Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 14

Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 14
14 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023 UMFJÖLLUN / Kennarahúsið Þ au tímamót urðu í sumar, nánar tiltekið miðviku- daginn 14. júní, að Kennarahúsinu við Laufásveg var formlega skilað til ríkisins. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, afhenti Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð- herra lykla að húsinu við hátíðlega athöfn þar sem starfsfólk Kennara- sambandsins, kjörnir fulltrúar, fyrrum forystufólk og fulltrúar stjórnvalda komu saman. Þar með lauk merkum kafla í sögu kennaramenntunar og sam- taka kennara, sem eiga yfir 100 ára sögu í húsinu. Kennarasambandið hafði aðsetur í húsinu í nærfellt þrjátíu ár, en eins og flestir vita flutti KÍ starfsemina í nútímalegt skrifstofuhúsnæði við Borgartún árið 2020. Valgeir Gestsson, fyrrum skrifstofustjóri KÍ, ávarpaði samkomuna og sagði frá sögu hússins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók við lyklum úr hendi Magnúsar Þórs Jónssonar formanns og þakkaði Kennara- sambandinu fyrir það hversu vel var hugsað um húsið. Hún sagði jafnframt að húsinu yrði fundið verðugt hlutverk en ekkert hefði verið ákveðið í þeim efnum enn. Löng og merkileg saga Kennarahúsið var reist á 600 ferfaðma lóð sunnan í Skólavörðu- hæð og austan Laufásvegar árið 1908. Einar Erlendsson, húsa- meistari ríkisins, teiknaði húsið. Það þótti kostur að skólahúsið væri í góðri fjarlægð frá miðbænum. „Kennaraskólinn er vegleg bygging sem reist var af framsýni á góðum stað langt fyrir utan þá byggð sem þá var í Reykjavík. Svipur hússins einkennist af notkun þess. Gluggasetning er sérstök enda skólastofurnar bjartar og þar er hátt til lofts,“ skrifaði Nanna Hermannsson borgarminjavörður í bréfi til Húsafriðunarnefndar árið 1983. Það ár var húsið friðlýst svonefndri B-friðun. Kennaraskóli Íslands tók formlega til starfa í húsinu haustið 1908. Magnús Helgason var skip- aður skólastjóri hins nýstofnaða skóla en kennaramenntun hafði fram að því aðeins verið í boði í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Kennt var frá fyrsta vetrardegi til 31. mars. Þægindi voru af skornum skammti fyrstu árin, en vatnsveita kom þó í bæinn árið 1909 og þá þurfti ekki lengur að bera vatn í húsið. Vatnssalerni leysti útikamra af árið 1915 og átta árum seinna var rafmagn dregið í húsið. Skólastjórarnir bjuggu í húsinu Magnús Helgason stýrði skólanum til ársins 1929. Við starfi skólastjóra tók þá Freysteinn Gunnarsson. Í þá daga var til siðs að skólastjórar hefðu íbúð í húsinu, en hún var á annarri hæð þess. Freysteinn bjó í húsinu í 40 ár ásamt konu sinni, Þorbjörgu Sigmundsdóttur. Þau komu tveimur börnum á legg. Árið sem Freysteinn tók við, 1930, var ráðist í töluverðar framkvæmdir í húsinu. Dúkur var lagður á gólf og stiga og innveggir klæddir með krossvið. Gaman er að geta þess að dúkur þessi er enn á báðum stigum hússins og er afar heillegur. Starfsemi Kennaraskólans gekk sinn gang en árið 1937 var námið lengt úr þremur árum í fjögur og árið 1947 var gerð krafa um að nemendur hefðu lokið landsprófi. Nemendum við skólann fjölgaði eftir því sem árin liðu og árið 1950 þóttu húsakynnin heldur betur þrengja að starfseminni. Þá sagði Freysteinn skólastjóri í viðtali við Alþýðublaðið að nemendur væru um 100 talsins og kennarastofan rúmaði ekki lengur alla kennarana. Í greininni sagði jafnframt að þó að skólahúsið við Starfsfólk Kennarasambandsins, kjörnir fulltrúar, fyrrum for- ystufólk og fulltrúar stjórnvalda kvöddu gamla Kennarahúsið. Kennarahúsið formlega kvatt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.