Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 38
þeir um annars konar óværu sem á þeim
tíma hrjáði Íslendinga, einkum mannafló
(Pulex irritans), mannakláðamítilinn (S.
scabiei var. hominis), höfuðlús og búklús
(P. humanus capitis og P. h. humanus).6 Í
Landfræðissögu Þorvalds Thoroddsens9
er tekinn saman fróðleikur frá fjöl-
mörgum erlendum ferðalöngum um að-
stæður á Íslandi en þar er veggjalúsar-
innar hvergi getið. Kuldi innandyra á
vísast þátt í því að þessi hitakæru skor-
dýr náðu hér ekki fótfestu. Veggjalúsin
fór þó hvergi dult eftir að hennar tók
að verða vart.10−12. Það er augljóst af
vitnisburði Geirs Gígju, fyrsta menntaða
skordýrafræðings landsins, árið 1944
þegar hann segir að veggjalúsin sé eitt
versta meindýrið sem tekið hefur sér
bólfestu í híbýlum hér á landi.13
Samtímaheimildir í
heilbrigðisskýrslum
Árið 1881 tók nýstofnað Landlæknis-
embætti til við að safna skipulega upp-
lýsingum um heilbrigði og sjúkdóma
þjóðarinnar með því að fá héraðslækna
landsins til að semja árlegar skýrslur
um sjúkdóma og heilbrigðismál.10 Þar
á meðal eru ýtarlegar upplýsingar um
landnámssögu veggjalúsarinnar. Fullyrt
er að veggjalúsin hafi borist til Vestfjarða
undir lok 19. aldar með norskum hval-
föngurum, sem hingað fluttust og
byggðu upp aðstöðu til hvalskurðar á
Framnesi eða Höfðaodda við norðan-
verðan Dýrafjörð.14−15
Útbreiðslan 1934
Vilmundur Jónsson (1889−1972) land-
læknir hafði forgöngu um að safna
skipulega upplýsingum um landnáms-
sögu og útbreiðslu veggjalúsarinnar á
Íslandi. Fljótlega eftir að hann hóf störf
ritaði hann öllum starfandi héraðs-
læknum landsins bréf og bað þá um að
afla upplýsinga um það hvort veggjalús
væri að finna í umdæmum þeirra, og
þá á hvaða heimilum. Fór hann þess á
leit að héraðslæknar létu greinargerð
þar að lútandi fylgja heilbrigðisskýrslu
héraðsins fyrir starfsárið 1934. Greinar-
gerðir bárust úr 31 héraði en 18 héraðs-
læknar létu bréfi hans ósvarað.10
2. mynd. Útbrot eftir veggjalús. – Bite marks of bed bugs.
Ljósm./Photo: B. Gregory
Náttúrufræðingurinn
38
Ritrýnd grein / Peer reviewed