Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 21
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 21
Hringferð / KENNARASAMBANDIÐ
F ulltrúar KÍ
heimsóttu sjö
kaupstaði úti á
landi fyrstu tvær
vikur septem-
bermánaðar og
héldu í kjölfarið tvo fundi á höfuð-
borgarsvæðinu. Hringferðinni var
svo lokið með fjarfundi úr Borgar-
túninu fyrir landið allt. Blásið var til
fundaherferðarinnar til þess að kynna
skipulag og skólastefnu Kennarasam-
bandsins, starfsemi endurmenntunar-
sjóða og hlutverk útgáfusviðs.
Vönduð skólastefna að leiðarljósi
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
skólastefna KÍ er kynnt með svo
formlegum hætti. Skólastefnan er
efnismikil og ávallt er vandað til
hennar – en hún er unnin og afgreidd
á þingum KÍ. Aðalstef gildandi skóla-
stefnu er menntun er mannréttindi.
Það á vel við enda eru mannréttindi
ein mikilvægasta grunnstoð vel-
ferðarkerfisins. Þá fjallar skólastefnan
um faglega forystu kennara og
skólastjórnenda og sérfræðiþekkingu
þeirra.
Þá þótti tilefni til að kynna
starfsemi endurmenntunarsjóða
sambandsins en það eru ekki allir sem
vita hversu umfangsmiklir þeir eru.
Þakklát fundagestum
Haldnir voru fundir í Reykjanesbæ,
á Selfossi, í Borgarnesi, á Ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri og Egils-
stöðum. Þá var fundað tvisvar á
höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík og í
Garðabæ. Síðasti fundurinn var svo í
fjarfundaformi fyrir landið allt.
Varaformaður KÍ, Jónína Hauks-
dóttir, fór fyrir sendinefnd KÍ, en auk
hennar voru fulltrúar útgáfusviðs og
sjóða með í för.
„Mér fannst virkilega skemmti-
legt að fara um landið og fá að heim-
sækja ólíka skóla af öllum skólastigum
og skólagerðum. Einnig er ég mjög
þakklát því félagsfólki sem gaf sér
tíma til að mæta á fundina og kynnast
starfsemi Kennarasambandsins,
skólastefnu þess, endurmenntunar-
sjóðum og útgáfusviði,“ segir Jónína.
Gefinn var tími til umræðna á
fundunum og þar bar margt á góma.
Umræður fundanna voru oft og tíðum
fjörugar og farið var um víðan völl;
rætt var um kjaramál, jöfnun launa
milli markaða, starfsemi sjóðanna,
félagsgjald, kennaramenntun,
starfsaðstæður kennara, húsnæðismál
skólanna og svo mætti áfram telja.
Góðar viðtökur hvarvetna
Sendinefndin fékk góðar viðtökur
hvarvetna og á hverjum stað voru
heimsóttir skólar þar sem hægt var að
kynna sér starfsemina í návígi. Þessar
heimsóknir voru afar upplýsandi og
ánægjulegar. „Það er dýrmætt að fá
tækifæri til að hitta kennara á þeirra
heimavelli,“ segir Jónína.
Kennarasambandið þakkar
öllum þeim sem buðu fulltrúum KÍ í
heimsókn innilega fyrir og þá fá fé-
lagsmenn sem sóttu fundina sérstakar
þakkir, ekki síst fyrir áhugaverðar
umræður í lok funda. Að lokum ber að
þakka því skólafólki sem tók að sér að
hýsa fundina og aðstoða með tækni og
veitingar.
Hringferð KÍ 2023
Dýrmætt að
hitta kennara
á heimavelli
Í september héldu fulltrúar KÍ í hringferð, fundaherferð um allt land, þar
sem þeir kynntu skólastefnu og skipulag sambandsins, sem og starfsemi
endurmenntunarsjóða.
Frá Hringferðarfundi
í Árskóla á Sauðár-
króki.
Borgarnes
bls. 22
Ísafjörður
bls. 23
Sauðárkrókur
bls. 24
Akureyri
bls. 26
Múlaþing
bls. 27
Selfoss
bls. 28
Reykjanesbær
bls. 30