Skólavarðan - 2023, Qupperneq 62
AÐSENT / Tanía Björk og Saga Hilma
U ndanfarin
þrjú ár hefur
leikskólinn
Gefnarborg í
Garði tekið þátt
í og verið stýri-
skóli í Erasmus+ verkefninu Inclusion
through sensory integration eða Skyn-
reiða með inngildingu að leiðarljósi,
ásamt samstarfsleikskólum í Króatíu,
Rúmeníu, Svíþjóð og á Grikklandi.
Verkefnið skiptist í þrjú tímabil þar sem
unnið var með læsi, útinám, sköpun og
námshvetjandi umhverfi. Eftir fyrsta
tímabilið heimsóttu kennarar frá hinum
þátttökulöndunum Gefnarborg og fengu
að kynnast leikskólanum og umhverf-
inu. Síðan þá hafa verið farnar fjórar
ferðir þar sem starfsmenn Gefnarborgar
heimsóttu hin þátttökulöndin. Sú
síðasta var farin í maíbyrjun en þá fóru
sex kennarar á vegum Gefnarborgar til
Târgoviște í Rúmeníu. Í skólaheimsókn-
um til þátttökulandanna fá þátttakend-
ur meðal annars að kynnast menningu
landsins og daglegu starfi leikskólanna.
Markmið verkefnisins er að nýta
skynreiðu (e. Sensory integration) sem
aðferð til að stuðla að inngildingu innan
barnahópsins. Með inngildingu er átt
við að öll börn upplifi að þau tilheyri
samfélaginu óháð bakgrunni, það er
fjárhag, menningu, tungumáli, fötlun
og svo framvegis. Skynreiða á sér stað
þegar heilinn sameinar skilaboð frá
fleiri en einu skynfæri, þannig að úr
verður skiljanleg heild. Hver skynjun
styrkir aðra og að nýta fleiri skiln-
ingarvit hjálpar til við að festa í minni.
Meðan á verkefninu stóð þróaðist
aðferð sem við köllum læsistengda
skynjun. Þá er unnið með bækur, sögur
og ljóð á þann veg að kennarar og börn
leita að tækifærum til þess að vinna með
skynjun út frá innihaldi textans. Með
þessari nálgun fá öll börn möguleika
til að upplifa söguna og öðlast skilning
á sínum forsendum. Þetta hjálpar til
dæmis börnum með annað móðurmál
að líða vel og finna sig betur þar sem
aðaláherslan er ekki lengur á talað mál.
Rauðhetta og sagan um Búkollu eru
dæmi um sögur sem unnið var með í
öllum löndunum. Einnig var unnið með
tónlist eins og sinfóníu nr. 9 (The New
World) eftir Dvořák. Í Búkollu er hægt
að skynja ýmislegt,
eins og bergmálið
þegar kýrin baular,
smakka mjólk,
smjör og ost, fara
í feluleiki þar sem
við leitum að Búkollu,
klífa fjöll og hóla og margt
fleira.
Í heimsókninni í leikskólann
Gradinita nr. 1 í Târgoviște í Rúmeníu
fengu þátttakendur að fylgjast með
samverustund barnanna. Þar var sagan
af Búkollu sögð á líflegan og skemmti-
legan máta. Börnin tóku virkan þátt í
flutningnum með því að festa myndir af
sögupersónum á sögusvuntu kennar-
ans. Augljóst var að börnin þekktu
söguna um Búkollu vel og lifðu sig inn
í söguna, þrátt fyrir gestkomendur sem
fylgdust einnig með. Að sögustund
lokinni bauðst börnunum að fara á
Aðsend grein
Hvað heitir strákurinn í
Búkollu?
mismunandi stöðvar
sem áttu það sam-
eiginlegt að tengjast
sögunni. Þar var
meðal annars hægt að
„mjólka“ kú, búa til ost,
hjálpa stráknum að rata í
gegnum völundarhús, teikna
söguna og búa til fjós. Það var mikil
uppskera fyrir íslensku gestina að sjá
þjóðsöguna í nýjum búningi og frá nýju
sjónarhorni. Rúmensku börnin höfðu
beðið eftir tækifæri til að spyrja íslenska
hópinn um nafn stráksins í sögunni
Búkollu en það var fátt um svör. Ef til
vill er einhver fróður sem veit hvað
strákurinn heitir?
Tanía Björk
Gísladóttir,
jógakennari og
nemi í sjúkra-
þjálfun með
B.a. í mann-
fræði
Saga Hilma
Sverrisdóttir
leikskóla-
kennari
62 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023