Skólavarðan - 2023, Side 50
50 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023
VINNUUMHVERFI / Samskipti
alltaf ástæður fyrir viðbrögðum okkar.
Með aðstoð sérfræðinga getum við
leiðrétt skekkjurnar sem hafa myndast
og leyst þannig úr samskiptaflækjum
upp á eigin spýtur.
Hvaða veganesti fengum við?
Einnig virðist sem veganesti okkar
úr æsku, uppeldið, hafi áhrif á
viðbrögð okkar við aðstæðum
þar sem tungutak, skoðanir og
stjórnunaraðferðir skipta máli. Þar
skiptir mestu hvernig við beitum
tungumálinu sem við lærðum að nota
í samskiptum. Huga þarf að orðaforða
og merkingu tungumálsins, hvað við
segjum og hvernig. Viðhorf okkar og
skoðanir endurspegla líka uppruna
og bakgrunn. Hvernig við metum og
dæmum annað fólk, viðhorf okkar til
þeirra sem við eigum í samskiptum
við og skoðanir okkar á samferðafólki.
Að lokum eru það þær aðferðir sem
við beitum til að reyna að hafa stjórn
á okkur sjálfum og þeim aðstæðum
sem við erum í. Í sumum tilfellum
þekkjum við ekki bjargráðin sem
reynast best til að hafa stjórnina eða
þau virka ekki en í öðrum tilfellum
gleymum við einfaldlega að nýta þau.
Af þessu þrennu litast viðbrögð okkar
í samskiptum svo veganestið skiptir
máli. Sumir hafa fengið gott og heilbrigt
veganesti en það á ekki við um alla.
Flestir átta sig á því með auknum
þroska og aldri hvort veganestið
var gott eða hvort bæta þurfi í það
næringarefnum.
Hvers þörfnumst við?
Til að flækja samskiptamunstur enn
frekar þurfum við að huga að þörfum
þeirra sem við eigum samskipti við.
Hér gæti einhver hugsað, ber ekki hver
ábyrgð á sér? Og jú, það er hárrétt en
með aukinni meðvitund ganga hlutirnir
betur. Fæstum reynist auðvelt að
skilgreina og gera sér grein fyrir eigin
þörfum, en ef við ætlum að gera okkur
grein fyrir þörfum annarra þurfum
við að þekkja okkar eigin þarfir. Við
þekkjum sameiginlegar líkamlegar og
andlegar grunnþarfir okkar sem eru
þær þarfir sem við þurfum til að lifa
góðu lífi. Hér er átt við t.d. annars vegar
fæði, vatn, súrefni og hvíld og hins
vegar skilning, stuðning, heiðarleika og
tilgang (og margt fleira). En í samskipt-
um og samneyti við aðra verðum við
að þekkja hvers við sem einstaklingar
þörfnumst af öðrum og til hvers við
ætlumst. Við getum ekki gert ráð fyrir
að aðrir viti hvers við þörfnumst, ekki
frekar en að þeir lesi hugsanir, og því
er mikilvægt að hafa skilaboð skýr
og segja það sem þarf umbúðalaust
en af kurteisi og mestu mildi.
Við erum gjörn á að gagnrýna
í stað þess að segja hvers við
þörfnumst. Einnig eigum við það
til að sjá frekar það sem er að í fari
annarra og uppfyllir ekki okkar þarfir
þegar okkur í raun og veru vantar
eitthvað. Þegar við segjum t.d.: „Þú
ert alltaf í símanum, ég næ aldrei
athygli“ væri betra að segja:
„ÉG vil fá athygli frá þér“.
Hér er það athygli
einstaklings sem við
Heilbrigð samskipti
Sigrún Birna
Björnsdóttir
Kaaber
sérfræðingur
í vinnu-
umhverfis- og
jafnréttis-
málum hjá KÍ.
A f hverju
bregðast
einstaklingar
misjafnlega við
í sömu aðstæð-
um? Á meðan
margir bregðast við af samkennd og
yfirvegun, hlusta og virða skoðanir,
viðra sínar skoðanir og ræða í
rólegheitum bregðast aðrir við af
æsingi, í vörn og á gagnrýninn og
óyfirvegaðan hátt.
Stutta svarið er að við erum
öll ólík með ólíkan bakgrunn,
misgott veganesti og eigum ekki alltaf
auðvelt með að orða þarfir okkar, en
langa svarið... það er flækjusaga með
nokkrum lausum endum.
Hvaðan komum við?
Heilbrigð samskipti í draumaheimi
endurspegla mannskilning og þroska
þar sem heilindi og samkennd eru í
fyrirrúmi. Flækjum þetta samt aðeins.
Ef samskipti eiga að ganga snurðu-
laust fyrir sig verðum við að huga að
ýmsum þáttum í fari þeirra sem við
eigum samskipti við. Þessir þættir hafa
áhrif á viðbrögð okkar við aðstæðum
og endurspegla bakgrunn okkar og
persónueinkenni. Flestir eiga alla jafna
í góðum samskiptum en þekking á þess-
um þáttum er af hinu góða og gott að
hafa þá í huga ef samskipti ganga ekki
sem skyldi. Meðvitund hvers og eins og
sjálfsþekking skiptir hér máli því við
berum ábyrgð á okkar samskiptum og
að þau gangi vel.
Þættir eins og bakgrunnur, menn-
ing, áfallasaga, sérkenni, greiningar
o.fl. hafa mikil áhrif á viðbrögð okkar í
samskiptum. Allt eru þetta þættir sem
hver og einn þarf að vera meðvitaður
um að geti litað samskipti. Um leið
og grunur vaknar um að eitthvað í lífi
okkar hafi áhrif á samskiptamynstur
er fullkomlega eðlilegt að leita sér
aðstoðar, skoða alla fleti, velta við
steinum og greiða úr fornum flækjum.
Handleiðsla er ein þessara leiða og er
heppileg til að uppgötva að það eru