Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 18
nýrri rannsókn sem beitti erfðagrein-
ingu á jarðvegssýnum í Surtsey kom
fram að enn virðast svepprótarsveppir
fáir í jarðvegsfungu eyjarinnar og geta
því mögulega verið flöskuháls fyrir
landnám þeirra tegunda æðplantna
sem þarfnast þeirra til að komast af.53
Menn ráku upp stór augu þegar
friggjargras (Platanthera hyperborea)
fannst í Surtsey árið 2003. Í miðju
máfavarpinu á suðurhluta eyjarinnar
var stök planta í blóma á svæði þar sem
fjöruarfi, melgresi og vallarsveifgras
voru tekin að þétta sig. Plantan fannst
ekki aftur á þeim stað en þar myndaðist
kafgras. Friggjargras fannst að nýju árið
2007 í austurjaðri máfavarpsins. Ekki
reyndist það árvisst framan af en frá
sumrinu 2011 hefur fundist stök plantna
á sama blettinum allt fram á þennan
dag. Sumarið 2021 fannst friggjargras
á þriðja staðnum í eynni. Af tegundum
æðplantna sem numið hafa land í
Surtsey er fræ friggjargrassins smæst
og vanbúnast að spíra og mynda full-
þroska plöntu á nýju landi. Friggjargras
er af brönugrasaætt, og eru fræ flestra
tegunda af þeirri ætt örsmá, á stærð
við rykkorn. Þau eru lítið annað en ör-
þunnur frumubelgur utan um fáeinar
fósturfrumur, og forðanæring er engin.
Hin smágerðu og léttu fræ berast hins
vegar fyrir vindi yfir sjó og land, hund-
ruð eða jafnvel þúsundir kílómetra.54
Einnig geta þau dreifst með vatni. Til
að spíra og mynda nýjan einstakling
þarf fræið að ná sambandi við rótar-
svepp í jarðvegi sem nærir það á fyrstu
stigum. Í þessu sambýli þroskast plöntu-
vísir neðanjarðar án blaðgrænu. Þessi
vöxtur getur tekið tvö til fjögur ár uns
hið græna gras birtist ofanjarðar.55,56 Í
Surtsey höfðu þessar aðstæður skapast
um fjórum áratugum eftir að eyjan reis
úr sæ. Af sjö tegundum brönugrasa sem
finnast á Íslandi er friggjargras langút-
breiddast56 en líklegt er að það sé ekki
jafn vandfýsið á jarðvegssveppi og hinar
tegundirnar og geti gert sér mat úr fleiri
en einni tegund sveppa.55
Sú mynd sem fengist hefur af flutn-
ingsleiðum og landnámi plantna í
Surtsey svipar nokkuð til þeirra sem
rannsóknir á öðrum eldfjallaeyjum hafa
gefið, þ.e. Krakatau57 og Anak Krakatau
í Indónesíu58 og Long Island í Nýju
Gíneu.59 Á þessum eyjum var flutningur
með sjó virkur og mikilvægur á fyrstu
árum en nokkuð misjafnt um flutning
með dýrum og vindi.
Flutningur næringar-
efna frá sjó til lands
Þáttur sjófugla
Eins og fram hefur komið var framvinda
í Surtsey mjög hæg þar til þétt máfa-
varp tók að myndast þar. Enn í dag er
stærsti hluti eyjarinnar strjálgróinn og
breytingar fremur litlar frá ári til árs.
Samanburður á gróðri og jarðvegi milli
lítt gróinna og vel gróinna svæða leiðir
í ljós hvað veldur. Það er flutningur
næringarefna, einkum með fuglum en
einnig selum í minna mæli, frá sjó til
lands. Þekkt er að fuglaskítur er ríkur
af næringarefnum fyrir plöntur og vega
köfnunarefni, fosfór og kalíum þar
þyngst.60−64 Sjófuglar sækja fæðu til hafs
og á varptíma bera þeir æti í unga sína
í vörpum á eyjum og strandsvæðum.
Frá fuglunum fellur drit og fæðuleifar,
og fuglar drepast á landi, og við þessu
tekur jarðvegurinn sem auðgast með
tímanum.65 Auk aðflutnings næringar-
efna og fræs hafa fuglar fjölbreytt önnur
áhrif í heimkynnum sínum og knýja í
mörgum tilvikum vistfræðilega ferla.66
Árin 2012 og 2013 gerðu Leblans og
félagar29 viðamikla rannsókn á því hve
mikill köfnunarefnisforði (N) hefur
byggst upp í jarðvegi og gróðri í Surtsey.
12. mynd. Strjálgróið, vikurborið hraun á austurhluta Surtseyjar, mest var hér um fjöruarfa og melgresi. Dæmi um land undir mjög litlum
áburðaráhrifum af sjófugli, féll í gróðurflokk H3, sjá 9. mynd. – Sparsely vegetated sandy lava on eastern Surtsey, dominant species
are Honckenya peploides and Leymus arenarius. Example of land under limited nutrient influence from breeding seabirds, vegetation
class H3, see Fig. 9. Ljósm./Photo: Borgþór Magnússon, júlí 2021.