Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 42

Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 42
42 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023 KENNARASAMBANDIÐ / Skólamálaþing KÍ að hafa teymið fámennt; einn ráðgjafa, tvo kennara sem kenna öllum hópnum og einn kennara sem hefur yfirumsjón með öllum nemendunum og er í tengslum við foreldra þeirra. Þetta fyrirkomulag hefur reynst betra fyrir umsjónar- kennara sem og foreldra barn- anna. Þá hefur allt efni sem ætlað er foreldrum verið þýtt sem greiðir fyrir samskiptum og þátttöku foreldra í skólastarfi. Með því að leggja strax í fyrstu kennsluviku sænska stöðu- prófið fyrir nemendur í öllum helstu fögum á þeirra tungumáli hefur reynst auðveldara að staðsetja nemendurna, sem þýðir að öll kennsla verður markvissari og námsmatið betra. Sigrún Helga gagnrýndi mikinn drátt á náms- efni fyrir þennan hóp nemenda og kallaði eftir því hið snarasta. Er pláss fyrir mig í skólanum? Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tæknimenntaskólans og fulltrúi framhaldsskólastigsins, fjallaði um nám fólks af erlendum uppruna í Tæknimenntaskólanum undir heitinu „Er pláss fyrir mig í skólanum?“, en Tæknimennta- skólinn býður upp á íslenskubraut fyrir útlendinga. Á haustönn 2023 eru um 150 nemendur á brautinni, af rúmlega 45 þjóðernum. Þessir nemendur hafa komið til landsins á mjög ólíkum forsendum, eru flóttamenn, hælisleitendur, fylgdarlaus börn eða með foreldr- um hér á landi vegna vinnu, og eru með mjög ólíkt bakland. Framboðið annar engan veginn eftirspurn, benti Jóna Dís á, og biðin eftir að komast að getur verið löng. „Ástandið er hrikalegt hjá þessum hópi, sem í raun hefur að engu öðru að hverfa. Það er ekkert sem bíður þeirra. Þetta eru nemendur sem tala enga íslensku í flestum tilfellum og hafa litla skólagöngu að baki. Við erum nánast eina úrræðið fyrir þau.“ Það eru þá fleiri hindranir við að komast að í námið, en oft þurfa einstaklingar aðstoð við að sækja um og við innskráningu og sum hver eru ekki með kennitölu sem flækir málið. Námstíminn er 2-4 ár. Við lok náms eru svo fjölbreyttar leiðir í boði, ýmist til framhaldsnáms, en hægt er að taka þrjár annir til viðbótar og útskrifast með stúd- entspróf, eða nemendur geta fært sig á aðra braut innan Tækniskól- ans. Fjöldi nemenda hefur nýtt sér þau úrræði og sögur af velgengni nemenda eru margar, eins og kom í ljós í erindi Jónu Dísar. Ólst upp við tvo menn- ingarheima Isabel Alejandra Díaz, stjórnmála- fræðingur, verkefnisstjóri hjá HÍ og ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, var síðasti ræðumaður þingsins og sagði frá reynslu sinni sem nemandi af erlendum uppruna á Íslandi. Fjölskyldan, sem er frá El Salvador í Mið-Ameríku, fluttist til Ísafjarðar árið 2000. Spænska var „heimatungumálið“, eins og Isabel útskýrði. Hún ólst því upp við tvo menningarheima, þar sem íslenskar hefðir og gildi voru ríkjandi. Samkvæmt rannsókn Miðju máls og læsis er tími grunnskóla- barns í íslensku málumhverfi um 21 prósent vökutímans. Isabel tel- ur að í hennar tilfelli hafi þó yfir 70 prósent af vökutíma verið varið í íslensku málumhverfi á grunnskólaárunum. Í skólanum, frístund og tómstundum og með íslenskri fjölskyldu sinni, „ömmu“ og „afa“, og frændsystkinum sínum, sem áttu íslenska móður. „Það hafði áhrif á að svona vel tókst til,“ telur hún. „Markmiðið verður að vera að börn af erlendum uppruna sjái tilgang í því að læra málið,“ segir Isabel. Þannig fái fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn að blómstra. Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, sleit svo þingi með þessum orðum:„Ég vona að þið farið heim fróðari eftir daginn og að erindi dagsins hafi kveikt í ykkur eldmóð um að halda áfram góðu starfi og gera enn betur í því mikilvæga verkefni að taka sem best á móti nemendum af erlendum uppruna.“ Skólinn getur verið sá öruggi og inngildandi staður sem „hin ungu og nýju“ finna sig aftur heima. Eva Harðardóttir Eva Harðardóttir, aðjúnkt og doktorsnemi. Isabel Alejandra Díaz, stjórnmálafræðingur, verkefnisstjóri hjá HÍ og ung- mennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tæknimenntaskólans. Sigurbjört Kristjánsdóttir, deildarstjóri í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.