Úrval - 01.10.1976, Page 83
80
URVAL
Arum saman hefur maður mátt hlusta á fólk
níða niður einkabila. Hér fáum við vörnina:
Hvemig á að níða þá niður sem níða niður
einkabtlana.
ÁST ARÆVINTÝRIÐ
MIKLA
— William Safire —
*
*
*
E
vk g ek í vinnuna. Ég segi
(C þetta í afsökunartón, því
að ég þýst við að ég veki
íþfÉiÍtíiéíK reiði bílahataranna, sem
eru að setja áróðursvél sína í gang, til
þess að binda endi á ameríska
ástarævintýrið mikla milli eigandans
og einkabílsins. Þeir halda þvx fram:
★ Að ég mengi andrúmsloftið. Við,
sem ökum hinum 108 milljónum
einkabíla þjóðarinnar, framleið-
um 70 milljónir lesta af skað-
legum lofttegundum árlega, eitr-
um fyrir samborgara okkar,
mengum heilar borgir, og látum
skattþegnana borga þúsundir
— Úr New York Times —
ÁSTARÆVINTÝRIÐ MIKLA
81
milljóna dollara fyrir tæki til
varnar loftmengun.
★ Að ég drepi samborgar mína.
Slysavarnasérfræðingar fræða mig
um það, að við ökumenn eigum
sök á 46 þúsund dauðsföllum á
ári.
★ Að ég auki á orkukreppuna. Bílar
eyða 1000 milljónum lítra af
bensíni daglega, gera Bandaríkin
háða erlendri olíu og stofna utan-
ríkisstefnunni í hættu vegna
áhrifa arabíska olíukónga.
★ Að ég standi í vegi fyrir því að
almenningur fái góðar og greiðar
samgöngur. Ef hinar 26 þúsund
milljónir dollara, sem eytt er
árlega í þjóvegina, rynnu í stað-
inn til flutningatækja fyrir al-
menning, byggjum við brátt við
jafnrétti á samgöngusviðinu, þar
sem hraðskreiðar einspora lestir,
rennigangbrautir og neðanjarðar-
lestir leystu úr flutningsþörfinni í
borgunum.
Við þessum ásökunum hef ég ekki
annað að segja en það, að mér þykir
þetta allt saman mjög leitt. Ég finn
til sektar. En eins og flestir sem þurfa
að fara á milli heimilis og vinnu-
staðar, ætla ég að halda áfram að aka
mínum eigin bíl á hverju sem
gengur. Og hér er ástæðan.
Einkabíllinn er síðasta varnarvirki
persónulegs sjáfstæðis. Alveg eins og
flestir vilja helst búa í einbýlishúsum
— enda þótt íbúðir í fjölbýlishúsum
sér miklu hentugri og ódýrari — á
sama hátt vilja líka flestir eiga sitt
eigið ökutæki. Það hlýtur að vera rík
ástæða að baki þeirra ákvörðunar, að
maður steypi sér í skuldir til þess að
eignast bíl, leggi það á sig að sitja
lengur eða skemur fastur í umferðar-
hnút og stynja loks undan háum
viðgerðarreikningum. Ástæðan er
þessi blessuð þrjóska að vera hrifínn
af einkalífi.
Þegar ég gegn út að bílnum
mínum á morgnana er hann þar og
bíður mín; hann fer aldrei á undan
mér, jafnvel þó að ég sé seinn. Ég hef
misst af strætisvögnum, járnbrautar-
lestum og skipum, en aldrei af