Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 39
Gervigreind í skólastarfi / UMFJÖLLUN
Opnaðu skólastofuna
upp á gátt með eTwinning
Fljótleg og örugg tenging við Evrópu
Nemendur kynnast nýrri menningu og auka víðsýni
Verkfærakista á netinu, stútfull af möguleikum fyrir kennara
Leikskólar - Grunnskólar - Framhaldsskólar
breytingum en ég held að það
muni alltaf verða mikilvægur
hæfileiki.
Það besta sem ég hef heyrt
er að það að nota gervigreindina
sé svipað og að nota reiknivél;
mikilvægt hjálpartæki sem getur
líka gert ýmsa vinnu fyrir þig. En
myndir þú ráða endurskoðanda
sem neitaði að nota reiknivél?
Eða endurskoðanda sem kann
bara á reiknivél? Ég held að flestir
svari báðum spurningum neitandi
sem sýnir okkur að það er gott
að kunna á hjálpartæki nútímans
en líka mikilvægt að hafa góða
þekkingu á faginu.“
Guðný Ósk er á því að auka
þurfi kennslu í gagnrýnni hugsun.
„Eins mikið og gervigreindin
getur hjálpað okkur þá er hún líka
tæki sem er hægt að nota gegn
okkur. Í dag er mjög auðvelt að
búa til myndir sem hægt er að
nota í fréttir sem eru ekki byggðar
á neinu. Það er hægt að stela rödd-
um og einkennum fólks og nota.
Í raun má ekki trúa neinu
sem maður sér núna á netinu
nema það séu tvær til þrjár aðrar
heimildir fyrir því. Við verðum
að vera gagnrýnin á hvaðan
upplýsingar koma, hvernig þær
eru settar fram og hver er á bak
við þær.“
Spyrjið gervigreindina um ráð
„Ég held að gervigreindin verði
mun aðgengilegri á næstu mánuð-
um og verði hluti af forritunum
sem við notum dags daglega. Það
mun leiða til þess að vinnu-
markaðurinn geri ákveðna kröfu
um að starfsfólk kunni að nota
gervigreind sem hjálpartæki; geti
notað hana til að vinna verkefni
hraðar.
Og öll verkefnavinna mun
verða hraðari. Að búa til kynningu
með glærum mun til dæmis taka
styttri tíma og í skólum munu
nemendur fá styttri tíma til að
vinna verkefni þar sem þau hafa
núna tæki og tól til að auðvelda
þeim vinnuna.
Gervigreindin er komin til
að vera og það er því um að gera
að nota hana. Við verðum að ýta
undir gagnrýna hugsun og, eins
og ég segi við mína nemendur, við
verðum að vera klárari en gervi-
greindin. Kunna að nota hana en
láta hana ekki plata okkur. Samt
sem áður er mikilvægt að hafa í
huga að nám á að vera fjölbreytt
og einhver verkefni geta stuðst
við gervigreind á meðan önnur
geta það ekki. Ég hvet alla til að
byrja að fikta. Og ef þið eruð með
áhyggjur af svindli eða verkefnum:
Einfaldlega nýta tækifærið og
breyta þeim. Og ef þið hafið ekki
hugmynd um hvernig - spyrjið
gervigreindina um ráð.“
Fyrir utan að starfa sem
enskukennari við Verzlunarskóla
Íslands og einnig sem stunda-
kennari við HR og HÍ situr Guðný
Ósk í stjórn Félags enskukennara á
Íslandi og er varaformaður Sam-
taka tungumálakennara á Íslandi.
Síðan í vor hefur hún staðið fyrir
vinnustofum um gervigreind fyrir
FEKÍ og STÍL ásamt Geir Finns-
syni, enskukennara í MÁ. Þau hafa
einnig verið með fræðsluerindi um
notkun gervigreindar í kennslu
fyrir ýmis fagfélög og skóla þar
sem þau leiðbeina kennurum við
að byrja að nota gervigreind.
Alveg eins og
þegar við notum
Googleleitarvél
ina til að hjálpa
okkur þá er ekki
hægt að treysta á
að það sem kem
ur fyrst upp sé
100% rétt.
Guðný Ósk Laxdal segir að gervi-
greindin sé ekki gott þekkingartæki
heldur hjálpartæki