Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 30
6. mynd. Hola 4 árið 2002 til vinstri og
árið 2022 til hægri. Nokkur munur er á
upplausn myndanna en ljóst virðist að efni
úr hrygg í suðurjaðri stóru holunnar hefur
flætt til norðurs inn í holuna og skilið eft-
ir sig nokkurn veginn hringlaga brotsár.
– Hole 4 in 2002 (left) and 2022 (right).
Evidently, the southern rim of the large
hole has collapsed and flowed into the
hole, leaving a subcircular scar.
7. mynd. Lega endurvarpssniða, sem sýnd
eru á næstu myndum. − The position of
the profiles of Figs. 8 to 11.
af hafsbotni og lögum undir botni. Lá-
réttar rauðgular línur eru dýptarkvarði
(í millisekúndum endurvarpstíma) og
eru dregnar með 10 mS bili (10 milli-
sekúndur endurvarpstíma jafngilda
nálægt 7,5 metrum). Lóðréttar línur
eru dregnar með mínútu bili. Sniðin
hafa verið klippt til og á myndunum er
sýndur um 60 metra hár hluti þeirra (80
mS). Snið a er um 530 metra langt. Yfir-
hækkun sniðanna er um það bil þreföld.
Þrjár myndanir eru mest áberandi
í sniðunum. Yngsta myndunin verður
hér kölluð nútímaset. Neðri mörk þess
eru dregin á sniðin með fjólublárri
línu. Þetta eru setlög sem einkum hafa
myndast við upphleðslu fínkornaðs
framburðar frá landi eftir ísöld. Setið
hefur sléttað það landslag sem fyrir var,
og myndað flatan og tiltölulega sléttan
botn í dýpri hluta fjarðarins. Holurnar
sem hér er fjallað um hafa síðan mynd-
ast í þessari sléttu.
Mjög ofarlega í nútímasetinu er lag
sem hefur þá náttúru að hleypa hljóð-
merki illa eða ekki í gegnum sig. Yfir-
borð þessa lags er merkt með brúnum lit
á sniðunum. Ógegnsæi eða lítið gegnsæi
í seti stafar venjulega af grófleika eða
af gasi í setinu. Líklegasta skýringin á
þessu lagi í Geirþjófsfirði er að það sé í
raun yfirborð gass í setinu. Áberandi er
að lagið hverfur í nágrenni holnanna.
Undir nútímasetinu eru eldri lög sem
mynduðu botninn við upphaf Nútíma.
Fjörðurinn var þá umtalsvert dýpri en nú.
Mælingarnar sýna lagskiptingu í þessum
eldri lögum (merkt með bláum lit) og því
má ætla að þarna sé um að ræða setlög
frá ísaldarlokum. Hvergi á svæðinu sést í
ótvíræða storkubergsklöpp.
Dýpi á undirlag nútímasets
Þar sem greina má undirlag nútíma-
setsins í sniðunum virðist það mynda
lægð eftir miðju fjarðarins (12. mynd).
Á mælingasvæðinu sést að yfirborð þess
hallast frá landi sunnan fjarðar niður á
125 metra dýpi. Vestast á svæðinu (undir
holu 3) má rekja það niður á 120 metra
dýpi, en síðan finnst það á 110 metra dýpi
undir holu 2, sem bendir til að lægðin
liggi á milli þessara tveggja holna.
Útbreiðsla ógegnsæja lagsins
Eins og að framan greinir er botnset
á mælingasvæðinu allajafna ógegn-
sætt fyrir hljóðmerki. Svo er þó ekki í
kringum holurnar. Þetta kemur glögg-
lega fram á 13. mynd. Skýringin á þessari
útbreiðslu lagsins tengist væntanlega
uppruna holnanna, þ.e. uppstreymi og
flutningi setsins úr holunum. Yfirborð
Náttúrufræðingurinn
30