Skólavarðan - 2023, Page 13
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 13
Formaður FSL / VIÐTAL
Hægt að hægja á hröðum vexti
Við víkjum talinu að sjálfu leikskóla-
kerfinu sem byggir vissulega á sterkum
faglegum stoðum en hefur vaxið á
ógnarhraða síðustu árin. Krafan um
að æ yngri börn fái pláss hefur orðið
háværari síðustu misserin.
„Leikskólinn hefur vaxið mjög
og miklu hraðar en æskilegt er enda
gengur afar brösuglega að uppfylla
lagaskylduna um að 2/3 starfsmanna-
hópsins séu kennarar. Þetta er stað-
reynd þótt vissulega hafi náðst að fjölga
kennaranemum töluvert með markvissu
átaki. Hér þarf að bæta enn frekar í og
þá skiptir miklu að háskólarnir sem
mennta kennara fái nægilegt fjármagn.
Við höfum því miður séð nemendum
vísað frá vegna fjöldatakmarkana.“
Sigurður segir að vel megi halda
aftur af hraðri stækkun leikskólastigs-
ins. „Það er mögulegt ef viljinn er fyrir
hendi. Á sama tíma verðum við hjá
Kennarasambandinu og sveitarfélögun-
um að vinna saman að því marki að
lög um hlutfall kennara í starfsmanna-
hópnum séu uppfyllt.“
Leikskólastigið er ekki
skylduverk efni sveitarfélaganna og á
almennum vinnumarkaði er oft talað
um leikskólana sem þjónustustofnanir.
„Við höfnum auðvitað þessari umræðu
enda er leikskólinn fyrsta skólastigið
samkvæmt 1. grein laga um leikskóla.
Í 2. grein sömu laga er fjallað um
markmið leikskólanna en hvergi koma
fyrir orðin þjónusta eða þjónustustofn-
un. Skipulag leikskólastarfs miðast við
uppeldi, umönnun og menntun barna.“
Dropinn holar steininn
Starfskjör og vinnuumhverfi eru
mikilvægir þættir í störfum stjórnenda
sem annarra. Hvaða árangur hefur
náðst í vinnuumhverfismálum á síðustu
misserum og hvað er í bígerð?
„Við eigum mikið óunnið í vinnu-
umhverfismálum og því miður er enn
langt í land með að vinnuumhverfi barna
og fullorðinna sé viðunandi í öllum
leikskólum. FSL hefur unnið ötullega að
því að fræða stjórnendur, sveitarstjórn-
arfólk, ráðherra og stjórnvöld um hvaða
vandamál eru helst uppi er kemur að
vinnuumhverfi, og vinnurými barna og
fullorðinna í leikskólum.
Víða eru starfsaðstæður þannig
að þær eru beinlínis brot á reglum. Því
miður höfum við talað fyrir daufum
eyrum og lítið hefur þokast að okkar
mati. En dropinn holar steininn og við
höldum verkinu áfram. Meðal annars
höfum við bent sveitarfélögum og
rekstraraðilum á reglur um húsnæði
vinnustaða sem alltof víða eru ekki
virtar. Ég vil nýta tækifærið og hvetja
stjórnendur til að fara yfir ástandið
í sínum skólum og ég er tilbúinn að
ræða málin við fulltrúa sveitarfélag-
anna svo hægt sé að gera áætlanir um
betrumbætur þannig að markmiðum
byggingaeglugerða verði náð.“
Sigurður segir vert að nefna að
á sama tíma og ástandið sé slæmt í
mörgum leikskólum þá sé alltaf verið að
byggja einn og einn nýjan skóla þar sem
vinnuaðstæður séu í samræmi við kröf-
ur nútímans. „Viðhaldi skólabygginga
hefur verið ábótavant víða og þá kemur
upp vandi sem mörg sveitarfélög standa
frammi fyrir, svo sem vond loftgæði,
raki og mygla – en síðastnefndu atriðin
geta haldið leikskólum í gíslingu á
meðan unnið er að lausn.“
Ferillinn
X Sigurður útskrifaðist með
B.Ed. í leikskólakennarafræðum
árið 1999.
X Starfaði sem leikskólakennari
við leikskólana Dal og Kjarrið í
Kópavogi að lokinni útskrift.
X Tók við sem leikskólastjóri
leikskólans Skýjaborgar í Hval-
fjarðarsveit árið 2003.
X Varð síðan aðstoðarleik-
skólastjóri og sérkennslustjóri við
leikskólann Akrasel á Akranesi
2011.
X Árið 2016 tók Sigurður við
starfi leikskólastjóra leikskólans
Andabæjar á Hvanneyri.
X Kosinn formaður Félags
stjórnenda leikskóla árið 2018 og
gegnir því embætti í dag. Gegndi
embætti varaformanns árin fjögur
á undan.
X Hefur sinnt trúnaðarstörfum
fyrir félagið frá stofnun og þar áður
fyrir Félag leikskólakennara.