Úrval - 01.10.1976, Page 106

Úrval - 01.10.1976, Page 106
104 URVAL unar á því að þurfa lengri tíma. Ég vildi ég gæti hjálpað honum en hann vildi fá að vera einn. Hann var stífur þegar hann kom. Ég varð að hjálpa honum upp í bílinn. Og við héldum áfram upp í fjöllin. Léttur snjór fauk eins og ryk um veginn og mér fannst kvölda fyrr en verið hafði. Rétt undir fjallaskarði stansaði ég til að taka bensín hjá litlu kofasafni, heima- gerðum kofum, ferköntuðum, hverj- um með dyraskyggni, dyrum og einum glugga, engu sem minnti á garð eða gangstíga. Litia húsið bak við bensíndælurnar, sem í senn var sölubúð, viðgerðarverkstæði og matstofa var með þeim mest frá- hrindandi sem ég hef nokkurn tíma séð. Bláu veitingastofuskiltin voru gömul og árituð flugum margra sumra: ',,Búðingar eins og mamma hefði gert hefði hún kunnað að búa til búðing.” ,,Við gáum ekki upp í þig. Gá þú ekki í eldhúsið okkar.” ,,Engar ávísanir teknar nema með fingraförum. ” Þessir voru allir gam- alkunnir. Það yrði ekkert sellófan á matnum hér. Enginn kom út að dæiunum, svo ég fór inn í veitingastofuna. Ég heyrði rifrildi innan úr bakherbergi, sem var sennilega eldhúsið — djúp rödd og bjartari karlmannsrödd sendu skeyti hvor til annarrar. Ég kallaði: „Nokkur heima?” og raddirnar þögnuðu. Svo kom samanrekinn kuggur gegnum dyrnar, enn yggldur á brún eftir rifrildið. ,,Hvað viltu?” ,,Bensín. Og ef þið eigið laust hús, vildi ég kannski vera hér í nótt.” , ,Þú mátt velja. Það er ekki nokkur sála hér.” ,, Get ég fengið bað ? ” ,,Ég skal færa þér fötu af heitu vatni. Vetrartaxtinn er tveir doll- arar.” ,,Gott. Get ég fengið eitthvað að éta?” „Svínasteik með baunum og ís.” ,,Ókei. Ég er með hund.” ,,Þetta er frjálst land. Kofarnir eru allir opnir. Veldu bara. Öskraðu ef þig vantareitthvað.” Einskis hafði verið látið ófreistað til þess að gera húsin óþægileg og ljót. Rúmið var hnúskótt, veggirnir dmllugulir, gluggatjöldin eins og undirpils af mellu. Lokaður klefínn þefíaði af músum og raka, myglu og gömlu, gömlu ryki, en rúmfötin vom hrein og þegar ég hafði haft opið um stund var minningin um gömlu íbúana horfin. Ber pera hékk úr loftinu og upphitunin var olíuofn. Það var barið að dymm og ég opnaði fyrir manni á að giska tvítug- um, klæddum í gráar flónelsbuxur, tvílita skó, deplótta treyju og með menntaskólahúfu á höfðinu. Dökkt, glansandi hárið var ótrúlega ofgreitt og efstu hárin lögð nosturslega á svig svo þau lágu rétt niður að eyrunum. Mér brá eftir fundinn við ófreskjuna inni. ,,Hér er vatnið þitt,” sagði hann með rödd hins deiluaðilans. Dyrnar stóðu opnar og ég sá augu piltsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.