Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 82
dóttir og Sindri Gíslason, og tveir fulltrúar úr stjórn HÍN, þær
Gróa Valgerður Ingimundardóttir og Helena W. Óladóttir, auk
Snæbjörns Guðmundssonar, fulltrúa NMSÍ. Ritstjóri vann sjálf
mestu vinnuna og var aðkeypt sérfræðiþjónusta í lágmarki,
aðallega til uppsetningar formsins sem varð fyrir valinu.
Margrét hefur unnið þrekvirki og það er með mikilli gleði
sem við tilkynnum að nú, á þessum aðalfundi, verður vefritið
opnað formlega og verður allt efni þess opið héðan í frá.
FRÆÐSLUERINDI
Áður en aðalundarstörf hófust 28. febrúar 2022 hélt Sig-
rún Helgadóttir líffræðingur erindi um bók sína, Sigurður
Þórarinsson. Mynd af manni, en fyrir bókina fékk Sigrún bók-
menntaverðlaunin í flokki fræðibóka. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur var um skeið formaður HÍN og þótt formanns-
tíð hans hafi verið stutt hafði hann mikil áhrif á starf félags-
ins, og verk hans voru í samræmi við markmið þess enda var
hann ötull í að miðla fróðleik um náttúru landsins.
MÁLÞING
Málþing um skógrækt, loftslagsmál og lífríki Íslands var
haldið í samstarfi við Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN)
hinn 30. nóvember 2022. Flutt voru áhugaverð erindi, málin
rædd á kaffiborðum og í lokin var umræða á tvískiptu pall-
borði. Í undirbúningshóp tóku þátt þau Ólafur Karl Nielsen,
Jón Gunnar Ottósson og Kristín Svavarsdóttir auk Esterar
Rutar Unnsteinsdóttur, Helenu W. Óladóttur og Hrefnu Sig-
urjónsdóttur fyrir hönd stjórnar HÍN og Orra Þrastarsyni
fyrir hönd FÍN. Undirbúningur og framkvæmd var í höndum
Sólrúnar Harðardóttur. Katrín Oddsdóttir lögfræðingur
stýrði dagskrá og umræðum á tvískiptu pallborði. Málþingið
var vel heppnað og aðsókn mjög góð, og hægt var að fylgjast
með í streymi. Upplýsingar um málþingið og glærusýningar
framsögumanna má nálgast á vef HÍN.
FRÆÐSLUFERÐIR
Fræðsluferð umhverfis Esjuna var áætluð í ágúst og auglýst
en frestað af óviðráðanlegum ástæðum. Skipulag og leiðsögn
lá fyrir og vonandi verður hægt að fara þessa spennandi ferð
á þessu starfsári.
Á aðventunni, hinn 13. desember 2022, bauð Náttúruminja-
safn Íslands félögum og gestum þeirra að heimsækja nýtt sýn-
ingarhúsnæði Náttúruminjasafnsins á Seltjarnarnesi. Hilmar
J. Malmquist, forstöðumaður NMSÍ, tók á móti gestum og
sagði frá samkeppni um hönnun og framtíðaráform safnsins.
Afar kalt var í húsinu enda hörkufrost úti en húsið rétt fokhelt
og ekki kynt. Stjórn HÍN bauð upp á heitt aðventuglögg og
smákökur til að hlýja þeim sem komu á viðburðinn.
STUÐNINGUR VIÐ ÝMIS MÁLEFNI
Félagið veitti 50 þúsund króna styrk til að styðja við sýningu
um ævi og starf Helga Pjeturss, jarðfræðings og rithöfundar,
sem opnuð var í Landsbókasafni 31. mars 2022 í tilefni þess að
150 ár voru liðin frá fæðingu hans.
Formaður Flóruhóps, Gróa Valgerður Ingimundardóttir,
sótti ársfund norrænu grasafræðifélaganna sem haldinn var
í Uppsölum í Svíþjóð dagana 29.−30. október 2022. Félagið
greiddi útlagðan kostnað Gróu vegna fundarins að upphæð
kr. 63.945, en hún er búsett í Svíþjóð.
FRJÁLS FÉLAGASAMTÖK
Í febrúar 2021 var Hrefna Sigurjónsdóttir, varaformaður HÍN,
tilnefnd til tveggja ára í þriggja manna hóp sem hefur það hlut-
verk að vera tengiliður umhverfis- og auðlindaráðuneytisins
(nú umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins) og náttúru- og
umhverfisverndarsamtaka sem eiga fulltrúa í ýmsum nefndum
sem ráðherra skipar. Hópurinn leitar eftir tilnefningum frá
félögunum þegar óskir um slíkt berast frá ráðuneytinu. Þegar
tilnefningar eru komnar kjósa formenn félaganna á milli fram-
bjóðendanna og hópurinn tilkynnir niðurstöðu valsins til ráðu-
neytisins. Hópurinn er einnig til reiðu þegar ráðuneytið þarf
að koma upplýsingum áleiðis og/eða vill ræða breytingar á
samstarfssamningi við félögin. Virkni félagsins í málum sem
þessum er meðal þeirra atriða sem tekin eru til skoðunar við
afgreiðslu styrkumsókna félagsins til stjórnarráðsins. Þetta
fyrirkomulag er byggt á samstarfsyfirlýsingu ráðuneytisins og
frjálsra félagasamtaka frá 18. maí 2001 í samræmi við ákvæði
Árósasamningsins frá 1998. Samkvæmt þessu fyrirkomulagi
boðar ráðherra til samráðsfundar, kallar eftir tilnefningum frá
frjálsum félagasamtökum og veitir styrki til starfsemi þeirra.
Á brún Hornbjargs. Miðdalsgjáin,
Jörundur (429m) og Kálfatindar (534m).
Ljósmynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir.
Náttúrufræðingurinn
82