Náttúrufræðingurinn - 2023, Page 20
Tekin voru sýni við gróðurreiti og borin
saman svæði í elsta hluta máfavarpsins
á suðurhluta eyjarinnar og svæði utan
varps. Í stuttu máli var niðurstaða þeirra
sú að utan varpsvæða hefðu á hverju ári
bundist 0,7 kg N ha-1 sem að mestu væri
komið frá úrkomu. Innan máfavarpsins
var myndin allt önnur. Þangað höfðu
fuglarnir að meðaltali flutt köfnunarefni
sem nam 47 kg N ha-1 á ári.29 Þess má geta
að algengur áburðarskammtur á ræktuð
tún hér á landi67 er 90–140 kg N ha-1. Af
túnum er hins vegar mestur hluti árlegs
vaxtar plantna ofanjarðar fjarlægður á
hverju ári í heyjum og þar með stór hluti
áburðarefna. Í Surtsey liggur hann á
staðnum og rotnar niður í svörðinn.
Þáttur sela
Á undanförnum árum hefur vaknað
grunur um að útselur hafi átt þátt í
þéttingu gróðurs á norðurtanga eyjar-
innar, einkum á síðasta áratug. Líkt og
sjófuglar flytja selir og sæljón næring-
arefni frá sjó til lands, einkum þar sem
dýrin dveljast í látrum eða hópa sig
á hvíldarsvæðum.68−70 Árið 1983 varð
þess fyrst vart að útselur væri tekinn
að kæpa á tanganum í Surtsey. Útselur
kæpir að hausti og fara fyrstu urtur
að mjaka sér upp í látur þegar líður á
september en kæping stendur hæst um
miðjan október. Síðbúnir kópar eru lík-
lega í látri fram í desember. Frá árinu
1986 hefur útselur í Surtsey verið talinn
reglubundið með myndatöku úr flugvél.
Talningin er hluti af vöktun selastofna
við Ísland. Útselsstofninn var síðast
metinn árið 2017. Fjöldi sela hefur verið
misjafn. Í Surtsey hafa sést á bilinu 15–
67 kópar en áætlað hefur verið að yfir
100 urtur hafi kæpt í eynni þegar mest
hefur verið. Á seinni árum hefur mynd-
ast þar stærsta látur útsels við suður-
strönd Íslands.71,72
Haustið 2019 var flogið yfir Surtsey
hinn 18. október á vegum Náttúru-
fræðistofnunar Íslands til að ljósmynda
útseli í látri, kanna dreifingu þeirra og
bera saman við útbreiðslu gróðurs á
tanganum. Á myndum voru taldir 94
selir, 32 fullorðnir, flest urtur, en kópar
62. Margir selanna lágu inni á tanganum
þar sem gróður var þéttastur.32 Vart
leikur vafi á að selurinn hefur þar tals-
verð áburðaráhrif sem kemur gróðri á
tanganum til góða. Nokkurt varp svart-
baks er þar einnig og eykur á áburðinn.32
Spyrja má hví gróður hafi ekki þétt sig
mun fyrr á tanganum líkt og gerðist í
máfavarpinu á suðurhluta eyjarinnar.
Þar á eru líklega nokkrar skýringar. Í
fyrsta lagi hefur tanginn farið minnk-
andi með árunum og með fjölgun sela í
látri hefur þéttleiki þeirra aukist á því
svæði sem eftir stendur. Í öðru lagi ber-
ast áburðarefni frá selnum til jarðvegs
að hausti eftir að vaxtartíma plantna
lýkur. Að vetri gengur sjór yfir tangann
og útskolun á sér stað. Í þriðja lagi benda
rannsóknir til að losun frá útsel í látri í
formi saurs og þvags sé hlutfallslega
lítil miðað við stærð skepnunnar. Kópar
nærast eingöngu á móðurmjólk þegar
þeir eru uppi í látri og halda fast í það
sem ofan í þá fer.73−75
Í lok október 2019 gafst færi á að stíga
fæti á land í Surtsey í stuttri heimsókn
og var þá farið norður á tangann til að
gæta að útselum í látri (16. mynd), en
nánar hefur verið fjallað um það annars
staðar.32. Allt bendir til að áfram muni
ganga á tangann og hann hverfa á næstu
áratugum. Við það verða dagar látursins
einnig taldir. Áhrif útsels á gróður í eynni
verða því mun skammvinnari og taka til
miklu minna svæðis en þau af sjófuglum.
Vistkerfi tekur stakkaskiptum
Landnám og framvinda í Surtsey hefur
ekki gengið jafnt og þétt. Skortur á nær-
ingarefnum í jarðvegi, einkum köfnun-
arefni, hamlaði mjög landnámi plantna
í eynni framan af og einnig hægur að-
flutningur nýrra tegunda. Segja má að
þetta hafi verið hæstu þröskuldarnir76
sem vistkerfið þurfti að yfirstíga til að
komast úr hægagangi. Hvort tveggja
leystist með fjölgun varpfugla í eynni
sem síðan hafði keðjuverkandi áhrif á
alla framvindu og ferla.
15. mynd. Þróun í tegundafjölda í fjórum
föstum reitum í Surtsey frá því þeir voru
settir niður og til ársins 2020. Reitirnir
eru hinir sömu og sýndir eru á 16. mynd.
– Development in species richness in four
permanent plots on Surtsey, the plots are
the same as shown on Fig. 15.
Fj
öl
di
te
gu
nd
a
/
Sp
ec
ie
s
ric
hn
es
s
R1
R6
R22
R13
1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020
0
2
4
6
8
10
Náttúrufræðingurinn
20
Ritrýnd grein / Peer reviewed