Skólavarðan - 2023, Síða 26
26 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023
KENNARASAMBANDIÐ / Hringferð
Akureyri
V erkmenntaskólinn
á Akureyri er
einn af stærstu
framhaldsskól-
um landsins, með um þúsund
nemendur í dagskóla, fjarnámi og
kvöldskóla. Kennarar við skólann
eru um hundrað talsins.
Það var einmitt kvöldskólinn
sem vakti áhuga Skólavörðunnar
en sendinefnd KÍ fékk sýnisferð
um VMA í tengslum við hringferð
sambandsins í haust.
Leið okkar lá í deild bygginga-
greina og þar hittum við Jóhann
Hjaltdal Þorsteinsson kennara.
Hann sagði okkur frá nýlegri
námsleið sem er kvöldskóli í
húsasmíði.
„Við settum kvöldnám í
húsasmíði á laggirnar haustið 2021
og fengum um fjörutíu umsóknir.
Fimmtán komust inn og gaman að
segja frá því að þeir hafa allir klárað
sitt en námið er fjórar annir. Þetta
hefur verið ánægjulegt verkefni fyrir
okkur en við höfum þurft að aðlaga
okkur að því að viðvera í kvöldnámi
er töluvert minni en í dagskóla.
Að sama skapi er gert ráð fyrir að
nemendur búi yfir meiri reynslu.
Þess ber að geta að það er ekkert
slakað á kröfunum,“ segir Jóhann.
Nemendahópurinn sem
skráði sig til leiks var fjölbreyttur.
Flestir höfðu einhver tengsl við
byggingagreinar eða sambærilega
vinnu en aðrir höfðu kannski
verið í sumarvinnu við smíðar. Svo
voru nemendur sem höfðu unnið
skrifstofuvinnu og vildu breyta til.
Það var fín breidd í hópnum en
meirihlutinn hafði einvörðungu lok-
ið grunnskólaprófi. Nokkrir höfðu
tekið einhverja áfanga í framhalds-
skóla á sínum tíma. Það er mikið
ánægjuefni að sjá þessa nemendur
ljúka formlegu framhaldsskóla-
námi,“ segir Jóhann.
Fengu rannsóknarstyrk
Þegar líða tók undir lok námsins
hjá þessum fyrsta kvöldhóp þá
ákvað Jóhann í samstarfi við Helga
Val Harðarson, brautarstjóra í
byggingagreinum, að nýta tækifærið
og skoða í grunninn hvernig til
hefði tekist. „Við sáum þarna
tækifæri til að afla upplýsinga um
hver upplifun nemenda var af
kvöldskólanum. Við bjuggum til
viðtalsramma og tókum viðtöl við
alla fimmtán nemendurna. Við
erum langt komnir með að vinna úr
svörunum,“ segir Jóhann.
Rannsókn Jóhanns og Helga
Vals fékk styrk úr Rannsóknasjóði
KÍ í fyrra. Jóhann segir mikilvægt
að skoða viðhorf nemenda til
námsins, til þess að sjá hvað megi
gera betur og líka til að sjá hverjir
styrkleikarnir eru. „Við höfum nýtt
þetta efni á fundum með sam-
kennurum með að augnamiði að sjá
hvernig best verði unnið að mótun
brautarinnar til framtíðar.“
Nýr nemendahópur hóf nám
í kvöldskólanum í haust en nú eru
nemendur tólf en ekki fimmtán.
„Það var eitt af því sem við sáum í
viðtölunum að það er of mikið að
hafa fimmtán nemendur. Það kom
fram í svörunum að sumum fannst
biðtími eftir kennara stundum of
langur og þá er hagkvæmara að
vera með tólf og geta skipt hópnum
í þrjá fjögurra manna hópa.“
Kvöldskólinn er að sögn
Jóhanns kominn til að vera. „Við
vonum það að minnsta kosti en það
er svolítið að okkur þrengt eins og í
fleiri framhaldsskólum. Við gætum
þegið að hafa meira pláss en hér
er kennsla frá átta á morgnanna til
níu á kvöldin fjóra daga vikunnar.
Auðvitað er líka jákvætt að nýta
húsnæðið svona vel.“
Spurður um aðsókn í húsa-
smíði í dagskólanum segir Jóhann
að hún sé góð. „Við höfum verið
lánsöm að geta tekið inn þrjá nýja
hópa og erum með um 40 nemend-
ur í grunndeild núna. Þar af eru
fimm stelpur sem er ánægjulegt.“
Þrívíddarumhverfi eykur öryggi
Fleira hefur verið á döfinni á braut
byggingagreina undanfarin ár og
eitt af því er alþjóðlegt verkefni
sem Jóhann hefur unnið að ásamt
Helga Val. „Við höfum verið í
samstarfsverkefni með framhalds-
skólum og háskólum í Noregi og
Slóveníu um hvernig nýta megi
stafræna tækni betur í kennslunni,“
segir Jóhann.
Afrakstur þessa verkefni er
meðal annars þrívíddarumhverfi
sem þeir Jóhann og Helgi Valur
hafa hannað sem sýnir bygginga-
deildina frá a til ö. „Nemendur
geta í gegnum snjalltæki ferðast
um byggingadeildina, skoðað
vélar og tæki auk þess að fá ýmsar
upplýsingar og skoða efni. Þetta
geta þau gert í eigin tíma og vonir
okkar standa til þess að þetta auki
öryggi nemenda fyrir umhverfinu.“
Jóhann kveðst ánægður í
starfi sínu í VMA. „Það eru mikil
forréttindi að fá að vinna með
ungu fólki. Því fylgja líka áskor-
anir því það er margt sem togar
í þau. Kennsla er svolítil glíma
sem felst í að reyna að mynda góð
tengsl við nemendur og byggja
brýr sem fá þá til að tengja vel
við námsefnið. Lykilþættir í
húsasmíðinni eru nákvæmni og
hæfni til að skipuleggja sig fram
í tímann. Það hefur sýnt sig að
nemendur sem ná að tileinka sér
þessa þætti ná mestum og bestum
árangri,“ segir Jóhann Hjaltdal
Þorsteinsson.
Forréttindi að vinna með ungu fólki
Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson, kennari.