Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 52
52 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023
AÐSENT / Jóhann Páll Ástvaldsson
Aðsend grein
Stysta leiðin til Evrópu
Jóhann Páll Ástvaldsson, verkefnisstjóri eTwinning á Íslandi
e Twinning
er rafrænt
skólasamstarf
á netinu þar
sem íslenskir
kennarar
geta komist í samband við
kennara um alla Evrópu, kynnst
evrópskum starfsháttum og
skiptst á þekkingu, auk þess sem
íslenskum þátttakendum gefst
kostur á að fara á ráðstefnur
víðs vegar um Evrópu þeim
að kostnaðarlausu. eTwinning
verkefni eru tilvalin til að brjóta
upp daglegt skólastarf og kynna
jafnt nemendur og kennara fyrir
annari menningu, tungumáli og
siðum. En hvert geta kennarar
farið? Hvernig verkefnum eru
íslenskir skólar að vinna að?
eTwinning samstarfið gefur
kennurum lausan tauminn til að
skapa verkefni að eigin vild, þar
sem þeir hafa frjálsar hendur
til að móta verkefnin að sínum
nemendum. eTwinning verkefni
gefa kennurum einnig kost á
að deila hugmyndum og vinnu
nemenda sinna með öðrum.
Bæði er hægt að ganga inn í
verkefni sem þegar eru í gangi
eða stofna sín eigin. Möguleik-
arnir eru endalausir – hvort sem
íslenskir kennarar vilja vinna
með kollegum frá Finnlandi,
Póllandi, Portúgal eða Jórdaníu.
Frá páskum til bátaleika
Algengt er að kennarar leggi upp
með verkefni tengd árstíðum
eða hátíðum. Jól og páskar eru
vinsælar hátíðir og oft leynist
snilldin í einfaldleikanum. Til
að mynda er hægt að skreyta
jólakort og senda á milli
Evrópulanda. Þá eru bátaleik-
arnir verkefni sem allir íslenskir
grunnskólar ættu að athuga, en
þar smíða nemendur sína eigin
báta og keppa við samnemendur
sína í öðrum Evrópulöndum.
Rósa Harðardóttir, skólastjóri
Selásskóla og einn af svokölluð-
um eTwinning sendiherrum á
Íslandi, getur veitt áhugasömum
kennurum upplýsingar um
bátaleikana.
Hvert sendum við kennara?
Árlega fer fjöldi kennara þeim
að kostnaðarlausu á ráðstefnur.
Árið 2024 munu kennarar á
öllum skólastigum t.d. vera á
faraldsfæti til Georgíu, Noregs,
Möltu og Finnlands. Síðan eru
fyrirhugaðar ferðir til Hollands,
Austurríkis, Grikklands og Belgíu
árið 2025. Þá er einnig boðið upp
á mikla starsfþróunarmöguleika í
gegnum námskeið sem fara fram
alfarið rafrænt.
Hvernig verkefni eru þetta?
Verkefnin sem skólar stofna til
eru gífurlega fjölbreytt – allt frá
efnafræðitilraunum á leikskóla-
stigi til hringrásarfataverkefnis á
menntaskólastigi. Hér á eftir eru
dæmi um þrjú nýleg verkefni sem
kennarar gætu prófað í sínum
skóla:
X Grunnskóli: Stóru-Vogaskóli
– Marc Portal – EUROPEANS
BY THE SEA. Nemendur frá
Frakklandi, Ítalíu og Íslandi
unnu að verkefni þar sem
tungumálakennsla, jarðfræði,
eldfjöll og umhverfið komu öll
við sögu. Verkefnið hlaut nýverið
gæðamerki eTwinning. Nemend-
ur lærðu jafnt um Lakagíga og
Vesúvíus.
X Leikskóli: Leikskólinn Holt í
Reykjanesbæ – Hrefna Sigurðar-
dóttir og Sigurbjört Kristjáns-
dóttir – PENNA #ETW4CLIMATE.
Leikskólabörn frá Spáni, Ítalíu,
Póllandi og Íslandi fóru út í
náttúruna og fundu fjaðrir sem
þau báru saman og lærðu um
fuglalíf í hverju landi fyrir sig.
Einfalt og skemmtilegt, en
þannig á eTwinning að vera.
Verkefnið hlaut viðurkenningu
á ráðstefnunni Verum græn með
Erasmus+ þar sem áhersla var
lögð á græn og væn verkefni.
X Menntaskóli: Fjöl-
brautaskólinn í Breiðholti
– Soffía Margrét Magnúsdóttir –
SLOWING DOWN FAST FASHION.
Nemendur á fata- og textílbraut
unnu með samnemendum
sínum í Eistlandi og Þýskalandi.
Nemendur héldu síðan viðburði
í sínum skólum, og í Fjölbrautar-
skólanum í Breiðholti var til að
mynda haldinn fataskiptimark-
aður.
Tilvalin verkefni fyrir...
eTwinning verkefni eru tilvalin
fyrir tungumálanám, stærð-
fræðikennslu, skapandi hugsun,
umhverfiskennslu, raungreinar,
landafræði, samfélags- og
menningarkennslu. Hægt er að
tengja eTwinning verkefni við
nánast hvaða hluta aðalnámskrár
sem er.
Nánari upplýsingar
um eTwinning má finna á
etwinning.is eða með því að
hafa samband við Landskrif-
stofu eTwinning, en hún er hluti
af Landskrifstofu Erasmus+ sem
rekin er af Rannís á Íslandi. Auk
þess eru starfandi eTwinning
sendiherrar víðs vegar um land
sem hafa víðtæka reynslu af
eTwinning málum. Við bjóðum
upp á að koma í þinn skóla með
stutta og lifandi kynningu. Ekki
hika við að hafa samband!
eTwinning sam
starfið gefur
kennurum lausan
tauminn til að
skapa verkefni
að eigin vild, þar
sem þeir hafa
frjálsar hendur
til að móta verk
efnin að sínum
nemendum.