Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 41
Egg, gyðlur og fullorðnar veggjalýs í rúmi. − Eggs, nymphs
and adult bed bugs in a bed. Ljósm./Photo: Karl Skírnisson.
Veggjalús barst inn á heimili höfundar árið 2007. Með
hjálp meindýraeyðis tókst að útrýma óværunni en út-
rýmingaraðgerðir stóðu yfir í heilt ár og þurfti að eitra
fimm sinnum.
Tildrögin voru þau að sonur höfundar fór í júní
2007 með Skólahljómsveit Kópavogs í 13 daga tón-
leikaferð um Ítalíu, Króatíu og Austurríki. Gist var á
farfuglaheimilum og gistihúsum í ódýrari kantinum.
Einhvers staðar á leiðinni náðu veggjalýs að koma sér
fyrir í farangrinum og þegar heim var komið leituðu
dýrin upp í rúmið í herberginu. Svo háttaði þar til að
þétt upp við höfðalagið var ofn á vegg og þaðan lagði
yl að rúminu. Síðar kom í ljós að á þessum stað voru
mestu ummerki um dýrið, allt var þar krímugt af blóð-
skít, hömum, eggjum og veggjalús á öllum aldri.
Um það bil tveimur mánuðum eftir heimkomuna, í
ágúst-september, nefndi sonurinn að hann hefði fengið
útbrot á handlegg, en þau hjöðnuðu þegar leið á daginn.
Engan grunaði að veggjalýs væru á ferð. En næstu vikur
bárust endurtekin útbrot nokkrum sinnum aftur í tal.
Sonurinn tók reglulega ofnæmislyf á þessum tíma, sem
trúlega minnkuðu ofnæmissvarið. Um miðjan október,
fjórum mánuðum eftir heimkomuna, sá sonurinn brúna
pöddu í rúminu þegar ljós var kveikt að næturlagi og í
byrjun nóvember sá hann aftur skordýr í rúminu um
miðja nótt. Í þetta skiptið vakti hann föður sinn, höf-
und, og lýsti því hvers hann hafði orðið áskynja. Eft-
irgrennslan næsta morgun leiddi í ljós að allmargar
veggjalýs lúrðu undir þverfjölunum sem héldu dýnunni
uppi. Tóku þær til fótanna strax og farið var að hreyfa
við fjölunum. Þegar hér var komið sögu voru tæpir
fimm mánuðir liðnir frá heimkomu sonarins. Sé miðað
við um sex vikna langan þroskaferil2,3 höfðu tvær til
þrjár kynslóðir þegar komist á legg í rúminu.
Haft var samband við Guðmund Óla Scheving mein-
dýraeyði, sem mætti samdægurs á staðinn með úðakút
sem í var efnið cimetrol frá fyrirtækinu PelGar í Bret-
landi. Efnið inniheldur annars vegar skordýraeitrið
cypermethrín (það hindrar eðlileg taugaboð hjá skor-
dýrum) og hinsvegar pýriproxýfen (efni sem kemur
í veg fyrir hamskipti gyðlanna). Föt og allt
lauslegt var fjarlægt úr herberginu, og
sett í ruslapoka sem lokað var tryggi-
lega. Pokarnir voru síðar settir í
vikutíma í -18°C frost. Dýnunni
var hent. Hliðar rúmsins voru skrúfaðar frá göflum,
allt timburverk lagt á mitt gólf og úðað báðum megin
frá með eitrinu. Gólflistar voru losaðir frá veggjum
og eitri úðað bak við þá og herberginu lokað. Við
skoðun nokkrum dögum síðar sáust dauðar veggjalýs
í námunda við rúmið en ungviði, lirfur og tugir gyðlna
á ýmsum stigum fundust ennþá lifandi bak við festi-
skrúfur sem ekki hafði verið losað um þegar rúmið
var tekið í sundur. Einnig meðfram pílárum, sem og
í þröngum rifum í höfðagaflinum þar sem eitrið hafði
ekki náð að leika um lirfur og yngstu gyðlurnar sem
héldu sig í smæstu rifunum. Þegar þetta var ljóst var
rúminu hent.
Fjögur svefnherbergi eru á efri hæð hússins og
varð veggjalúsa vart í tveimur þeirra. Skömmu áður
en eitrað var í fyrsta sinn varð annar sonur höfundar
einnig var við útbrot eftir veggjalýs og var þá líka
eitrað í rúmi hans og herbergi.
Eitrað var í báðum svefnherbergjunum sem óværan
hafði fundist í annað sinn um miðjan desember. Aftur
var eitrað um miðjan febrúar og nú var dýnum lyft í
öllum svefnherbergjunum fjórum og úðað þar í rúm-
botna og meðfram gólflistum. Nokkrum vikum síðar
fundust tvær dauðar veggjalýs undir rúmi í herberginu
þar sem óværan hafði búið um sig sumarið áður. Talið
var líklegast að þær hafi lifað inni í rafmagnsdós bak
við rúmið en þar hafði aldrei verið eitrað. Þegar eitrað
var í fjórða sinn í byrjun apríl var rafmagn tekið af hæð-
inni, lok skrúfuð af rafmagnsdósum og eitri úðað inn í
dósirnar. Enn og aftur var skipulega úðað í rúmbotna
og undir dýnur. En lengi er von á einum því að í byrjun
maí fékk sonurinn í hinu herberginu níu dæmigerð
veggjalúsarbit á öxl og háls. Í framhaldinu var rúminu
hent og eitrað í svefnherbergjunum í fimmta sinn.
Næstu mánuði og raunar misseri varð smám saman
ljóst að tekist hafði að útrýma veggjalús á heimilinu.
—Innskotsgrein C—
ÚTRÝMINGARSAGA ÚR KÓPAVOGI
41
Ritrýnd grein / Peer reviewed