Úrval - 01.10.1976, Side 76
74
URVAL
kvæmilegt. Dr. Charles A. Bush við
hjartadeild sjúkrahússins sprautaði
hann með nýju hjartaörvunarlyfi í
æð. Efni þetta heitir dobutamine.
Það var komið til hjarta bóndans að
nokkrum sekúndum liðnum. Berg-
málshjartaritunartæki, nýtt hátíðni-
hljóðskynjunartæki, sem mælir bæði
stærð og starfsemi hjartans, tók nú að
sýna innan einnar klukkustundar, að
hjarta bóndans var farið að dragast
saman aftur og starfsemi þess að
styrkjast. Tæki, sem fest var á hálsinn
og líktist einna helst hljóðnema,
mældi örari og styrkari slátt hálsslag-
æðar, sem lá að heilanum.
Innan 12 tíma sýndi kannari, sem
komið hafði verið fyrir í öðru
lunganu, minkaðan þrýsting í vinstra
afturhólfi hjartans, aðaldæluhólfinu.
Hjartslátturinn hafði minnkað úr 120
slögum á mínútu, sem var of hraður
hjartsláttur, niður fyrir 100 slög og
nýru bóndans fóru að losa líkamann
við umframlíkamsvessa. Að nokkrum
dögum liðnum hafði hann lést um 20
pund, og bungan undir sænginni
hjaðnaði smám saman. Tíu dögum
eftir að hann var borinn á sjúkra-
börum inn í sjúkrahúsið, gekk hann
út úr því og bar sjálfur töskuna sína.
Þessi óvenjulega heppni bóndi er
einn af 340 bandarískum sjúklingum.,
sem hafa notið dobutaminemeð-
höndlunar í lækningatilraunum, en
árangur þeirra er nú verið að vega og
meta af Matvæla- og lyftaeftirliti
Bandaríkjanna. Ef notkun þessa lyfs
fær opinbert samþykki, mun það
reynast nýtt vopn gegn blóðsóknar-
hjartaáfalli, en um 250.000 slíkir
sjúklingar eru í Bandaríkjunum. Lyf
þetta hefur einnig verið notað með
góðum árangri að hjartaaðgerðum
loknum. (Um 75.000 opnir hjarta-
skurðir eru framkvæmdir á ári hverju
í Bandaríkjunum). Hjartasérfræðing-
ar eru að vinna að stórstígum
framförum á sviði meðhöndlunar
hjartasjúklinga með notkun dobuta-
mine og nokkurra annarra nýrra lyfja
ásamt breyttri notkun eldri lyfja,
fjölbreyttum nýjum tækjum til þess
að mæla árangurinn og hafa stöðugt
eftirlit með honum og aukinni
vitneskju um starfsemi hjartans. Nú
þegar er þúsundum mannslrfa bjarg-
að á þennan hátt.
Annað áhrifamikið nýtt lyf, sem
samþykkt var af Matvæla- og lyfjaeft-
irliti Bandaríkjanna árið 1974, er
dopamine. Þetta er eitt af catechola-
mineefnum líkamans og er eina lyfið,
sem vitað er til að örvi hjatastarfsem-
ina og auki blóðstreymi til nýrnanna
sérstaklega. Þar er um að ræða
þýðingarmikla framför í meðhöndl-
un þeirra sem fá lost að loknum
hjartauppskurði, og vissra tegunda af
kransæðasríflu.
Að hjartaáfalli eða hjartaskurði
loknum getur komið fyrir að blóð
safnist fyrir í æðunum, sem liggja að
hjartanu, og auki þannig oft magn
vökva í lungunum. Dopamine hefur
þann kost, að það örvar veikt hjarta
án þess að auka' blóðþrýsting, en
aukinn blóðþrýstingur yki álag á