Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 25
Borgþór Magnússon (f. 1952) lauk BS-prófi í líffræði
við Háskóla Íslands árið 1976, MS-prófi í vistfræði
við Aberdeen-háskóla 1979 og doktorsprófi í plöntu-
vistfræði (Ph.D.) við grasafræðideild Manitoba-háskóla
1986. Hann starfaði á Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins 1986–2001 en eftir það við Náttúrufræðistofnun Ís-
lands til ársins 2022 þegar hann fór á eftirlaun. Borgþór
hefur m.a. stundað rannsóknir á áhrifum búfjárbeitar á
gróður, vistfræði alaskalúpínu, endurheimt votlendis,
lýsingu og kortlagningu vistgerða og umhverfisáhrif-
um miðlunarlóna. Hann hefur komið að rannsóknum í
Surtsey frá árinu 1975.
Bjarni Diðrik Sigurðsson (f. 1966) lauk BS-prófi í líffræði
við Háskóla Íslands árið 1993 og doktorsprófi (Ph.D.) í
skógvistfræði/vistkerfisfræði við Landbúnaðarháskóla
Svíþjóðar (SLU) í Uppsölum árið 2001. Bjarni starfaði við
Rannsóknastofnun landbúnaðarins 1993–1997 og síðar
sem sérfræðingur við Rannsóknastöð skógræktar á Mó-
gilsá 2001–2005. Frá árinu 2005 hefur Bjarni gegnt stöðu
prófessors í skógfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hann hefur stundað rannsóknir í Surtsey frá árinu 2006.
Sigurður H. Magnússon (f. 1945) lauk BS-prófi í líffræði við
Háskóla Íslands árið 1975 og Ph.D.-prófi í plöntuvistfræði
við Háskólann í Lundi árið 1994. Á árunum 1987–1997
starfaði hann sem sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins á Keldnaholti og hjá Náttúrufræðistofn-
un Íslands frá 1997 til 2017 þegar hann fór á eftirlaun.
Viðfangsefni hans hafa verið margvísleg en tengjast mörg
landnámi plantna og framvindu gróðurs. Viðamesta ver-
kefnið sem Sigurður hefur unnið að á síðustu árum er
hins vegar flokkun og kortlagning lands í vistgerðir. Hann
hefur unnið að rannsóknum í Surtsey frá árinu 1988.
Pawel Wasowicz (f. 1981) lauk doktorsprófi í grasafræði
árið 2010 við Slesíuháskólann í Katowice í Póllandi og
starfaði eftir það við Varsjárháskóla. Hann hóf störf hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands árið 2012 og vinnur að
rannsóknum í grasafræði. Pawel hefur stundað rann-
sóknir í Surtsey frá árinu 2014.
Olga Kolbrún Vilmundardóttir (f. 1981) lauk BS-prófi í
landfræði árið 2004 við Háskóla Íslands og doktorsprófi
í landfræði árið 2015 við sama skóla. Á árunum 2005 til
2010 starfaði hún hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, síð-
an við Háskóla Íslands frá 2015 til ársins 2018 en hóf þá
aftur störf á Náttúrufræðistofnun. Helstu rannsóknar-
efni hennar hafa varðað gróðurframvindu og jarðvegs-
myndun á ungu landi, gróður á jarðhitasvæðum og um-
hverfisbreytingar við miðlunarlón. Olga Kolbrún hefur
unnið að í rannsóknum í Surtsey frá árinu 2020.
Járngerður Grétarsdóttir (f. 1967) lauk BS-prófi í líf-
fræði við Háskóla Íslands 1992 og cand. scient.-prófi í
grasafræði við Björgvinjarháskóla árið 2002. Hún starf-
aði við Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins 1992–1997,
við Rannsóknastofnun landbúnaðarins 2003–2005 og
var lektor í plöntuvistfræði við Landbúnaðarháskóla
Íslands 2005−2018. Frá 2018 hefur hún starfað við gróð-
urrannsóknir hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Helstu
rannsóknarefni hafa verið framvinda gróðurs og endur-
heimt og á síðustu árum kortlagning vistgerða og mæl-
ingar á þungmálum í mosum. Járngerður hefur unnið að
rannsóknum í Surtsey frá árinu 2020.
UM HÖFUNDA
Borgþór Magnússon | Þingási 31, 110 Reykjavík
borgthor.magnusson@gmail.com
Sigurður H. Magnússon | Högnastöðum 1,
845 Flúðum | sigurdurh@vortex.is
Pawel Wasowicz | Náttúrufræðistofnun Íslands
Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri
pawel.wasowicz@ni.is
Járngerður Grétarsdóttir
Náttúrufræðistofnun Íslands | Urriðaholtsstræti
6–8, 210 Garðabæ | jarngerdur@ni.is
Olga Kolbrún Vilmundardóttir
Náttúrufræðistofnun Íslands | Urriðaholtsstræti
6–8, 210 Garðabæ | olgakolbrun@ni.is
Bjarni Diðrik Sigurðsson | Landbúnaðarháskóla
Íslands | Keldnaholti, 112 Reykjavík | bjarni@lbhi.is
25
Ritrýnd grein / Peer reviewed