Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 80
Skýrsla stjórnar Hins
íslenska náttúrufræðifélags
– fyrir starfsárið 2022
Aðalfundur fyrir starfsárið 2021 var haldinn 28. febrúar 2022
í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar Íslands á Urriðaholts-
stræti 6−8 í Garðabæ og í streymi á Teams, að loknu erindi
Sigrúnar Helgadóttur sem fjallaði um bók hennar: Sigurður
Þórarinsson. Mynd af manni. Fundargerð aðalfundarins er að
finna á vefsetri félagsins.
SKIPUN STJÓRNAR
Á aðalfundinum rann út kjörtímabil formanns og þriggja
stjórnarmanna, þeirra Önnu Heiðu Ólafsdóttur, Helenu W.
Óladóttur og Snæbjarnar Guðmundssonar. Auk þess kom upp
sú staða að tveir þeirra stjórnarmanna sem kjörnir voru á síð-
asta ári til tveggja ára, þau Gróa Valgerður Ingimundardóttir
og Guðmundur Björnsson, óskuðu eftir að ganga úr stjórn.
Aðalfundur veitti samþykki fyrir því að gengið yrði til kosn-
inga um tvo stjórnarmenn til eins árs í þeirra stað.
Því næst var kosin stjórn, og var Ester Rut Unnsteinsdóttir
endurkjörin formaður, Anna Heiða Ólafsdóttir og Helena
W. Óladóttir endurkjörnar stjórnarmenn, og auk þeirra var
kjörin Bryndís Guðrún Róbertsdóttir, land- og jarðfræðingur.
Til eins árs voru kjörnar þær Hlín Halldórsdóttir og Hrefna
Berglind Ingólfsdóttir, sem báðar eru líffræðingar.
Fráfarandi og sitjandi stjórnarmönnum var þakkað kær-
lega fyrir þeirra framlag til félagsins og fyrir að gefa sér tíma
til áframhaldandi trúnaðarstarfa.
Stjórn var þannig skipuð að loknum aðalfundi, og skipti svo
með sér verkum:
Ester Rut Unnsteinsdóttir, formaður
Hrefna Sigurjónsdóttir, varaformaður
Hrefna Berglind Ingólfsdóttir, ritari
Bryndís Guðrún Róbertsdóttir, gjaldkeri
Anna Heiða Ólafsdóttir, félagsvörður
Helena W. Óladóttir, fræðslustjóri
Hlín Halldórsdóttir, vefstjóri
Þetta er í fyrsta sinn í hinni löngu sögu félagsins sem
stjórnin er einungis skipuð konum. Skoðunarmenn reikninga,
þeir Sveinbjörn Egill Björnsson og Steinþór Níelsson, voru
endurkjörnir í fyrra til tveggja ára svo ekki þurfti að kjósa
skoðunarmenn.
Á árinu voru haldnir 11 reglulegir stjórnarfundir. Að
auki voru haldnir nokkrir óformlegir fundir stjórnar, eða
hluta stjórnar, vegna sérstakra mála eftir því sem þörf var á.
Ritstjóri sat nokkra fundi og að venju var fundur með stjórn,
ritstjóra og formanni ritstjórnar í desember.
FÉLAGSMENN
Tveir heiðursfélagar voru tilnefndir á aðalfundi 2022: Ágúst
H. Bjarnason, fyrrverandi formaður HÍN, og Álfheiður Inga-
dóttir, fyrrverandi ritstjóri Náttúrufræðingsins. Umfjöllun
um ákvörðun stjórnar er að finna á vef HÍN.
Í félaginu voru 1053 í árslok 2022, þar af 954 einstaklingar.
Karlar voru 615 eða 64,5% og konur 339 eða 35,5%. Til við-
bótar komu 82 opinberar stofnanir og sveitarfélög, 4 félaga-
samtök, 5 fyrirtæki og 8 erlendar stofnanir. Í félagið gengu 23
á árinu 2022, 19 sögðu sig úr félaginu og 14 félagsmenn létust.
TÍMARITIÐ NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Útgáfa tímaritsins er samstarfsverkefni Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags og Náttúruminjasafns Íslands samkvæmt
samningi frá árinu 2014 sem var endurnýjaður árið 2021.
Greiðir hvor aðili helming af útgáfukostnaði og laun ritstjóra.
Nýr ritstjóri, Margrét Rósa Jochumsdóttir, hóf störf í árs-
byrjun 2022. Tímaritið, sem hefur verið gefið út frá árinu 1931,
er mikilvægasta verkefni félagsins og dýrmætasta eign þess.
Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi ritstjóri, var Margréti
Rósu innan handar í fyrstu. Starfsaðstaða ritstjóra er í hús-
næði Náttúruminjasafns Íslands á Suðurlandsbraut 24. Þar er
jafnframt lögheimili félagsins.
Margrét vann að hefðbundinni útgáfu tímaritsins jafnframt
því að undirbúa vefútgáfu þess. Sem ritstjóri kallar hún saman
Náttúrufræðingurinn
80 Náttúrufræðingurinn 93 (1–2) bls. 80–84, 2023