Úrval - 01.10.1976, Blaðsíða 70
68
URVAL
heimilisins, þegar manni hennar var
sagt upp starfi, og hélt síðan áfram í
starfi sínu, eftir að hann hafði fengið
annað starf, hefur komist að raun um
að starf hennar utan heimilisins hefur
valdið miklum átökum innan fjöl-
skyldunnar. Nýlega keypti hún bíl
fyrir sínar eigin tekjur, en án leyfis
eiginmanns síns. Hún segir, að hann
hafi orðið svo reiður, að „hann vilji
ekki stíga fæti sínum inn í bílinn.”.
Flestar fjármálarimmur fjöl-
skyldna, jafnvel þær, sem orsakast af
erfiðum tilfinningaflækjum, er hægt
að útkljá, ,,ef góður vilji er fyrir
hendi” segir Williamson. Oft er
hægt að gera út um mísklíð með því
að hafa betra skipulag á hlutunum.
Hjónum hættir minna til þess að
rífast, þegar þau vita nákvæmlega,
hver eyddi hverju í hvað. í heimilis-
fjárhagsáætlun er einnig hægt að taka
tillit til þarfa og óska bæði eigin-
manns og eiginkonu. Hægt er að gera
út um annars konar misklíð með því
að mætast á miðri leið og stundum
einnig með endanlegum úrskurði og
fyrirmælum foreldra, þegar misklíðin
tekur einnig til barnanna.
Fjármálarimmur innan fjölskyld-
unnar þurfa ekki endilega að vera af
hinu illa. Það er hægt að vera
ósammála á heilbrigðan og eðlilegan
hátt. Foreldrar ættu ekki að fela þá
staðreynd fyrir börnum sínum, að
þeir séu ekki ætíð á einu máli í
fjármálum.
„Samningaumleitan, sem leiðir til
endanlegrar ákvörðunar, er mjög
þroskandi lífsreynsla fyrir börn,”
segir Williamson. En hann varar
einnig við „endurteknum rimm-
um, sem einkennast af heiftar-
legri reiði og leiða hvorki til ákvarð-
anatöku né breytinga.” Sálfræðing-
urinnjoyce Brothers hefur þessu við
að bæta: ,,Sjái börnin foreldra sína
aldrei skipta skapi, nema þegar þeir
eru að rífast um peninga, verða
peningar ótrúlega þýðingarmikilir að
þeirra mati.”
Flestir fjölskylduráðgjafar hvetja
foreldra til þess að sýna börnum
sínum fyllstu hreinskilni í fjármál-
um. Hafí börn þekkingu áfjármálum
fjölskyldunnar þegar á unga aldri,
býr slíkt þau undir að geta haft fé
með höndum og ráðstafað því af
ábyrgðartilfinningu, þegar þau verða
fullorðin. En það gildir hið sama urh
peninga og kynferðismál, að foreldr-
ar ættu ekki að byrja skyndilega á því
til dæmis þegar barnið verður 13 ára,
að ræða við það um fjármál. Umræð-
ur um fjármál og önnur verðmæti, og
gildismat, sem fjölskylduna varða,
ættu að þróast stig af stigi, eftir því
sem barnið verður eldra. Foreldrar,
sem láta það undir höfuð leggjast að
ræða málin af einlægni við börnin og
að viðhalda þannig frjálsum tjáskipt-
um, kunna að verða fyrir miklum
vonbrigðum, þegar barnið verður að
unglingi, sem vill fara sínar eigin
götur og ráða sér sjálfur.
Börnum á barnaskólaaldri þarf
ekki að skýra mjög ítarlega frá
fjármálum fjöslyldunnar. Það ætti