Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 62

Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 62
AÐSENT / Tanía Björk og Saga Hilma U ndanfarin þrjú ár hefur leikskólinn Gefnarborg í Garði tekið þátt í og verið stýri- skóli í Erasmus+ verkefninu Inclusion through sensory integration eða Skyn- reiða með inngildingu að leiðarljósi, ásamt samstarfsleikskólum í Króatíu, Rúmeníu, Svíþjóð og á Grikklandi. Verkefnið skiptist í þrjú tímabil þar sem unnið var með læsi, útinám, sköpun og námshvetjandi umhverfi. Eftir fyrsta tímabilið heimsóttu kennarar frá hinum þátttökulöndunum Gefnarborg og fengu að kynnast leikskólanum og umhverf- inu. Síðan þá hafa verið farnar fjórar ferðir þar sem starfsmenn Gefnarborgar heimsóttu hin þátttökulöndin. Sú síðasta var farin í maíbyrjun en þá fóru sex kennarar á vegum Gefnarborgar til Târgoviște í Rúmeníu. Í skólaheimsókn- um til þátttökulandanna fá þátttakend- ur meðal annars að kynnast menningu landsins og daglegu starfi leikskólanna. Markmið verkefnisins er að nýta skynreiðu (e. Sensory integration) sem aðferð til að stuðla að inngildingu innan barnahópsins. Með inngildingu er átt við að öll börn upplifi að þau tilheyri samfélaginu óháð bakgrunni, það er fjárhag, menningu, tungumáli, fötlun og svo framvegis. Skynreiða á sér stað þegar heilinn sameinar skilaboð frá fleiri en einu skynfæri, þannig að úr verður skiljanleg heild. Hver skynjun styrkir aðra og að nýta fleiri skiln- ingarvit hjálpar til við að festa í minni. Meðan á verkefninu stóð þróaðist aðferð sem við köllum læsistengda skynjun. Þá er unnið með bækur, sögur og ljóð á þann veg að kennarar og börn leita að tækifærum til þess að vinna með skynjun út frá innihaldi textans. Með þessari nálgun fá öll börn möguleika til að upplifa söguna og öðlast skilning á sínum forsendum. Þetta hjálpar til dæmis börnum með annað móðurmál að líða vel og finna sig betur þar sem aðaláherslan er ekki lengur á talað mál. Rauðhetta og sagan um Búkollu eru dæmi um sögur sem unnið var með í öllum löndunum. Einnig var unnið með tónlist eins og sinfóníu nr. 9 (The New World) eftir Dvořák. Í Búkollu er hægt að skynja ýmislegt, eins og bergmálið þegar kýrin baular, smakka mjólk, smjör og ost, fara í feluleiki þar sem við leitum að Búkollu, klífa fjöll og hóla og margt fleira. Í heimsókninni í leikskólann Gradinita nr. 1 í Târgoviște í Rúmeníu fengu þátttakendur að fylgjast með samverustund barnanna. Þar var sagan af Búkollu sögð á líflegan og skemmti- legan máta. Börnin tóku virkan þátt í flutningnum með því að festa myndir af sögupersónum á sögusvuntu kennar- ans. Augljóst var að börnin þekktu söguna um Búkollu vel og lifðu sig inn í söguna, þrátt fyrir gestkomendur sem fylgdust einnig með. Að sögustund lokinni bauðst börnunum að fara á Aðsend grein Hvað heitir strákurinn í Búkollu? mismunandi stöðvar sem áttu það sam- eiginlegt að tengjast sögunni. Þar var meðal annars hægt að „mjólka“ kú, búa til ost, hjálpa stráknum að rata í gegnum völundarhús, teikna söguna og búa til fjós. Það var mikil uppskera fyrir íslensku gestina að sjá þjóðsöguna í nýjum búningi og frá nýju sjónarhorni. Rúmensku börnin höfðu beðið eftir tækifæri til að spyrja íslenska hópinn um nafn stráksins í sögunni Búkollu en það var fátt um svör. Ef til vill er einhver fróður sem veit hvað strákurinn heitir? Tanía Björk Gísladóttir, jógakennari og nemi í sjúkra- þjálfun með B.a. í mann- fræði Saga Hilma Sverrisdóttir leikskóla- kennari 62 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.