Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 70
inberri umræðu. Orðabókin sem hendi
er næst þýðir extinction með orðunum
„útrýming, gereyðing, aldauði“ en
kannski er ekkert þeirra fullnægjandi
til að ná utan um ástandið nú. Útrýming
og gereyðing fela í sér athafnir, einkum
mannlegar, en aldauði er hlutlausara í
því samhengi, sem er ekki að öllu leyti
heppilegt því að sá víðtæki aldauði sem
nú blasir við er afleiðing mannlegra
athafna. Þó felur orðið í sér dýpri merk-
ingu en hugtakið útrýming, sem er frekar
mannhverft og tæknilegt, laust við þá
alvöru sem felst í aldauða. Það hefur til
dæmis þótt sjálfsagt mál að útrýma alls
kyns illgresi, refum, minkum, hröfnum,
svartbökum eða óæðri kynþáttum, svo
kaldhæðnin sé tekin alla leið.
Í bók Gísla er aldauði í forgrunni,
ógnvænlegur meginþráður sem flétt-
ast við marga aðra þræði sem víkka
myndina, söfnun og furðukames, sjó-
mennsku og lífsbjörg suður með sjó og
við fuglafræði sem er rótgróið áhuga-
svið sem átti sinn þátt í þróun nútíma
líffræði. Þar er einnig upplýsandi frá-
sögn af uppgötvunum Darwins og
kollega hans í þróunarfræði, sem var í
gerjun um sama leyti og félagarnir John
Wolley og Alfred Newton skelltu sér
suður með sjó á Íslandi í geirfuglaleit.
Þekkingarleit Gísla kallast á við ástríðu-
fulla leit geirfuglamannanna tveggja
og stórlega áhugaverða gagnasöfnun
þeirra, þar sem garnir voru raktar úr
sjómönnum sem séð höfðu eða veitt
geirfugla. Í því fólst skemmileg nýting á
þekkingu hversdagsfólks. Í heild vekur
bókin spurningar um grundvallaratriði
í framkomu mannskepnunnar við líf-
heiminn, kannski framar öllu um ábyrgð
gagnvart umhverfi og náttúru.
Söfn einstakra furðugripa úr náttúr-
unni, stundum kölluð furðukames, voru
á 16. og 17. öld forvitnileg boðun nýrra
tíma, ofurfjölbreytt og heillandi. Um-
fjöllun um þau er áberandi og bókinni
lýkur með heimsókn í eitt slíkt í nú-
tímanum, safn Errols Fullers. Kamesin
fóru að líta dagsins ljós í árdaga vísinda-
byltingarinnar svokölluðu, um svipað
leyti og dýrafræðirit fóru að koma út á
prenti og Vesalíus og Kóperníkus gáfu
út umbyltingarrit sín árið 1543, sem
oft eru sögð marka upphaf þessarar
byltingar. Í bókinni De humani corporis
fabrica (Um byggingu mannslíkamans)
sýndi Andreas Vesalíus (1514–1564)
fram á um 200 veilur í líffærafræði
Galenosar sem hafði verið viðtekin
allar miðaldir. Hið mikla rit Vesalíusar
varð brátt lykilrit um líkamsbyggingu
og líffærafræði. Nikulás Kóperníkus
(1473−1543) gaf út De revolutionibus
orbium coelestium (Um snúninga himin-
hvolfanna) en það tók tímann sinn að
fá þann snúning viðurkenndan.
Um þessar mundir stækkaði heimur
Vesturlandabúa óðfluga í kjölfar landa-
fundanna og farið var að rannsaka dýr
skipulega með vaxandi raunhyggju og
nákvæmni. Söfnun í furðukames tengd-
ist því að Evrópumenn fóru að skoða
og rannsaka kynlegar lífverur sem þeir
höfðu ekki séð áður. Ítalinn Ulisse Málverk Nicolas Roberts frá 1666-1670.
Hvalur Gessners.
Náttúrufræðingurinn
70