Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 10
Mælingar í föstum reitum
Árið 1990 var byrjað að setja niður fasta
gróðurmælireiti í Surtsey til að fylgjast
með breytingum á tegundasamsetn-
ingu æðplantna og þéttleika gróðurs.
Reitirnir eru 100 m2 að flatarmáli (10
× 10 m) og hefur gróður þeirra verið
tekinn út annað hvert ár. Reitirnir voru
settir niður við mismunandi aðstæður í
eynni, á berum hraunum, í sandorpnum
hraunum, á vikrum, í fjörusandi og síðast
uppi á móbergsbunkum. Tæpur helm-
ingur reitanna var innan máfavarps sem
var tekið að myndast á suðurhluta eyjar-
innar en aðrir utan þess. Flestir reitanna
voru settir upp á árunum 1990–1995 en
nokkrum bætt við árin 2008 og 2014.
Fáeinir reitir hafa tapast eða verið lagðir
niður vegna sjógangs á norðurtanga eyj-
arinnar og endurskoðunar á verkefn-
inu. Árið 2021 voru virkir mælireitir 29
að tölu (2. mynd, 1. tafla). Með árunum
var einnig tekið að safna smádýrum á
yfirborði og jarðvegsdýrum í reitunum,
gera þar mælingar á örverum, öndun
og ljóstillífun plantna, kanna jarðvegs-
myndun, lífmassa gróðurs og þéttleika
hreiðra máfa og fýls í reitunum og við
þá.26−33 Segja má að reitirnir hafi orðið
lykilsvæði í framvindurannsóknum í
eynni síðustu áratugi.
Gróður í reitum var frá upphafi
mældur með því að leggja eftir þeim
fimm 10 m löng snið, það fyrsta 1 m frá
jaðri og hin síðan með 2 m bili út eftir
reitum. Á hverjum metra á sniðinu var
lesið af málbandi og skráð hvort plöntu-
tegundir fyndust fast við það og hve
mikið yfirborð þær þektu, mælt í cm.
Auk þess voru skráðar viðbótartegundir
sem fundust innan reita en utan sniða.
Heildarþekja tegunda í reit var fundin
með samlagningu en viðbótartegundum
var gefin lægsta mögulega þekja, þ.e. 1 cm.
Árið 2020 voru þrjú til fjögur jarð-
vegssýni tekin með 1,5 cm breiðum bor
í hverjum reit. Sýni voru tekin úr efstu
10 cm jarðvegs (þar sem jarðvegur náði
því dýpi) við jaðar hvers reits. Sýni úr
hverjum reit voru sameinuð og þurrkuð
við 40°C, sigtuð í gegnum 2 mm sigti og
kúlumöluð (Retsch MM301 Mixer Mill,
Haan, Þýskalandi). Síðan var heildar-
magn kolefnis (C) og fleiri efna í jarð-
veginum greint með þurrbruna í hel-
íumgasi (NC2100 C/N analyser; Carlo
Erba Instruments, Ítalíu) á efnagrein-
ingarstofu Nýsköpunarmiðstöðvar.
Frá árinu 2003 voru hreiður máfa
og fýla í gróðurreitum og við þá talin á
hverju ári. Þetta var gert um miðjan júlí,
á sama tíma og gróður var rannsakaður.
Leitað var að hreiðrum í hringlaga reit,
1.000 m2 að flatarmáli, með miðpunkt
í miðjum gróðurreit. Strengt var band
frá miðpunkti að útjaðri reits (17,84 m),
maður hafður á hvorum enda og þrír
til fjórir þar á milli. Síðan var genginn
hringur og hreiðra leitað. Skráð voru
hreiður sem báru þess merki að vera frá
því fyrr um sumarið. Máfategundirnar
voru svartbakur, sílamáfur og silfur-
máfur. Ungar þeirra höfðu að jafnaði
yfirgefið hreiður þegar talning fór fram
en hreiðurskálar mátti finna. Fýll verpir
einnig uppi á eynni og hafa hreiður hans
fundist í nokkrum reitum á síðustu
árum. Fýlsungi var nýlega klakinn úr
eggjum þegar talning fór fram og sat í
hreiðrum.
Úrvinnsla
Niðurstöður þær sem hér eru birtar
byggjast á mælingum á gróðri sem
unnar voru sumarið 2020 í 29 föstum
reitum. Við úrvinnslu á gróðurgögnum
var beitt tvíátta klasagreiningu (e. two-
way cluster analysis) í forritapakk-
anum PC-ORD.34 Fimm tegundir sem
aðeins fundust í einum reit hver voru
felldar út og sátu þá eftir 22 tegundir
í gagnasafninu. Fyrir greiningu var
þekjugildum tegunda umbreytt með
1. tafla. Gróðurreitir í Surtsey 2020, ár uppsetningar, undirlag og áætluð áhrif af sjófugli og útsel. − Permanent vegetation plots of
Surtsey in operation in 2020, year of first sampling, substrate and relative nutrient impact from breeding seabirds and grey seals.
Reitur nr.
Plot no.
Fyrsta mælingarár
First sampling year
Undirlag
Substrate
Áhrif sjófugls
Seabird impact
Áhrif útsels
Grey seal impact
1,3 4 1990 Sandorpið helluhraun
Sandy sheet lava
Mikil
High
6−10 1994 Helluhraun
Sheet lava
Mikil
High
22, 23 1995 Helluhraun
Sheet lava
Nokkur
Considerable
11−14, 16, 18−21 1994, 1995 Sandorpið helluhraun
Sandy sheet lava
Lítil
Low
15, 17 1994 Gosmöl í hlíðum
Tephra slopes
Lítil
Low
30, 37 2005, 2014 Sandur við strönd
Sand deposits
Nokkur
Considerable
Nokkur
Considerable
31−32 2008 Apalhaun
Block lava
Nokkur
Considerable
33−36 2014 Móberg og gosmöl
Palagonite and tephra
Lítil
Low
Náttúrufræðingurinn
10
Ritrýnd grein / Peer reviewed