hvers vegna þeir geti sjálfir oft fundið vatn þar sem þjálfaðir jarðfræðingar hafa gefist upp. Sem dæmi mætti nefna New Sharon í Mainefylki, lítinn bæ, þar sem svo mikill vatnsskortur ríkti þangað til í fyrrasumar, að bæjar- búar máttu ekki baða sig nema einu sinni í viku, Á fimm árum hafði bæjarfélagið fengið 180.000 dollara ríkislán til jarðfræðilegra athugana og vatnsleitar og eytt því öllu án árangurs. Grafnir höfðu verið margir djúpir bmnnar, en ekkert vatn fundist. Bæjarembættismenn gripu þá að síðustu til þess ráðs að ráða vatnsleitarmann af ,,trjágreinaskól- anum” til vatnsleitar fyrir 500 dollara þóknun. Og með hjálp grein- arinnar sinnar benti hann fljótlega á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.