Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 83
Í stuttu máli boðaði umhverfis-, orku- og og loftslagsráð-
herra aldrei til árlegs samráðsfundar árið 2022, og kallaði
aðeins eftir tveimur tilnefningum í nefndir og ráð í gegnum
tengiliðahópinn. Beiðni frá ráðuneytinu barst beint til félags-
ins í lok nóvember um að tilnefna fulltrúa í ráðgjafarnefnd um
stjórn vatnamála. Félagið sendi svar til ráðuneytisins og til-
nefndi Bjarna Kristófer Kristjánsson, en kom upplýsingunum
einnig á framfæri við tengiliðahópinn, sem hafði ekki fengið
erindið á sitt borð. Ráðuneytið auglýsti ekki styrki til félaga-
samtaka á sviði náttúru- og umhverfisverndar í nóvember
2022 eins og gert hafði verið áður. Landvernd tók boltann og
var haldinn samráðsfundur án ráðherra 1. desember þar sem
þessi mál voru meðal annars á dagskrá. Ester formaður sótti
fundinn fyrir hönd stjórnar og þar lýstu fulltrúar samtakanna
yfir áhyggjum sínum af skorti á samráði og því að lítið væri
beðið um tilnefningar í opinbera starfshópa, nefndir og ráð.
Svo virtist sem gengið hefði verið fram hjá félögunum. Jafn-
framt höfðu forsvarsaðilar félaganna áhyggjur af fjármögnun
starfsemi félaganna á komandi ári, þar sem ekki hafði verið
auglýst eftir styrkumsóknum. Lögð voru drög að bréfi til ráð-
herra sem fulltrúar 22 félagasamtaka undirrituðu, og sá Land-
vernd um að senda bréfið.
Ráðuneytið brást vel við og í kjölfarið boðaði ráðherra,
Guðlaugur Þór Þórðarson til fundar sem haldinn var í streymi
í janúar 2023. Hann sótti Bryndís G. Róbertsdóttir gjaldkeri
fyrir hönd stjórnar. Auglýsing um rekstrarstyrki fór í loftið í
framhaldi af fundinum og rennur umsóknarfrestur út 27. febr-
úar [í dag]. HÍN sækir að sjálfsögðu um styrk til rekstursins og
hefur Bryndís gjaldkeri unnið í þeirri umsókn. Afar mikilvægt
er að félagið fái stuðning til að halda úti mikilvægri starfsemi
sinni og útgáfu Náttúrufræðingsins.
Jafnframt hafatvær beiðnir borist félögunu um tilnefn-
ingar. Auglýst var eftir fulltrúa í samráðsnefnd um sjálfbærar
veiðar og ráðstöfun veiðikorta og tilnefndi félagið þar einn
aðalfulltrúa og annan til vara. Ekki hefur verið gengið frá
þeirri tilnefningu.
Auk þess var nýverið auglýst eftir tilnefningu fulltrúa í
nefnd sem velur handhafa Kuðungsins, en það eru verðlaun
til fyrirtækja sem þykja hafa staðið sig vel í umhverfismálum.
Búið er að velja þann fulltrúa og varamann.
HEIMSMARKMIÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Forsætisráðherra hyggst kynna stöðu Íslands gagnvart
heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
á ráðherrafundi í New York í júlí 2023. Þá verður kynnt skýr-
sla (Voluntary National Review, VNR) þar sem gerð er grein
fyrir aðgerðum stjórnvalda í þágu markmiðanna og stöðu
innleiðingar þeirra hér á landi. Félag Sameinuðu þjóðanna á
Íslandi fer með verkefnisstjórn sem felst í því að skapa sam-
ráðsvettvang frjálsra félagasamtaka (og hagaðila) sem tengj-
ast heimsmarkmiðunum á ýmsan hátt. Fulltrúar félagasam-
takanna vinna með verkefnisstjórn að sameiginlegu mati á
stöðu og innleiðingu markmiðanna. HÍN tekur þátt í starfi
vinnuhópa fyrir heimsmarkmið 4, 13, 14, og 15 á vegum ver-
kefnastjórnar, en þau fjalla um menntun fyrir alla, aðgerðir í
loftslagsmálum, líf á landi og líf í vatni. Helena W. Óladóttir og
Hlín Halldórsdóttir eru fulltrúar HÍN í þessum vinnuhópum
en Ester formaður sótti fyrstu fundina fyrir hönd félagsins.
SKÝRSLA FAGHÓPS FLÓRUVINA
Formaður Flóruvina á árinu var Gróa Valgerður Ingimundar-
dóttir. Að auki störfuðu í nefndinni Hörður Kristinsson í
heiðurssæti, Pawel Wasowicz, Snorri Sigurðsson og Starri
Heiðmarsson. Mikinn hluta ársins þurfti formaður hópsins
að taka sér leyfi frá félagsstörfum og tóku þá aðrir nefndar-
menn við keflinu.
Facebook-hópur Flóruvina hélt áfram að vaxa á árinu og eru
þáttakendur nú 3.451 meðlimi. Virknin datt þó niður á árinu
samanborið við árið á undan og varð hópurinn auk þess fyrir
barðinu á nettröllum. Fylgjendum Facebook-síðu Flóruvina
fjölgaði um tæpa fimm tugi, og þar höfum við komið á framfæri
helstu fréttum. Undirvef Flóruvina á vefsetri HÍN var viðhaldið
og bæði fréttir og fróðleiksmola frá Flóruvinum má skoða þar
sérstaklega með því að velja fréttaflokkinn „Flóruvinir“.
Gróa sótti sameiginlegan fund grasafræðifélaga Norður-
landa dagana 29.–30. október 2022 í Uppsölum, í húsakynnum
sænska grasafræðifélagsins (Svensk botanisk förening). Á
þennan fund komu fulltrúar norska grasafræðifélagsins
(Norsk botanisk forening), danska grasafræðifélagsins (Dansk
botanisk forening), finnskra áhugamanna um grasafræði (þeir
hafa ekki eigið grasafræðifélag), auk okkar og sænsku gest-
Frá málþingi um skóg-
rækt, loftslagsmál og líf-
ríki Íslands sem haldið
var í lok nóvember
2022. Ljósmynd: Anna
Heiða Ólafsdóttir.
83