Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 28
Viðtal 26 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 Öflugar göngudeildir geta bætt flæðið á spítalanum Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir Hulda útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1999, starfaði til að byrja með á gjörgæslu á Landspítalanum og flutti svo til Danmerkur þar sem hún starfaði einnig á gjörgæsludeild. Hulda flutti svo aftur heim til Íslands og starfaði þá við sölu- og markaðssetningu á lyfjum á Íslandi og lauk á sama tíma meistaranámi frá HÍ í stjórnun og stefnumótun. „Þá vaknaði áhugi minn á hugtakinu vinnustaðamenning, hvernig heilbrigð og jákvæð vinnustaðamenning stuðlar að öryggi og vellíðan starfsfólks og hefur jákvæð áhrif á árangur vinnustaða. Árið 2019 kom ég aftur á Landspítalann og réði mig þá sem verkefna- stjóra á menntadeildinni og ári seinna 2020 var árið sem var tileinkað hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á vegum WHO. Landspítalinn tók þátt í því átaki sem hafði það að markmiði að efla leiðtoga í hjúkrun. Við settum á fót leiðtogaþjálfun fyrir unga hjúkrunarfræðinga og ljósmæður sem stóð undir formerkjum Nightingale Challenge og stóð yfir í eitt ár. Þegar því lauk var haldið áfram að bjóða upp á leiðtogaþjálfun á Landspítalanum fyrir þennan hóp en með aðeins öðru sniði.“ Hulda leiddi þetta átak og segir það hafa verið mjög gefandi og lærdómsríkt. Hún segir að klíníkin hafi fljótlega togað í sig þegar hún hóf aftur störf á Landspítalanum og að hún hafi flakkaði á milli deilda og þannig kynnst bæði legudeildum og göngudeildarstarfsemi samhliða vinnu sinni á menntadeildinni. Fjölbreytt og áhugaverð hjúkrun Þú tókst við starfi hjúkrunardeildarstjóra haustið 2022 en hvar kynntist þú fyrst göngudeildarstarfsemi? „Ég kynntist henni fyrst þegar ég vann á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma og fannst sú starfsemi strax mjög áhugaverð og spennandi. Á göngudeild kynnist maður sjúklingum á annan hátt og mætir þeim á þeirra forsendum með sinn sjúkdóm. Á göngudeild eru líka gríðarleg tækifæri í að efla þjónustu við sjúklinga til þess að þeir nái að vera sem mest sjálfbjarga með sinn sjúkdóm. Þegar starf deildarstjóra á göngudeild þvagfæraskurðlækninga var auglýst var ég ekki lengi að hugsa mig. Ég hafði ekki sérþekkingu á hjúkrun sjúklinga með þvagfæravandamál en eftir því sem ég hef kynnst þessari hjúkrun betur finnst mér mjög gefandi að hjúkra þessum hópi sjúklinga því hjúkrunin er fjölbreytt og áhugaverð.“ Hulda segir deildarstjórastarfið skemmtilegt, krefjandi og gefandi. „Ég er alltaf með umbætur í huga, hvernig við getum bætt starf- semina í þágu sjúklinganna og oft geta litlar breytingar bætt heilmikið,“ segir hún og bætir við að hún hlakki alltaf til að mæta í vinnuna því á deildinni starfi frábært fólk sem stundi vinnu sína af mikilli fagmennsku og heilindum. Leggur ríka áherslu á opin og hlý samskipti Hverjar eru helstu áherslur þínar í starfi deildarstjóra? „Ég legg mikla áherslu á að við vinnum ávallt út frá þörfum sjúklingsins, að hann fái þá bestu mögulegu þjónustu til að ná bata eða lifa sem best með sinn sjúkdóm. Skipulag og skilvirkni skiptir miklu máli og einnig að mönnun sé nægileg. Ég legg einnig ríka áherslu á opin og hlý samskipti við okkar skjólstæðinga og á milli starfsfólks. Það er gríðarlega mikilvægt að okkur líði vel saman og það skilar sér í okkar starfi. Hér vinna framúrskarandi hjúkrunarfræðingar með mikla reynslu sem ég ber mikið traust til. Ég legg áherslu á að þeir njóti sjálfstæðis í starfi samkvæmt verkferlum og innan þess ramma sem starfið býður upp á og samkvæmt gildum Landspítalans. Við erum mjög sérhæfð göngudeild, eina göngudeild þvagfærasjúkdóma á landinu og því erum við leiðtogar í þessari grein. Fagfólk, innan sem utan spítalans, getur leitað til okkar þegar á þarf að halda og fengið ráðleggingar og aðstoð. Það er stefna okkar að miðla þekkingu og færni.“ Einstaklingsmiðuð hjúkrun Hulda segir að starfsemi göngudeilda sé frábrugðin annarri starfsemi deilda að því leyti að þar fari fram mikil sérhæfing: „Þegar hjúkrunin er orðin svona sérhæfð eins og á minni deild krefst hún dýpri þekkingar og meira innsæis í sjúkdóminn sem eykur svo gæði hjúkrunarstarfsins að mínu mati,“ segir hún og bætir við að meðferð á göngudeildum hafi ávallt það að markmiði að hjálpa sjúklingum að vera sem mest sjálfbjarga með sinn sjúkdóm í sínu daglega lífi. „Við mætum sjúklingunum á þeirra forsendum og veitum ávallt einstaklingsmiðaða hjúkrun. Við útskrift setjum við mál viðkomandi í traustan farveg og tryggjum eftirfylgni. Heimaþjónusta til sjúklinga er tryggð og auk þess er mikilvægt að þeir fái réttar hjúkrunarvörur til að hafa heima hjá sér fyrir alla umhirðu. Við erum með bókanir þannig að sjúklingar Göngudeild þvagfæraskurðlækninga er einstök, þar fer fram öflug starfsemi og framþróun í meðferð sem hefur leitt til þess að legudögum sjúklinga hefur fækkað. Hulda Pálsdóttir er hjúkrunardeildarstjóri á göngudeild þvagfæraskurðlækninga, sem í daglegu tali er kölluð deild 11A. Hún er einstaklega jákvæð, segir að fjölbreytni í meðferðarúrræðum fyrir sjúklingahóp deildarinnar hafi aukist og að öflugar göngudeildir geti bætt flæðið á spítalanum. Við fengum Huldu í viðtal um starfsemi deildarinnar en byrjuðum á því að spyrja hana hvar hún hafi starfað áður. Hulda Pálsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á göngudeild þvagfæraskurðlækninga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.