Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2023, Page 78

Náttúrufræðingurinn - 2023, Page 78
endurskoðun hennar 1993, um hvar líkur væru á að næsti stóri skjálfti á Suður- landsbrotabeltinu yrði. Skjálftarnir tveir, 17. og 21. júní árið 2000, áttu svo upptök aðeins 2−3 km frá því sem spáð var. Tölu- verð umfjöllun er svo um þessa skjálfta og rannsóknir í aðdraganda þeirra. Skýrt er hvers vegna ekki var hægt að gefa út skammtímaviðvörun fyrir skjálftann 17. júní líkt og gert var um sólarhring fyrir 21. júní- skjálftann. Síðan er tekist á við spurninguna: „Hvernig getum við spáð fyrir um Suðurlandsskjálfta.“ Þar er ekki síst lögð áhersla á mikilvægi smáskjálfta- mælinga en einnig bent á merkjanlega þætti á yfirborði, svo sem lækkun grunn- vatns í borholum og atferli dýra, sem geta gefið gagnlegar upplýsingar þegar metið er hvort gefa eigi út skammtímaviðvörun. Þá kemur umfjöllun um nauðsyn sívirks eftirlitskerfis, sem er mikil- væg forsenda sívirks viðvörunarkerfis þannig að hægt sé að gefa út skamm- tímaviðvörun um jarðskjálfta og eldgos. Lýst er aðdraganda jarðskjálftanna í Ölfusi 2008, sem ekki tókst að vara við, og Heklugossins 2000 sem var varað við með stuttum fyrirvara. Í lok fyrri hluta bókarinnar er kafli (12.) þar sem meðal annars er lögð áhersla á hversu mikilvægt er að efla jarðskjálftarannsóknir á Norðurlandi og á Reykjanesskaga. Þótt margt sé líkt á þessum svæðum þá sé munurinn mikill og nauðsynlegt sé að vakta allt landið. Í seinni hluta bókarinnar lýsir höf- undur mikilvægum einkennum jarð- skjálftavirkni á Norðurlandi, Reykjanes- skaga og Vesturlandi sem geta skipt máli við möguleika til að segja fyrir um jarð- skjálfta þar og aðra jarðvá. Umfjöllun um jarðskjálfta á Norðurlandi er þar ít- arlegust og lengsti kafli bókarinnar eða 64 síður. Í byrjun er velt upp þeim spurn- ingum hvort hægt hefði verið að spá fyrir um Kröfluelda og Kópaskersskjálftann, en síðan er fjallað um stóra jarðskjálfta, allt frá 1618 til Skagafjarðarskjálftans 1963. Þá er meðal annars fjallað um að- draganda skjálfta á svæðinu eftir 1994, mismunandi forvirkni á vestanverðu og austanverðu Norðurlandi, yfirgnæfandi líkur á stórum skjálfta innan tveggja ára- tuga og um möguleika til að spá fyrir um Norðurlandsskjálfta. Í umfjöllun um Reykjanesskagann er bent á að þótt jarðskjálftasvæðið þar sé nánast í beinu framhaldi til vesturs af Suðurlandsbrotabeltinu sé margt ólíkt í eðli brotabeltanna. Fjallað er um aðdraganda skjálfta á Reykjanesskaga samkvæmt mælingum og sögulegum heimildum, meðal annars um Hengils- Ölfuss-hrinuna 1994−1998, um skamm- tímaspár jarðskjálftanna 4. júní og 13. nóvember 1998 og um orsök og áhrif hrinunnar. Þá er spurt hvers sé að vænta um stóra skjálfta á Reykjanesskaganum og fjallað um upphaf nýja gostímabilsins, aðdraganda gossins 19. mars 2021 og mik- ilvægi jarðskjálftaspárrannsókna. Höfundur bendir á að Vesturland og Vestfirðir liggi utan meginplötuskilanna og brotabelta þeirra. Þar verði verulegir jarðskjálftar miklu sjaldnar og geti lík- lega ekki náð sömu stærð og innan brotabeltanna. Í nær hundrað ára sögu mælinga og eftirlits Veðurstofunnar 2. mynd. Skjálftavirkni, skjálftar stærri en 2 vestarlega á Reykjanesi sýnd í tímabilum frá 1. nóv. 2019-31. júlí 2021. Svæðið er frá 22°V til 24°V og 63,5°N AÐ 64,0°N. Náttúrufræðingurinn 78

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.