Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 74
yfir vistkerfin stór og smá án þess að
skeyta um afleiðingar er meginefni bókar
Dawsons. Allt frá nýlenduarðráni auð-
lindagnóttar nýja heimsins, iðnbyltingu
og einkarétti á landi til einkavæðingar
DNA og þess sem kallað hefur verið líf-
kapítalismi hefur samspil einkaeignar
á almannagæðum og vaxtarkröfu kap-
ítalismans falið í sér eyðileggingu líf-
breytileika og „árás á sameiginleg auðæfi
plánetunnar“.
Kapítalisminn er ekkert siðlausari
en önnur kerfi, segir Dawson, en sem
„framleiðsluháttur og samfélagskerfi
þarfnast kapítalisminn þess að fólk
eyðileggi umhverfið“.13 Að allt sé kreist
út úr vistkerfunum, ofurselt skiptagildi
og sívaxandi hagnaðarþrýstingi. Hag-
vöxtur er því vítahringur sem verður
að rjúfa, ósýnilega höndin sem Adam
Smith talaði um er eyðingarafl.13 Gjalda
þarf varhug við þeim fjölda „grænna“
lausna sem fram eru boðnar en eru oft
ekki annað en grænþvottur á forsendum
auðmagns og hagvaxtar. Á svæðum sem
mikilvæg eru fyrir kolefnisbúskap jarðar
bitna gróðavænlegar aðgerðir ósjaldan
á frumbyggjunum.15
Bók Gísla er lágstemmd og höfund-
urinn reiðir ekki hátt til höggs gagnvart
þessari vá, en allt efni bókarinnar og
sú hugmyndasaga sem hér hefur verið
drepið á sýnir þörf fyrir víðtækari sam-
ræðu mannvísinda og náttúruvísinda.
Annars vegar til að skilja betur samhengi
vísinda, því öll vísindi þróast og eru háð
menningu og samfélagi hvers tíma. Hins
vegar til að ráða betur í merkingu og til-
gang mannlegra athafna, vísindamanna
og annarra. Mannvísindi hafa tæki og
tól til að draga upp vítt sögulegt og fé-
lagslegt samhengi sem rammar inn nátt-
úruvísindin og ekki síst ábyrgð þeirra,
enda ríður á að allir leggist á eitt um að
losna úr þeirri sjálfheldu sem samfélags-
gerðir nútímans hafa leitt mannkynið í.
Í samræðu milli fræðasviða kemur líka
í ljós að margt af því sem lífvísindin
fást við í lifandi ferlum og samlífi líf-
vera í vistkerfum getur varpað ljósi á
lífrænt og vistrænt samhengi samfélags
og menningar.
Mat vísinda á hraða útrýmingarinnar
eða aldauðans er misjafnt. Hann var
talinn allt frá hundraðföldum hraða til
þúsundfalds miðað við það sem eðlilegt
gæti talist en hærri talan mun vera nær
lagi og hraðinn gæti brátt orðið tíuþús-
undfaldur.16 Þá er hugsanlegt að keðju-
verkun hefjist og vistkerfin hrynji með
enn alvarlegri afleiðingum.
Nú um stundir er fjölmargt í gerjun
sem boðar breytingar og um allan heim
er leitað raunhæfra leiða út úr vist-
kreppunni, jafnt á akademískum vett-
vangi sem í grasrótarhreyfingum. Allt
Geirfugl teiknaður af
Benedikt Gröndal.
snýst það um sambúð fólks og náttúru
og umfram allt það sem á ensku kall-
ast degrowth, hjöðnun hagkerfanna og
vistheimt.
Sameinuðu þjóðirnar eru að taka við
sér gagnvart lífbreytileika og á Íslandi
hefur samstarfsnetið Biodice (biodice.
is) forystu í þeim efnum.
Ashley Dawson bendir á hreyfinguna
The People’s Manifesto sem byggist á
grasrót frumbyggja og nærsamfélaga
og ræðir síðan ýmsar aðrar hreyfingar í
lokakafla bókar sinnar.13,17
Kristín Vala Ragnarsdóttir starfar öt-
ullega að framgangi hugmynda um vel-
sældarhagkerfi.18
Stefán Jón Hafstein gaf á síðasta ári
út frumlega, upplýsandi og innblásna
bók um ástand heimsins, sem vakið
hefur verðskuldaða athygli.19 Hann
hefur fylgt henni eftir með greinaflokki
í Heimildinni (áður Kjarnanum).
Landvernd og Náttúruverndarsamtök
Íslands hafa unnið ötullega að þessum
málum, og Guðrún Schmidt hefur verið
þar fremst í flokki með læsilegar og hnit-
miðaðar greinar í Heimildinni um þörf-
ina á umbyltingu kerfanna.
Ungum umhverfissinnum vex stöð-
ugt ásmegin, þau krefja okkur um af-
stöðu þar sem ekki er lengur hægt að
sitja hjá.
Náttúrufræðingurinn
74