Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 4
2 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Engjateigi 9 · 105 Reykjavík
Sími: 540 6400
hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ritsjóri og ábyrgðarmaður: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Ritnefnd: Helga Pálmadóttir, Sölvi Sveinsson,
Þórunn Sigurðardóttir
Ritstjóri ritrýndra greina: Sigrún Sunna Skúladóttir
Ritnefnd ritrýndra greina: Páll Biering,
Kristín Linda H Hjartardóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir
Yfirlestur: Ragnheiður Linnet
Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir
Umbrot: Prentmet Oddi
Forsíðumynd: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Prentun: Prentmet Oddi
ISSN 1022-2278
Nýtt ár æðir áfram og fyrsta tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga
er að verða klárt fyrir prentvélarnar og á, ef ekkert klikkar,
að berast félagsfólki Fíh fyrir páska enda tilvalið lesefni með
súkkulaðieggjunum og kaffinu. Án þess að fullyrða nokkuð þá held
ég að við séum að slá fjöldamet í birtum ritrýndum greinum því
það eru hvorki fleiri né færri en sjö ritrýndar greinar í þessu fyrsta
tölublaði ársins. Það er því tilvalið að drekka í sig fróðleik í fríinu,
greinarnar eru fjölbreyttar, fræðandi og án efa líka frábært innlegg
í vísindaheim hjúkrunar sem er í stöðugri framþróun.
Ein þeirra fjallar til að mynda um reynslu einstaklinga með offitu
af heilbrigðiskerfinu hér á landi og þar kemur fram að hlustun og
nærgætni í framkomu heilbrigðisstarfsfólks skiptir miklu máli fyrir
upplifun fólks í ofþyngd. Það vekur líka athygli að flestir sem tóku
þátt í rannsókninni sögðu að offitan ylli því að stundum væri þeim
sagt að þyngdin væri orsök allra einkenna og þeim sagt að létta
sig. Þá væri hvorki hlustað né bent á meðferðarúrræði.
Maður spyr sig hvort það séu mögulega holdafarsfordómar að
kenna aukakílóum um heilsubrest? Offita er ef til vill ofnotaður
sökudólgur og megrun þá væntanlega lausn sem ekki leysir allan
vanda. Skjólstæðingurinn gæti upplifað vanlíðan samhliða ónær-
gætnum athugasemdum um holdafarið og við endurteknar
aðfinnslur fer hann mögulega að forðast þessar neikvæðu
athugasemdir með því að forðast að sækja sér þjónustuna sem
getur haft afleiðingar ef eitthvað sem þarfnast meðhöndlunar er
að hrjá hann.
Já, fordómar leynast víst víða og oft er besta vopnið í baráttunni
gegn þeim fræðsla. Jaðarsettir hópar upplifa fordóma, flóttamenn
verða fyrir fordómum, einnig fólk með fíknivanda og trans fólk og
svo mætti lengi telja.
Sigríður Jóna Bjarnadóttir þekkir mál trans fólks hér á landi
vel en hún er fyrsti hjúkrunarfræðingurinn sem er í fullu starfi í
Transteymi fullorðinna á Landspítala. Ég ætla að fá að vitna í
orð hennar sem snúa einmitt að þessum fordómum sem leynast
svo víða: „ ... það er mjög mikilvægt er að öll heilbrigðisþjónusta sé
kynstaðfestandi sem vísar til þess að trans fólk á að geta leitað sér
heilbrigðisþjónustu án þess að upplifa fordóma og hræðslu. Virða
nafn og fornafn sem fólk kýs að nota þó að það sé ekki það sama
og er skráð í Þjóðskrá. Svo skora ég öll á að bæta við fornöfnin sín í
undirskriftinni sinni í tölvupósti,“ segir Sigríður og ég tek heilshugar
undir orð hennar því allt telur þetta í baráttuni gegn fordómum.
Önnur vísindagrein í þessu blaði fjallar um sjálfsvíg eða reynslu
foreldra af því að missa dóttur eða son í sjálfsvígi og þann stuðning
sem þeim stóð til boða í kjölfarið. Þar kemur fram að sjálfsvígið
kom öllum foreldrunum í rannsókninni í opna skjöldu og var þeim
mikið áfall. Flóknar tilfinningar eins og sektarkennd og sjálfs-
ásakanir komu upp og áfallið kom mikið niður á andlegri og
líkamlegri heilsu foreldranna. Þarna komum við aftur að því hvað
virðing og að sýna mildi getur haft mikið að segja. Þessar tvær
greinar, ásamt fimm öðrum ritrýndum greinum fylla síður blaðsins
að þessu sinni. Auk þess eru skemmtileg og áhugaverð viðtöl
við hjúkrunarfræðinga og ég mæli með þeim öllum því þau gefa
innsýn í ólík störf hjúkrunarfræðinga.
Gleðilega páska kæru hjúkrunarfræðingar, vonandi njótið þið
lestursins og hafið það sem allra best.
(hún/she)
Pistill ritstjóra
Fordómar, virðing
og mildi
alvogen.isFÆST ÁN LYFSEÐILS Í NÆSTA APÓTEKI | LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN
Sínex 5 ml/5 ml, saft, 180ml. Virkt efni: Brómhexín
hýdróklóríð Ábendingar: Sinex er ætlað til meðferðar
á einkennum eftirfarandi öndunarfærasjúkdóma: bráð
berkjubólga, barka- og berkjubólga, langvinn berkju-
bólga, langvinnir berkju- og lungnateppu sjúkdómar,
berkjuskúlk, bráð skútabólga, langvinn skútabólga.
Til meðferðar við glæru og tárusiggi (Sjögrens
heilkenni). Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum
og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um
lyfið á www.serlyfjaskra.is. SIN.L.A.2024.0001.01
SAFT MÁ NOTA FRÁ 2 ÁRA ALDRI SLÍMLEYSANDI INNIHELDUR BRÓMHEXÍN SYKURLAUST
SÍNEX VIÐ BERKJU-, BARKA- OG SKÚTABÓLGU